Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2006. Útgáfa 132a. Prenta í tveimur dálkum.
2002 nr. 97 10. maí
Ferill
málsins á Alþingi. Frumvarp
til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2003. Breytt með
l. 84/2003 (tóku
gildi 10. apríl 2003; EES-samningurinn: V eða VIII. viðauki),
l. 19/2004 (tóku
gildi 1. maí 2004) og l.
139/2005 (tóku gildi 30. des. 2005).
I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Ákvæði
laga þessara gilda um heimild útlendinga
til atvinnu hér á landi. Um undanþágu frá kröfu um atvinnuleyfi gilda ákvæði
III. kafla.
Íslenskir ríkisborgarar geta einnig
borið skyldur samkvæmt lögunum.
2. gr.
Tilgangur.
Lögin
gefa heimild til að veita atvinnuleyfi vegna starfa
útlendinga hér á landi í samræmi við stefnu stjórnvalda hverju sinni.
Lögunum er
einnig ætlað að tryggja réttaröryggi útlendinga
sem koma til landsins í atvinnuskyni og kveða á um rétt
útlendinga til atvinnu hér á landi að ákveðnum skilyrðum fullnægðum.
3. gr.
Orðskýringar.
Merking orða í
lögum þessum er sem hér segir:
1. Atvinnuleyfi: Leyfi sem félagsmálaráðherra veitir
útlendingi til að starfa hér á landi eða atvinnurekanda til að ráða
útlending í starf.
2. Tímabundið atvinnuleyfi: Tímabundið leyfi veitt
atvinnurekanda til að ráða útlending
til starfa.
3. Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna: Tímabundið
leyfi veitt útlendingi vegna
sérhæfðra verkefna.
4. Óbundið atvinnuleyfi: Ótímabundið leyfi veitt
útlendingi til að vinna á Íslandi.
5. Atvinnuleyfi vegna námsdvalar og vistráðningar:
Atvinnuleyfi erlendra námsmanna í íslenskum skólum eða vegna samninga um
vistráðningu á heimili.
6. Atvinnurekandi: Einstaklingur eða fyrirtæki
sem er með atvinnurekstur hér á landi án tillits til þess hvernig rekstrarformi
og eignarhaldi er háttað.
7. [Búsetuleyfi: Leyfi sem felur í sér rétt til
ótímabundinnar dvalar skv. 15. gr. laga
um útlendinga.]1)
8. Útlendingur: Einstaklingur sem ekki hefur
íslenskan ríkisborgararétt.
9. Nánustu aðstandendur: Maki, sambúðarmaki,
samvistarmaki, niðjar yngri en 18 ára og ættmenni
útlendings eða maka að feðgatali.
1)L.
84/2003, 1. gr.
4. gr.
Framkvæmd laganna.
Félagsmálaráðherra fer með
yfirstjórn mála samkvæmt lögunum
og setur með reglugerð1) nánari ákvæði um
framkvæmd þeirra.
Vinnumálastofnun fer í umboði
ráðherra með framkvæmd laganna.
1)Rg.
339/2005.
II. kafli. Atvinnuleyfi.
5. gr.
Almennt.
Atvinnuleyfi veitir rétt til að
vinna hér á landi samkvæmt þeim lögum
og reglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.
Leyfi samkvæmt
lögum þessum er heimilt að binda skilyrðum öðrum en þeim er koma fram í
lögum þessum og ráðherra telur nauðsynleg vegna mikilvægra
almannahagsmuna.
Vinnumálastofnun skal gefa út
atvinnuleyfi samkvæmt nánari ákvæðum sem sett skulu í reglugerð.1)
1)Rg.
339/2005.
6. gr.
Óheimilt er að veita útlendingi
atvinnuleyfi sem dvelst hér á landi án dvalarleyfis eða hefur verið gert að fara
af landi brott samkvæmt lögum um
útlendinga. Sé þessu skilyrði ekki fullnægt og
útlendingurinn dvelst í landinu á grundvelli bráðabirgðadvalarleyfis
samkvæmt lögum um
útlendinga má veita honum tímabundið atvinnuleyfi að uppfylltum
skilyrðum 3. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 8. gr.
Óheimilt er hverjum manni, félagi
eða stofnun, sem rekur atvinnu eða starfrækir fyrirtæki, hverju nafni sem það
nefnist, að ráða útlending til
starfa, hvort heldur er um langan tíma eða skamman, eða hlutast til um að
útlendingur flytjist til landsins í því skyni án atvinnuleyfis.
