AÐALSÍÐA
AJ HÓPFERÐIR -
AJ EHF
![[Flag of the United Kingdom]](../images2/england_flag.jpg)
In English
Nr. 1. Lagt
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 23. október 2007
STEFNA
Friðrik
Haraldsson,
kt. 240746-2209,
Hverafold 48,
112 Reykjavík.
Gerir
kunnugt:
Að hann
þurfi að höfða mál á hendur A.J. ehf., kt. 600397-2499, Austurbrún
23, 105 Reykjavík til greiðslu reikninga vegna vinnuframlags
stefnanda.
Málflutningsumboð:
Stefnandi sjálfur.
Dómkröfur:
Stefnandi gerir
eftirfarandi dómkröfur: Að stefnda verði gert að greiða skuld sína við
stefnanda kr. 324.043,- ásamt dráttarvöxtum frá 10. ágúst 2007 til
greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr.
38/2001. Að auki er krafist málskostnaðar að álitum dómsins í samræmi
við XXI kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála,
sem beri vexti samkvæmt framangreindum lagaákvæðum.
Málavextir
og málsástæður:
Stefnandi vann fyrir AJ ehf við ökuleiðsögu í rútu þess dagana 2. til
10. júlí 2007. Munnlegt samkomulag varð um að stefnandi tæki að sér
ökuleiðsögu fyrir A,J, ehf., sem þau vantaði í þessa ákveðnu ferð
samkvæmt beiðni Auðar Kristmundsdóttur hjá A,J, ehf þar um. Ekki var
samið um kjör. Vegna ferðarinnar gaf stefnandi út reikning nr. 23
strax að lokinni ferð hinn 10. júlí 2007, samtals kr. 324.043,- þar af
er útlagður kostnaður kr. 18.823.-. Við bætist kostnaður vegna
innheimtu kr. 425,-. Gjalddagi reikningsins er útgáfudagur, 11. júlí
2007, Sbr. 49. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Reikningurinn
byggist á samningi Félags leiðsögumanna og Samtaka atvinnulífsins frá
2005 (gildir til 31. desember 2007) um kjör leiðsögumanna. Innheimta
hefur verið reynd og krafan viðurkennd í tölvupósti dags. 16. ágúst
2007 og 2. og 3. október 2007. Ítrekun um reikning og eindaga var
send í ábyrgðarpósti dags. 10. september 2007 og hefur henni ekki
verið sinnt.
Lagarök: Stefnandi
byggir kröfur sínar á meginreglu íslensks kröfuréttar um rétt sinn á
því að fá efndir kröfu sinnar að fullu sem fær m.a. stoð í VI. og VII.
kafla núgildandi laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Um gjalddaga
kröfunnar vísast til meginreglu 49. gr. sömu laga. Meginreglu
samningaréttarins um að samninga og aðra löggerninga skuli halda/efna
sbr. Lög nr.7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga og
sbr. Lög nr. 80/1938 um stéttafélög og vinnudeilur, 3. 5. og 6. gr.
Krafa um
vexti og dráttarvexti skv. III kafla laga um vexti og verðtryggingu
nr. 38/2001. Krafa um málskostnað er gerð í samræmi við XXI kafla
laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
Framlögð skjöl og skýrslur:
Við þingfestingu mun stefnandi leggja fram reikning nr. 23 dags. 11.
júlí 2007 ferðalýsingu, farþegalista, tölvupóst dags. 16. september og
2. og 3. október 2007 vegna innheimtutilrauna og tilkynningu vegna
eindaga reiknings, dagsetta 10. september 2007.
Áskilnaður er um framlagningu frekari gagna gefi málatilbúnaður og
andmæli stefnda tilefni til. sem og að
leiða vitni fyrir dóminn.
Fyrirkall:
Fyrir því
stefnist hér með Auði Kristmundsdóttur, kt. 260551-3619,
lögheimili: Austurbrún 23, 104 Reykjavík, sem framkvæmdastjóra og
stjórnarformanni A.J. ehf., kt. 600397-2499, Austurbrún 23, 104
Reykjavík, til þess að mæta fyrir hönd A.J. ehf. Þá stefnist Jóni
Sigurbrandi Knútssyni, kt. 230757-4969, stjórnarmanni og Margréti
Magnúsdóttur, kt 150774-3069, Austurbrún 23, varamanni stjórnar, á
dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð verður í dómshúsinu v/
Lækjartorg (Austurstræti 19 101 Reykjavík) dómsal 102, hinn 23.
október 2007 kl. 10:00, er mál þetta verður þingfest, til þess þar og
þá, ef ekki verður sátt í málinu, að sjá skilríki í dóm lögð á
dómkröfur og sókn sakar að hlýða, til saka að svara, á réttarkröfur
hlýða og leggja fram gögn af sinni hálfu. Ef ekki verður mætt af
hálfu stefndu við þingfestingu málsins má búast við að útivistardómur
gangi í málinu.
Stefnufrestur er 7 sólarhringar.
Reykjavík 9. október 2007.
Friðrik Haraldsson







 |