Reykjavík 22. febrúar 2010.

 

Tillaga um fundarslit ólöglega boðaðs aðalfundar Félags leiðsögumanna í Restaurant Reykjavik kl. 20:00.
Fundurinn samþykkir að slíta settum aðalfundi Félags leiðsögumanna vegna ófullnægjandi dagskrár og undirbúnings.
Fundurinn samþykkir, að aðalfundur verði auglýstur aftur með réttri dagskrá með lögboðnum fyrirvara.  Dagskrá fundarins verði kynnt ítarlega og nauðsynlegt efni liggi fyrir á fundinum.
Fundurinn samþykkir afbrigði frá lögum félagsins svo að halda megi aðalfundinn í marz í stað febrúar.

 

Rökstuðningur tillögu um fundarslit ólöglega boðaðs aðalfundar Félags leiðsögumanna í Restaurant Reykjavík 22. febrúar 2010, kl. 20:00.
1.  Tuttugastaogfjórða grein laga Félags leiðsögumanna skýrir, hvernig skuli boða fundi.

2.  Aðalfundur hvers félags er æðsta stofnun þess og aðalvettvangur afskipta og áhrifa meðlima þess á stjórn og stefnu þess.  Aðalfundur felur stjórnum og nefndum félaga umsjón valds þeirra þar til hinn næsti verður haldinn.

3.  Aðalfundur Félags leiðsögumanna hinn 26. febrúar 2009 kaus og fól þriggja manna laganefnd (Sigurður G. Tómasson, Jón Lárusson og Friðrik Haraldsson) að fjalla um tillögu til lagabreytinga, sem lá fyrir fundinum, og skila áliti um meðferð hennar.  Þessi tillaga barst stjórn félagsins fyrir lögboðinn eindaga hinn 20. desember 2008, og var því rétt fram borin.

4.  Framhaldsaðalfundur var boðaður hinn 27. apríl 2009.  Þar bauðst hin kjörna laganefnd til að skila niðurstöðum, en samþykkt var að vísa þeim til aðalfundar 2010.

5.  Stjórnum félaga er heimilt að biðja um og stundum skylt að krefjast skýrslna frá starfandi nefndum, m.a. í aðdraganda næsta aðalfundar.  Það telst góð stjórnsýsla að stjórnir fylgist með störfum nefnda, sem starfa í þágu félagsmanna.  Stjórn Félags leiðsögumanna bað aðalfundarkosna laganefnd (26. febrúar 2009) ekki um skýrslu (sjá útprentun 2008).

6.  Félagsstjórn var og er fullkunnugt um starfandi laganefnd og skyldur hennar við aðalfundinn 2010.  Það er ráðgáta, hvernig stjórnin þykist geta sniðgengið hlutverk laganefndarinnar með tilvísun til 24. greinar laga félagsins um skilaskyldu tillagna um lagabreytingar (netpóstur frá F.l. 17. febrúar 2010).  Hún falaðist ekki eftir upplýsingum frá nefndinni og vissi og veit ekki, hver niðurstaða nefndar verður.  Stjórn félagsins er alls óheimilt að taka fram fyrir hendur löglega boðaðs aðalfundar árið 2009.  Hann er æðra vald en stjórn F.l. og fól þessari nefnd að skila áliti um meðferð þessarar lagabreytingatillögur að ári.  Stjórnin braut 13. grein laga félagsins, því hún sinnti ekki hlutverki sínu.

7.  Dagskrá boðaðs aðalfundar hinn 22. febrúar 2010 gerir ekki ráð fyrir umfjöllun niðurstöðu laganefndar og því verður að telja ólöglega boðað til hans.

8.  Fundarmenn eru eindregið hvattir til að rasa ekki um ráð fram og gæta þess vel að hafa lög og góð fundarsköp að leiðarljósi við ákvörðun sína í þessu máli.  Þjóðin stendur frammi fyrir mörgum siðbrestum, sem hafa sumpart skotið rótum í smærri einingum samfélagins.  Við og félag okkar höfum ekki farið varhluta af þessari þróun og gott væri að sjá vilja til uppgjörs við fortíðina með góðum verkum.  Hættum að láta allt yfir okkur ganga og stuðlum að tillitsemi og betri siðum.