Útlendingi er óheimilt að ráða sig í
vinnu eða starfa sjálfstætt nema leyfi hafi verið veitt samkvæmt
lögum þessum.
7. gr.
Tímabundið atvinnuleyfi.
Tímabundið atvinnuleyfi er veitt
atvinnurekanda til að ráða útlending
til starfa. Skilyrði þess að atvinnuleyfi megi veita samkvæmt þessari grein eru
eftirfarandi:
a. Að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands,
atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með
leyfisveitingu. Áður en atvinnuleyfi er veitt ber atvinnurekanda að hafa leitað
til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli, nema slík leit verði fyrirsjáanlega
árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.
b. Að fyrir liggi umsögn stéttarfélags á staðnum í
hlutaðeigandi starfsgrein eða viðkomandi landssambands. Umsögn skal liggja fyrir
innan 14 daga frá móttöku umsagnaraðila á umsókn um atvinnuleyfi. Þó er heimilt
í sérstökum tilvikum að víkja frá þessu skilyrði þegar ekki er til að dreifa
stéttarfélagi eða landssambandi í hlutaðeigandi starfsgrein.
c. Að fyrir liggi undirskrifaður ráðningarsamningur til
tiltekins tíma eða verkefnis sem tryggi starfsmanni laun og önnur starfskjör til
jafns við heimamenn, sbr. lög um
starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
d. Að atvinnurekandi sjúkratryggi erlendan starfsmann þannig
að hann njóti verndar til jafns við ákvæði almannatryggingalaga.
e. Að atvinnurekandi ábyrgist greiðslu á heimflutningi
starfsmanns að starfstíma loknum ef starfsmaður verður óvinnufær um lengri tíma
vegna veikinda eða slysa og ef um er að ræða ráðningarslit sem starfsmaður á
ekki sök á. Í ráðningarsamningi komi fram til hvaða lands heimflutningur nær.
f. Að lagt
hafi verið fram fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Heimilt er að veita tímabundið
atvinnuleyfi vegna nánustu aðstandenda
útlendings sem fengið hefur búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi.
Skilyrði er að áður hafi verið veitt dvalarleyfi samkvæmt ákvæðum
laga um útlendinga um
dvalarleyfi fyrir aðstandendur. Við veitingu leyfis samkvæmt þessari málsgrein
er heimilt að víkja frá skilyrðum a- og e-liðar 1. mgr.
Heimilt er að veita tímabundið
atvinnuleyfi vegna útlendings,
sem sótt hefur um hæli, þar til ákvörðun hefur verið tekin um hælisumsóknina,
svo og vegna útlendings, sem fengið
hefur endanlega synjun um hæli eða dvalarleyfi, þar til brottvísun kemur til
framkvæmda, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess. Skilyrði er að áður hafi
útlendingi verið veitt bráðabirgðadvalarleyfi samkvæmt
lögum um útlendinga. Við
veitingu leyfis samkvæmt þessari málsgrein er heimilt að víkja frá skilyrðum a-,
b- og e-liðar 1. mgr.
[Óheimilt er að veita dvalar- og
atvinnuleyfi samkvæmt lögum
þessum vegna starfa hjá starfsmannaleigum.
Félagsmálaráðherra getur með
reglugerð1) sett nánari ákvæði um tímabundin
atvinnuleyfi.]2)
1)Rg.
339/2005. 2)L.
139/2005, 16. gr.
8. gr.
Tímabundið atvinnuleyfi skal liggja fyrir áður en
útlendingur kemur í fyrsta skipti til starfa á Íslandi. Frá þessu má þó
víkja ef ríkar sanngirnisástæður eru fyrir hendi, einnig ef skilyrði skv. 1.
mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr. eru fyrir hendi.
Atvinnuleyfi sem veitt er í fyrsta
skipti skal eigi veitt til lengri tíma en eins árs. Heimilt er að framlengja það
um allt að tvö ár í senn, enda séu uppfyllt skilyrði sem fram koma í a–c-liðum
1. mgr. 7. gr.
Hafi ríki gert samning við
Ísland um atvinnuréttindi er
heimilt að veita útlendingi frá því
ríki atvinnuleyfi til lengri tíma en greinir í 2. mgr. Hið sama gildir ef ríki
er aðili að alþjóðasamningum um félagsleg réttindi sem Ísland hefur fullgilt.
9. gr.
