Brattahlíð Kagissiarssuk Grænland,


BRATTAHLÍÐ - KAGISSIARSSUK
.

.

Utanríkisrnt.

Núverandi byggð hófst árið 1924 og þar búa u.þ.b. 200 manns og stunda sauðfjárbúskap.  Í Brattahlið eru rústir bús Eiríks rauða Þorvaldssonar, sem settist þar að í lok 10. aldar.  Hann var einn hinna miklu landkönnuða og afbragðs sölumaður eins og sjá má af því, hve vel honum tókst að teygja Íslendinga með sér til búsetu á Grænlandi.  Sonur hans, Leifur heppni, fann Ameríku í kringum árið 1000.  Þjóðhildur, kona Eiríks, gerðist kristin og lét byggja fyrstu kirkju í landinu,Þjóðhildarkirkju, og þar með hina fyrstu kirkju Norður-Ameríku.  Rústir kirkjunnar standa enn þá.  Fyrsta þing Grænlendinga var í Brattahlíð og þess sjást enn merki.


.

 TIL BAKA        Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir         HEIM