|
Féla

Grein Ástu Ólu
í febrúar 2006
Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.
Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.
Lög ASÍ
Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.
Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK
Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.
Leiðsögunám EHÍ
Eru skólarnir
viðurkenndir? |
FÉLAG
LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í
RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
Reykjavík,
6. nóvember 2010.
Skúli Möller lemur enn þá hausnum við steininn og
hættir ekki að titla sig formann Félags leiðsögumanna.
Hann spyr
26. september: „Erum við of lítil?” Síðan kemur pistill
hans, fyrst nöfn meintra kjaranefndarmanna félagsins, sem
eru ekki réttkjörnir fremur en aðrir.
Síðan segir hann frá því, hve velnestaður hann og síðasta
kjaranefnd hafi farið krossferðina um miðjan nóvember 2007.
Að loknum 21. fundi 28. marz 2008 kom hann með afraksturinn,
sem bar vott um uppgjöf, vanmátt og kjaraskerðingu, og sagði
okkur að við yrðum að éta það, sem úti frýs. Hann gafst upp
og sagði að lengra yrði ekki komizt. Hann hafði ekki
hugrekki til að hvetja trúnaðarmenn og stjórn félagsins til
boðunar verkfalls (það var gert um svipað leyti árs 1987 og
þá fengu leiðsögumenn verulega launahækkun, sem er vitaskuld
löngu horfin). Hann hefur ekki enn þá viðurkennt aðild sína
að samsæri stjórnar gegn okkur í
allsherjaratkvæðagreiðslunni í kjölfarið.
Fólkið, sem telur sig réttkjörið í stjórn, nefndir og önnur
embætti Félags leiðsögumanna á aðalfundi 2010, er það ekki.
Það getur ekki komið fram fyrir hönd félagsins og má ekki
skuldbinda það á nokkurn hátt. Við erum búin að lifa við
valdarán og fölsun og verðum að sýna manndóm til að koma
málum okkar í lag.
Pistill Skúla endar á launasamanburði við VR og
uppgjafartóni. Hann hallast að því, að við afsölum okkur
frelsi til samninga og felum þá „einhverju” stærra apparati
til að ná betri árangri. Hann áttar sig ekki á því, að það
þarf baráttuþrek og bein í nefi til að láta ekki bugast í
kjarasamningum. Hann er búinn að sýna okkur og sanna, að
hann og viðhlægjendur hans eru ekki vandanum vaxnir. Við
skulum vona, að hann verði ekki kosinn í næstu kjaranefnd.
Leiðsögumenn! Hvenær ætlið þið að hrista af ykkur slenið,
krefjast löglegs aðalfundar og sýna manndóm til að halda
uppi stéttarfélagi og mannsæmandi kjörum? Ætlið þið að vera
jafnlítil og Skúli og verða honum samferða í uppgjöfinni og
eymdinni? Pistill Skúla er ekkert annað en opinber
viðurkenning vanmáttar og leti og e.t.v. ragmennsku.
Raunsæi hefur ekkert með ályktanir hans að gera. Hann
getur eða nennir ekki að vinna okkur gagn. |
.


Félag leiðsögumanna
Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is
Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)

Ferðaheimur
Lög
FFL 2007
Tillaga
til lagabreytinga 2009
Tillaga að reglugerð allsherjarakv.gr. |