Íslenskukennsla og samfélagsfræðsla.
Atvinnurekandi og stéttarfélag
skulu veita starfsmanni með tímabundið atvinnuleyfi upplýsingar um grunnnámskeið
í íslensku fyrir útlendinga,
samfélagsfræðslu og aðra þá fræðslu sem honum og fjölskyldu hans stendur til
boða.
10. gr.
Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna.
Heimilt er við sérstakar
aðstæður að veita útlendingi, sem
fyrirhugað er að senda hingað til lands á vegum fyrirtækis sem ekki hefur
starfsstöð hér á landi, tímabundið atvinnuleyfi, að uppfylltum skilyrðum
c–f-liðar 1. mgr. 7. gr.
Þjónustusamningur við fyrirtæki hér
á landi skal liggja fyrir. Í samningnum skal m.a. koma fram að skilyrði
viðskiptanna sé að starfsmaður hins erlenda fyrirtækis annist þjónustuna.
Leyfi samkvæmt þessari grein
skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða á grundvelli sama
þjónustusamnings.
Atvinnuleyfi veitt samkvæmt
þessari grein skal liggja fyrir áður en
útlendingur kemur til landsins.
11. gr.
Óbundið atvinnuleyfi.
Heimilt er að veita
útlendingi óbundið atvinnuleyfi. Skilyrði þess að atvinnuleyfi megi
veita samkvæmt þessari grein eru eftirfarandi:
a. að hann hafi átt
lögheimili og dvalið samfellt á Íslandi í þrjú ár,
b. að hann hafi öðlast búsetuleyfi á Íslandi samkvæmt
lögum um útlendinga,
c. að áður hafi verið veitt leyfi skv. 7. gr.
Víkja má frá skilyrðum 1. mgr.
ef íslenskur ríkisborgari fær lögskilnað
eða slítur sambúð eða samvist við erlendan maka sinn. Þarf hjúskapur, staðfest
samvist eða skráð sambúð að hafa varað í a.m.k. tvö ár og erlendi makinn þarf að
hafa átt lögheimili hér á landi
samfellt í a.m.k. sama tíma. Enn fremur er heimilt að víkja frá skilyrðum 1.
mgr. vegna erlends maka ef um andlát íslensks maka er að ræða eða í hlut á maki
útlendings sem hefur óbundið atvinnuleyfi eða börn hans 18 ára og eldri.
Víkja má frá skilyrði c-liðar 1.
mgr. ef um er að ræða útlending
sem verið hefur í námi hér á landi að lágmarki í þrjú ár og lokið því.
Heimilt er að veita
útlendingi, sem hefur fengið landvist hér á landi sem flóttamaður,
óbundið atvinnuleyfi.
Leyfi samkvæmt þessari grein gildir
meðan útlendingur hefur
lögheimili hérlendis.
12. gr.
Atvinnuleyfi vegna námsdvalar.
Heimilt er að veita
útlendingi, sem stundar fullt nám hér á landi samkvæmt vottorði frá
hlutaðeigandi skóla, leyfi til að stunda vinnu sem hluta af námi, með námi eða í
námsleyfum, enda sé námsframvinda eðlileg.
Skilyrði fyrir veitingu leyfis
samkvæmt þessari grein er framvísun innritunarvottorðs hlutaðeigandi skóla.
Leyfi skal ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða í senn. Heimilt er að
framlengja atvinnuleyfi vegna námsdvalar gegn innritunarvottorði og vottorði um
námsframvindu.
Skilyrði þess að atvinnuleyfi
sé veitt á grundvelli þessarar greinar er að
útlendingur hafi lagt fram
fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Í reglugerð1)
skal kveðið nánar á um atvinnuleyfi vegna námsdvalar, þ.m.t.
hámarksvinnustundafjölda.
1)Rg.
339/2005.
13. gr.
Atvinnuleyfi vegna vistráðningar.
Heimilt er að veita leyfi til
að ráða útlending á aldrinum
18–26 ára í vist á íslenskt heimili.
Skilyrði fyrir veitingu leyfis er
að fyrir liggi skriflegur samningur milli aðila þar sem fram kemur m.a.
gildistími samnings, hlunnindi að því er varðar fæði og húsnæði, daglegur
vinnutími, daglegur og vikulegur hvíldartími, réttur til að stunda nám og ákvæði
um sjúkra- og slysatryggingar. Fæði og húsnæði skal vera ókeypis.
Skilyrði þess að atvinnuleyfi
sé veitt á grundvelli þessarar greinar er að
útlendingur hafi lagt fram
fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Óheimilt er að veita leyfi til
ráðningar sama einstaklings skv. 1. mgr. til lengri tíma en eins árs.
Vinnumálastofnun skal gefa út
nauðsynleg eyðublöð vegna samninga um vistráðningu. Á eyðublaðið skal prenta
upplýsingar um ábyrgð þess sem ræður til sín
útlending í vist, m.a. í sambandi við sjúkra- og slysatryggingar og
önnur hlunnindi.
Vinnumálastofnun skal ákveða upphæð
vasapeninga sem greiða skal útlendingi
sem ráðinn hefur verið í vist skv. 1. mgr.
Vinnumálastofnun er heimilt að fela
stofnun eða fyrirtæki alla milligöngu og eftirlit með ráðningum skv. 1. mgr.
Nánar skal kveða á um skilyrði
þessa ákvæðis í reglugerð.1)
1)Rg.
339/2005.
III. kafli. Undanþáguákvæði.
14. gr.
Eftirtaldir eru undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi:
[a. Ríkisborgarar í aðildarríkjum samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið og stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og aðrir
útlendingar sem falla undir reglur samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið og stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu, með þeim takmörkunum
sem þar greinir og nánar skal kveðið á um í reglugerð.]1)
[b. ]1) Útlendingar sem
hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst íslenskan
ríkisborgararétt.
[c. ]1) Erlendir
makar íslenskra ríkisborgara og börn þeirra að 18 ára aldri.
[d. ]1) Útlendingar í
einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja.
1)L.
84/2003, 2. gr.
15. gr.
Eftirtaldir útlendingar eru
undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi vegna vinnu í allt að fjórar vikur á ári hér á
landi:
a. Vísindamenn og fyrirlesarar að því leyti sem varðar
kennslu eða hliðstæða starfsemi.
b. Listamenn, að undanskildum hljóðfæraleikurum sem
ráða sig til starfa á veitingahúsum. Undanþága samkvæmt þessum lið tekur ekki
til dansara sem koma fram á næturklúbbum, sbr. i-lið 9. gr.
laga um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985, sbr.
lög nr. 66/2000.
c. Íþróttaþjálfarar.
d. Fulltrúar í viðskiptaerindum fyrir fyrirtæki sem
ekki hafa útibú hérlendis.
e. Ökumenn fólksflutningabifreiða sem skráðar eru í
erlendu ríki, enda hafi þeir komið með erlenda ferðamenn í bifreiðunum til
landsins.
f. Blaða- og fréttamenn erlendra fjölmiðla sem eru í
þjónustu fyrirtækja sem ekki hafa starfsstöð á Íslandi.
g. Starfsmenn, ráðgjafar og leiðbeinendur sem vinna að
sérhæfðri samsetningu, uppsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja.
Ráðherra getur sett reglur1)
sem skilgreina nánar einstök störf sem falla undir undanþágu samkvæmt þessari
grein.
1)Rg.
339/2005.
IV. kafli. Afturköllun atvinnuleyfis og viðurlög.
16. gr.
Afturköllun.
Vinnumálastofnun er heimilt að
afturkalla atvinnuleyfi ef útlendingur
eða atvinnurekandi hefur við umsókn, gegn betri vitund, veitt rangar upplýsingar
eða leynt atvikum sem hefðu getað haft verulega þýðingu við leyfisveitinguna eða
ekki er lengur fullnægt skilyrðum fyrir veitingu atvinnuleyfis eða það leiðir að
öðru leyti af almennum stjórnsýslureglum.
17. gr.
Refsiákvæði.
Það varðar sektum eða fangelsi
allt að sex mánuðum ef maður:
a. af ásetningi eða gáleysi brýtur gegn
lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim eða
b. af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir í máli
samkvæmt lögum þessum upplýsingar
sem eru í verulegum atriðum rangar eða augljóslega villandi.
Það varðar sektum eða fangelsi allt
að tveimur árum ef maður:
a. af ásetningi eða stórfelldu gáleysi nýtir
starfskrafta útlendings sem ekki
hefur atvinnuleyfi samkvæmt lögunum,
b. af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hefur milligöngu um
vinnu eða húsnæði fyrir útlending
eða gefur út eða miðlar yfirlýsingum, umsögnum eða skjölum til notkunar í máli
samkvæmt lögunum ef hann með því
notfærir sér ótilhlýðilega aðstæður útlendingsins,
c. af ásetningi með því að vekja, styrkja eða hagnýta sér
ranga eða óljósa hugmynd, eða á annan ótilhlýðilegan hátt, tælir
útlending til að koma til landsins í atvinnuskyni,
d. í hagnaðarskyni aðstoðar
útlending við að stunda atvinnu án tilskilinna leyfa.
Það varðar sektum eða fangelsi allt
að fimm árum að reka skipulagða starfsemi til að aðstoða
útlendinga við að starfa hér á landi án atvinnuleyfis samkvæmt
lögum þessum.
Þegar brot er framið í starfsemi
lögaðila má gera lögaðilanum
sekt skv. II. kafla A almennra hegningarlaga.
Tilraun eða hlutdeild í brotum á
lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra
hegningarlaga.
18. gr.
Heimflutningur.
Sá sem hefur milligöngu um að
útlendingur flytjist til landsins í atvinnuskyni án tilskilinna leyfa,
sbr. b- og c-lið 2. mgr. 17. gr., skal greiða allan kostnað við að flytja
útlending úr landi.
V. kafli. Samráð Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.
19. gr.
Samráðsnefnd.
Vinnumálastofnun og
Útlendingastofnun skulu koma á fót sérstakri samráðsnefnd vegna framkvæmdar
laga þessara.
Samráðsnefndin skal skipuð fjórum
mönnum og skipar hvor stofnunin tvo menn í nefndina. Skipunartími nefndarinnar
er tvö ár. Samráðsnefndin velur formann úr hópi nefndarmanna. Skal formaður
annast boðun funda og stjórn þeirra.
20. gr.
Vinnumálastofnun skal tilkynna allar atvinnuleyfisveitingar og synjanir til
Útlendingastofnunar.
Útlendingastofnun skal í
samráði við Vinnumálastofnun gefa út skírteini þar sem m.a. komi fram
upplýsingar um dvalarleyfi og réttindi
útlendingsins til að stunda vinnu á Íslandi. Þar skulu einnig vera
nauðsynlegar persónuupplýsingar. Heimilt er að krefja umsækjanda um atvinnuleyfi
um endurgjald fyrir skírteinið. Endurgjaldið skal ekki vera hærra en sem nemur
kostnaði við útgáfu þess.
VI. kafli. Málsmeðferð.
21. gr.
Almennar reglur um málsmeðferð.
Stjórnsýslulögin gilda um
meðferð mála nema annað leiði af lögum
þessum.
22. gr.
Málshraði.
Vinnumálastofnun skal taka
ákvörðun um hvort orðið er við umsókn um atvinnuleyfi svo fljótt sem verða má og
eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að umsókn berst.
Þegar fyrirsjáanlegt er að
afgreiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýst um
ástæðu tafanna og hvenær ákvörðunar er að vænta.
23. gr.
Leiðbeiningarskylda.
Í máli er varðar synjun eða
afturköllun atvinnuleyfis skal stjórnvald leiðbeina
útlendingi um kæruheimild skv. 24. gr.
laganna.
24. gr.
Kæruheimild.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um
synjun eða afturköllun atvinnuleyfis má kæra til félagsmálaráðuneytis.
Nú vill umsækjandi nýta sér
kæruheimild og er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning barst um
ákvörðun Vinnumálastofnunar. Að öðru leyti fer um kæru skv. VII. kafla
stjórnsýslulaga um stjórnsýslukæru.
VII. kafli. Ýmis ákvæði og gildistaka.
25. gr.
Samstarfsnefnd.
Félagsmálaráðherra skal skipa
samstarfsnefnd sem í eiga sæti fulltrúar Vinnumálastofnunar,
Útlendingastofnunar, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
Félagsmálaráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með
sama hætti.
Samstarfsnefndin skal kölluð
saman:
a. vegna almennra álitamála varðandi útgáfu
atvinnuleyfa,
b. þegar beiðnir berast til Vinnumálastofnunar um
atvinnuleyfi fyrir hópa útlendinga.
26. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.
…
[Ákvæði til bráðabirgða.
[Ákvæði a-liðar 14. gr. tekur þó ekki gildi að því er varðar rétt ríkisborgara
Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og
Ungverjalands til að starfa hér á landi fyrr en 1. maí 2006, sbr. þó 36. gr.
samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.]1)]2)
1)L.
139/2005, 16. gr. 2)L.
19/2004, 2. gr.