AJ A.J. HÓPFERÐIR EHF TOURS ÍSLAND TOURS Á ÍSLANDI AUÐUR KRISTMUNDSDÓTTIR JÓN KNÚTSSON HÓPFERÐABÍLAR RÚTA RTUR SKUTLA SKUTLUR SKUTLUÞJÓNUSTAN FERÐASKRIFSTOFA HÓPFERÐIR SÉRFERÐIR FERÐAÞJÓNUSTA FERÐALAG FERÐALÖG
AJ HÓPFERÐIR - AJ EHF - TOURS á ÍSLANDI
 
STEFNA - DÓMUR - AÐFARARGERÐ
ÞROTAMEÐFERÐ
[Flag of the United Kingdom]
In English
 

Undirritaður brenndi sig illa á samskiptum við fyrrum eiganda, framkvæmdarstjóra og prókúruhafa þessara fyrirtækja.  Hennar maður og meðeigandi, Jón Sigurbrandur Knútsson, og fyrirtækin eru skráð með lögheimili að Austurbrún 23, 104 Reykjavík. Þessi fyrirtæki eru

Tours á Íslandi ehf
670802-3450 (Sigurður Gizurarson hrl, Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnes, var skiptastjóri þrotabúsins.  Skiptum lauk 30. júní 2009.  Engar eignir fundust í búinu.).

AJ ehf 600397-2499 Ársreikningar. Nú í þrotamerðferð hjá skiptastjóra, Benedikt Sigurðssyni hdl. hjá Löggarði.

Skutluþjónustan ehf, 480906-1360 (Jónas Þór Guðmundsson, hrl, Strandgötu 25, 220 Hafnarfjörður, var skiptastjóri þrotabúsins.  Skiptum lauk 17. júlí 2009.  Engar eignir fundust í búinu.  Enn þá skráð með hópferðaleyfi hjá vegagerðinni í október 2009).

NK þjónustan ehf
 480906-1360 (var skráð með póstfang að Strandgötu 25, 220 Hafnarfjörður, nýr bt-aðili Jónas Þór Guðmundsson hrl.), með ISAT 95 númer 60.23.0 (aðrir farþegaflutningar á vegum) og ISAT 2008 númer 49.39.0 (aðrir farþegaflutningar á landi, s.s. farþegaflutningar með ökutækjum, sem dregin eru af mönnum eða dýrum).   (hlutafélagaskrá).
Hinn 23. júlí 2009 liggja ekki fyrir upplýsingar um stöðu NK þjónustunnar ehf aðrar en þær, að fyrirtækið er skráð hjá fyrirtækjaskrá RSK með sömu kennitölu og Skutluþjónustan ehf., sem laut þrotaskiptum 17. júlí 2009 (ekki skráð í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra í desember 2009).
Hvaða hrærigrautur er/var þetta?

Konson ehf 480396-2439. Grensásvegi 44, 108 Reykjavík, pósthólf 38, 202 Kópavogur, stofnað 5. marz 1996, VSK nr. 57142 stofnað 1998 og lokað 31. desember 2008, enda þjónustan nr. 49.39.0, aðrir farþegaflutningar á landi, ekki VSK-skyldir.  Ársreikningar.  Rekstrarform fyrirtækisins er E1.  Hér er kominn einn anginn í viðbót af fyrirtækjaflækjunni, sem heldur afskiptalaust áfram sama rekstri.  Þetta fyrirtæki virðist hafa verið á lager til að þjóna inngripatilgangi, ef eitthvað færi nú á verri veginn hjá hinum.  Hvaðan koma þessu fyrirtæki eignir til að halda starfseminni áfram?

Tengsl eru milli allra þessara fyrirtækja.  Hluthafar voru hinir sömu í flestum þeirra og rekja má persónutengsl.  Því virðist grunsamlegt, að tvö þeirra voru afgreidd greiðlega sem eignalaus frá skiptastjórum og spurningin er, hvort hið þriðja, sem er enn þá í höndum skiptastjóra, fái jafn greiða meðferð í kerfinu.  Sannist, að þátttakendur í þessum ljóta leik hafi gerzt sekir um vanrækslu og fyrrum eigendur um ólöglega færslu eigna milli fyrirtækja eða undanskot, verður að taka þessi mál upp að nýju og eigendur verða þá gerðir persónulega ábyrgir fyrir skuldum fyrirtækjanna.  Fordæmi fyrir slíku er til í hæstarréttardómi.

Samkvæmt upplýsingum frá RSK (síðast 23/7 '09) eru engar hömlur á stofnun fyrirtækja aðrar en getið er um í umsókn.  Umsækjendur undirrita viðkomandi eyðublöð, sem kveða á um, að allar upplýsingar séu réttar og sannar.  Fyrirtækjaskrá RSK athugar ekki sérstaklega sakaskrá umsækjanda og skyggnist heldur ekki í gjaldþrotaskrá.  Allir, sem undirrita umsókn með röngum upplýsingum, gerast brotlegir við lög.

Framkvæmdastjórinn hringdi til undirritaðs og þrábað hann að annast ökuleiðsögu dansks hóps frá K. Torben Rasmussen (Team-Island; fyrrum forstjóri Norræna hússins í Reykjavik) í níu daga frá 2. - 10. júní 2007.  Undirritaður kvaðst því miður ekki geta tekið þetta að sér vegna annarra skuldbindinga, en þrábeiðni vegna sérstakra aðstæðna og skamms fyrirvara um að sjá í gegnum fingur ollu því eftir langt þóf í símanum, að það tókst að telja mér hughvarf og ég hliðraði til af góðmennsku einni.

Rúta, sem AJ hópferðir áttu, var notuð í verkefnið.  Hún var gömul og slitin, löngu komin af fótum fram og þurfti að vera í gjörgæzlu til að tryggja, að hún kæmist með okkur allan hringinn í kringum landið.  Það tókst með ágætum og allir farþegarnir komu hinir ánægðustu til baka (skv. netpósti frá K. Torben).  Reikningur vegna ferðarinnar (ásamt reikningsuppgjöri) var sendur AJ hópferðum strax að lokinni ferð.

AJ hópferðir greiddu kr. 60.000.oo inn á reikning ökuleiðsögumannsins til að hann hefði peninga fyrir eldsneyti og smurolíu á rútuna.  Þessi upphæð dugði ekki, þannig að aukaútgjöld urðu á nítjánda þúsund.  Þau fengust ekki greidd fyrr en 3. október 2007.

Framkvæmdastjórinn og maður hennar voru reglulega áminnt um, að þau skulduðu undirrituðum laun fyrir ferðina (+aukaútgjöld).  Framkvæmdastjórinn svaraði eitt sinn netpósti og lofaði að greiða skuldina (324.621.oo) eftir næstu helgi.  Ekkert gerðist og loks var fyrirtækinu stefnt fyrir héraðsdóm 23. október 2007 til greiðslu skuldarinnar.

Aðstandendum fyrirtækisins tókst með japli og málalengingum að teygja málið fyrir héraðsdómi fram í sumarbyrjun 2008, þannig að dómurinn féll ekki fyrr en 4. júlí.

Fæstir, sem lenda í klóm svona óheiðarlegra siðleysingja og óreiðufólks, hafa nennu eða úthald til að knýja fram rétt sinn og láta þar við sitja án þess að vara aðra við.  Mér er kunnugt um fleiri, sem fyrirtækin hafa hýrudregið, farið illa með, niðurlægt og forsmáð.  Íslenzka ferðaþjónustan þarf að losna við svona óþjóðalýð, því hann skilur eftir sig sviðna jörð og eyðileggur orðstír hins stóra meirihluta, sem rækir rekstur af alúð og heiðarleika.

Fyrirtækin eru með langan skuldahala.  Hið opinbera er búið að gera tilraun til fjárnáms án árangurs.  Sömu sögu er að segja um undirritaðan (2. október 2008; aðfarargerð).

Fyrirtækin voru og eru á kennitölu-, skráningar- og nafnaflakki eins og sjá má hér að ofan, þannig að eitt þeirra kann  að halda áfram rekstri, þótt þrjú séu horfin af yfirborðinu og skiptameðferð þrotabúa annaðhvort lokið eða að ljúka.  Engin lög virðast banna þessum ósvífnu þrjótum að stofna ný fyrirtæki á rústum hinna horfnu.  Hið opinbera kærir sig kollótt um skrautlegan feril aðstandenda.  Það er þess vegna, sem þessar síður voru opnaðar.  Undirritaður vill með þeim leggja sitt á vogaskálarnar öðrum til viðvörunar.

Sex hótanir hafa borizt í tengslum við þessar síður, sem rekja ekkert annað er skjalfestan sannleika og ætti að rukka þetta ofbeldisfólk fyrir hverja þeirra.  Raunhæfur möguleiki er að selja kröfuna með álagi fyrir hverja þessara sex hótana, kr. 100.000.oo x 6, auk vaxta á álagið frá 01.12.08.  Þá verða kr. 1.227.944.oo til innheimtu frá 1. apríl 2009.  Einhver kynni að sjá hag í að kaupa kröfuna á hagstæðum kjörum og innheimta hana með eigin aðferðum, ef ekkert fæst úr þrotabúinu.

13.11.08.  Hótun nr. 6 barst nafnlaus um bréfalúguna um eittleytið í dag.  Þá var Jón Sigurbrandur Knútsson á bílastæði verzlanamiðstöðvarinnar við Hverafold 1-3 í bifreiðinni VR 394.  Bókun hjá Lrh 18.11.08.


28.01.09.  Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag gjaldþrotaúrskurð í máli Tollstjóra gegn AJ ehf.  Þrotabúið verður í höndum skiptastjóra.  Grunur leikur á ólöglegri eignafærslu úr búinu.

02.02.09.  Eftir gjaldþrotaúrskurð héraðsdóms var Benedikt Sigurðsson, lögmaður hjá Löggarði, skipaður skiptastjóri þrotabús AJ ehf.

01.03.09.  Krafa var lögð fram í þrotabú A.J. ehf.  Jafnframt var lögð fram kæra vegna rökstudds gruns um ólöglegar eignatilfærslur og/eða undanskot úr þrotabúinu, sem skiptastjóra ber að rannsaka. 
Krafa og kæra

26.05.09.  Krafan er enn þá í meðferð skiptastjóra.  Eigendur fyrirtækisins hafa ekki sýnt nein merki um iðrun og yfirbót.  Þeir eru greinilega staðráðnir í því að stela þessum peningum og verða því sem áður ótíndir þjófar í mínum augum og reyndar fleiri.  Lögð verður sérstök áherzla á frekari kynningu þessara dusilmenna innan ferðaþjónustunnar.

23.07.09 var Stefáni Erni Guðjónssyni hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sent eftirfarandi:
Ég leit við hjá þér í morgun og sendi þér eftirfarandi upplýsingar, sem þú baðst um.  Vonandi duga þær, en sendi þér samt vefslóðina
http://www.icelandonline.is/aj_audur_jon/aj_hopferdir_tours_a_islandi.htm, sem getur e.t.v. varpað skýrara ljósi á málið.
Ég ber rökstuddan grun í brjósti um misferli í þessum fyrirtækjum, sem hafa verið allri ferðaþjónustunni þyrnir í augum vegna siðferðisbrests og rýrt orðstír greinarinnar í heild.
Vonandi sér efnahagsbrotadeild sér fært að skoða þessi fyrirtæki og komast að afdrifum eigna, sem virðast hafa gufað upp.

Þessi síða var sett upp 21. október 2007.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - fridrikmh@simnet.is             HEIM