HÓTANIR

01.11.08.  Klukkan 19:51:50 hringdi farsíminn minn.  Símtalið var 9 mínútna og 5 sekúndna langt. Þar kynnti sig maður, sem sagðist heita Konráð Eyjólfsson (iðnrekstrarfræðingur; 280654-5909).  Hann væri eigandi og prókúruhafi Skutluþjónustunnar ehf og vera búinn að leggja ómælda fjármuni til uppbyggingar fyrirtækisins.  Honum þætti því ólíðandi, að þess væri getið á vafasaman hátt á vefsíðum mínum um viðskiptahætti Auðar Kristmundsdóttur heitnnar og fyrirtækja hennar AJ ehf. og Tours á Íslandi ehf.  Hann viðurkenndi þó, að Auður heitin væri skráð framkvæmdastjóri og prókúruhafi Skutluþjónustunnar í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra

Ég sagði honum, að ég hefði ekki ástæðu til að rengja hann, en heldur ekki til að trúa honum án frekari athugunar.  Sjálfsagt væri að skoða málið, en það væri ekki hægt fyrr en næstkomandi mánudag, því opinberar stofnanir væru lokaðar.  Ég spurði hann, hvort hann hefði einhver ráð til að sanna eignarhald sitt strax, en hann tók því óstinnt upp og lét í veðri vaka, að ég ætti ekki von á góðu, ef vefsíðurnar um misgerðir Auðar heitinnar (og Jóns) yrðu ekki fjarlægðar af veraldarvefnum.

Ég spurði hann, hvort hann ætti ekki greiðan aðgang að sambýlisfólkinu í Austurbrún 23, þannig að hann gæti leyst málið þeim megin frá, því ég þyrfti ekki aðra hvatningu en að fá peningana, sem ég á inni.  Hann svaraði á þann veg, að hann ætti auðveldan aðgang, en lét ekki í ljósi áhuga á milligöngunni.

Konráð notaði mestan hluta þessa samtals til að koma sinni hlið málsins á framfæri og ég lét sem minnst uppi, notaði lítið af þessum níu mínútum til að verja minn málstað, því ég álit, að hann sé nægilega skýrður á vefsíðunum.

Konráð hringdi aftur kl. 15:00 sunnudaginn 2. nóv. 2008.  Ég var við akstur og svaraði ekki.

Almenningur fær ekki aðgang að upplýsingum um eignarhald aðila í fyrirtækjum nema gegn gjaldi, ef þær eru þá skráðar, en Auður er skráð sem ábyrgðarmaður og stjórnarmaður í þessu fyrirtæki.  Hinn 18.01.09 fékk ég upplýsingar úr
hlutafélagaskrá.  Þar sést samtvinningurinn og skrítnar skráningar.

02.11.08.  Þá fóru að berast illskiljanlegur og ógnandi netpóstur frá Konráði og farið var með hann til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til bókunar.

07.11.08, kl. 18:35, voru slegin bylmingshögg á útihurð heimilis míns.  Utan dyra stóð Jón Sigurbrandur Knútsson bak við son sinn og tvo félaga hans og hinn fimmti stóð fjær, nærri götuhorni hússins.  Ungu mennirnir, einkum sonur Jóns, létu dólgslega og vildu líta ógnvekjandi út.  Sonur Jóns sagði án frekari tafa:  „Lokaðu síðunum!” og tönnlaðist síðan á:  „Hvernær ætlarðu að loka síðunum?”

Ég virti ungu mennina tæplega viðlits, en spurði Jón, hvenær hann hyggðist borga mér skuldina.  Það kom  á hann og þó einkum á ungu mennina þrjá, sem fylgdu feðgunum.  Jón minntist eitthvað á fjárhagslega erfiðleika og ég benti honum á, að hann hefði ekki eytt miklum tíma í samningstilraunir.  Hann sagði að það þýddi ekki.  Mér sýndist á ungu mönnunum, að þeir hefðu ekki hugmynd um stöðu Jóns, Auðar heitinnar og fyrirtækis þeirra gagnvart mér, því þeir höfðu hægar um sig eftir þessi orðaskipti.  Konan mín kom og tók sér stöðu við hlið mér í dyrunum.  Ég benti henni á Jón og sagði henni, að þarna væri maðurinn, sem skuldaði mér launin síðan sumarið 2007.  Hún spurði Jón, hvenær hann ætlaði að greiða launin mín og son Jóns að nafni.  Jóni varð fátt um svör og sonurinn sagði, að henni kæmi það ekki við.

Ég var sífellt spurður, hvað ég hyggðist gera og sagðist að lokum ekkert annað geta gert en að kalla til lögregluna.  Síðan skráði ég númer beggja bílanna, sem fimmmenningarnir komu með á staðinn.  Ég gaf lögreglunni allar upplýsingar um atvikið, afhenti afrit af bókun hjá Lrh og afrit af síðasta netpósti Konráðs.

Konráð Eyjólfsson er búinn að stimpla sig inn í atburðarrásina, svo ekki verður aftur snúið.  Ungu mennirnir, sem komu með Jóni Knútssyni í heimsókn 7/11, þurfa ekki að tengjast málinu nánar, ef þeir láta ekki etja sér út í fleiri óhæfuverk.  Það yrði mikið ógæfuspor fyrir þá og skipuleggjendur slíkra aðgerða.

Nöfn tveggja hinna fimm óboðnu gesta og farartækin, sem þeir komu með:
Jón Sigurbrandur Knútsson, 230757-4969, Austurbrún 23, 104 Rvík.  SD-144, sprinter, skráð eign Skutluþjónustunnar ehf. nú NK Þjónustunnar.
Jón Knútur Jónsson, 230786-2169, Skaftahlíð 18, 105 Rvík.  VR-394, volkswagen transporter, skráður eign Lýsingar hf. Suðurlandsbraut 22.  Skráður umráðamaður var:  Auður Kristmundsdóttir, Austurbrún 23, 104 Rvík.

Þrjú nöfn vantar hér.  Eitt er komið upp á yfirborðið.  Hin eru á næstu grösum.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - fridrikmh@simnet.is             HEIM