Féla

Grein Ástu Ólu
í febrúar 2006

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

Reykjavík, 12. október 2010.
From: marionlerner@simnet.is
To: info@nat.is
Subject: Re: Áskorun!
Date: Mon, 11 Oct 2010 21:16:10 +0000

Sæll aftur,
eins og ég nefndi í bréfi mínu fyrr í dag þurfti ég fyrst að flétta upp í fundargerðarbókinni.

Reyndar fékk ég staðfestingu á því sem mig mundi. Á aðalfundi 2009 var eftirfarandi tillaga samþykkt:

"26.02.09; Ég legg til að breytingar á tillögum verði vísað til laganefnder sem kosin verði á þessum fundi og vinni úr þeim og leggi fram fyrir næsta aðalfund. Sig. G. Tómasson." Tillagan var samþykkt með þorra greiddra athvæða gegn þremur.  Í laganefnd voru kosin Friðrik Haraldsson, Jón Lárusson og Sigurður Tómasson, til vara Guðrún Frederiksen.

Framhaldsaðalfundur þ. 27. apríl 2009 var haldinn til að fjalla um reglugerð sjúkrasjóðs.Tillaga frá þér um að boða til fundar um allsherjaratkvæðagreiðslu til úrsagnar úr ASÍ var felld á þessum fundi.  Ekki komu fram neinar tilkynningar úr nýkosinni laganefnd.

Á starfsárinu bárust engar fréttir úr laganefndinni, ekki var vitað um neina fundi nefndarinnar, þó varamaður í nefndinni væri einnig stjórnarmeðlimur. Fyrir aðalfund 2010 bárust hvorki stjórninni né skrifstofu félagsins neinar tillögur úr laganefndinni. Tímafrestur til að leggja lagabreytingartillögur fyrir aðalfundinn rann út 20. des. 2009 skv. lögum félagsins (24. gr.).  Á dagskrá sem fylgdi fundarboði aðalfundar 2010 var því ekki gert ráð fyrir neinum lagabreytingartillögum öðrum en þeim sem stjórnin lagði fyrir.

Ég get því ekki séð af hverju aðalfundur 2010 eigi að hafa verið ólöglega boðaður. Því síður get ég fallist á þá skoðun þína að stjórnin sé ekki löglega kosin.

Ég myndi því ráðleggja þér að leggja breytingartillögur þínar (eða nefndarinnar ef hún kemur þá saman) fyrir næsta aðalfund. Til þess þurfa þær að hafa borist stjórninni ekki síðar en 15. janúar 2011 (sbr. 24. gr. sem var breytt á aðalfundi 2010) þannig að hægt verði að kynna þær fyrir félagsmönnum með fundarboði.

Bestu kveðjur
Marion, varaformaður Félags leiðsögumaður
Dr. phil. Marion Lerner, leiðsögumaður á þýsku
s. 551 1528


Marion Lerner,
Þessi niðurstaða þín kemur mér ekki á óvart, því að þér og sumum öðrum í Félagi leiðsögumanna er tamara að stunda annað en lýðræðisleg vinnubrögð.  Í þessu tilfelli ákveður þú að sniðganga ábyrgð stjórnarinnar, sem þú ert enn þá fulltrúi fyrir og heldur að hafi lokið störfum hinn 22. febrúar 2010.  Þessari stjórn bar og ber að hafa yfirumsjón með starfsemi félagins og getur því ekki skotið sér undan ákvæðum 13. greinar laga þess. Það kemur rækilega fram í textanum þínum hér að neðan, að aðalfundur 2009 samþykkti, að laganefndin skilaði niðurstöðum sínum að ári.  Stjórnin ber ábyrgð á að framfylgja ákvörðunum æðsta valds félagsins.  Stjórninni var líka kunnugt um niðurstöðurnar, þótt fundarritari hafi vanrækt að geta þess í fundargerð framhaldsaðalfundar 27. apríl 2009.  Hafi stjórnin gleymt niðurstöðunum, bar henni að leita eftir þeim fyrir boðun aðalfundar 2010.  Tilvísun í 24. gr. félagslaga verður ekki sönn og rétt með því að tönnlast á henni fremur en að lygi verði að sannleika, sé hún endurtekin nógu oft.

Langþreyttur á þrasi við þig og aðrar vindmyllur og síundrandi á einbeittri og þrálátri hermdarverkastarfsemi ykkar, á ég þá ósk heitasta, að þú hættir afskiptum af félagsmálum og hinni ólöglegu starfsemi í félaginu linni áður en fleiri gefast upp á vitleysunni og óreiðunni.

Friðrik Haraldsson 

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Tillaga til lagabreytinga 2009

Tillaga að reglugerð allsherjarakv.gr.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM