|
KRAFA TIL SKIPTASTJÓRA
OG KÆRA VEGNA GRUNS UM UNDANSKOT
Reykjavík, 1. marz 2009.
Hr. skiptaráðandi,
Benedikt Sigurðsson hdl.,
Löggarði, Húsi verzlunarinnar,
Kringlan 7,
103 Reykjavík.
Efni: Krafa í þrotabú A.J. ehf., Austurbrún 23, 104 Reykjavík, kt.
600397-2499.
Krafan er byggð á dómi héraðsdóms Reykjavíkur, E-693/2007, 4. júlí
2007. Dómurinn er byggður á kjarasamningi Vinnuveitendasambands
Íslands og Félags leiðsögumanna, svo að krafist er forgangs launakröfu.
Krafan er eftirfarandi:
Höfuðstóll 304.795.oo
Dráttarvextir 01.09.07-31.03.09 173.733.oo
Málskostnaður
30.000.oo
Dráttarvextir 04.07.08-31.03.09 8.100.oo
Fjárnámsgjald 4.100.oo
Dráttarvextir 02.10.08-31.03.09 738.oo
Lögvörn v/fjárnáms 6.847.oo
Dráttarvextir 15.10.08-31.03.09 1.129.oo
Kostnaður vegna kröfugerðar í þrotabú 15.000.oo
Heildarupphæð 544.442.oo
========
Meðfylgjandi er dómsúrskurður E-693/2007 samkvæmt ráðum skiptastjóra.
Önnur gögn eru til reiðu, verði þeirra óskað.
Virðingarfyllst,
Friðirk Haraldsson, 240746-2209,
Hverafold 48, 112 Reykjavík,
Símar: 567-6242 / 897-1233
Netfang:
fridrikmh@simnet.is
Hr. skiptaráðandi,
Benedikt Sigurðsson hdl.,
Löggarði, Húsi verzlunarinnar,
Kringlan 7,
103 Reykjavík.
Efni: Rökstuddur grunur um ólöglega eignatilfærslu. Þrotabú A.J.
ehf.
Undirritaður, kröfuhafi í þrotabú A.J. ehf., 600397-2499, Austurbrún
23, 104 Reykjavík, hefur ástæðu til að ætla, að eignir hafi verið
fluttar úr fyrirtækinu í Skutluþjónustuna ehf. 480906-1360, Austurbrún
23, 104 Reykjavík. Þá er einnig ástæða til að gruna eigendur
þessara fyrirtækja um eignaflutning frá Tours á Íslandi, 670802-3450,
Austurbrún 23, 104 Reykjavík til framangreindrar Skutluþjónustu.
Skiptastjóri er vinsamlegast beðinn um að athuga nákvæmlega bókhald
þessara fyrirtækja, einkum með tilliti til eignatilfærslna, sem geta
e.t.v. orðið til þess, að hluthafar A.J. ehf. yrðu ábyrgir fyrir
greiðslu þrotabúsins beint (sjá dóm hæstaréttar 292/2003).
Meðfylgjandi er afrit úr hlutafélagaskrá.
Virðingarfyllst,
Friðirk Haraldsson, 240746-2209,
Hverafold 48, 112 Reykjavík,
Símar: 567-6242 / 897-1233
Netfang:
fridrikmh@simnet.is
----- Original Message -----
From:
Fridrik Haraldsson
To:
benlog@simnet.is
Sent: Wednesday, March 25, 2009 5:02 PM
Subject: Þrotabú AJ ehf.
Sæll Benedikt,
Ég vil vekja athygli þína á breytingum í umhverfi þrotabúsins.
Skutluþjónustan ehf var endurskírð fyrir skömmu og heitir nú
NK Þjónustan ehf.
Grunur leikur á eignatilfærslu frá AJ ehf og mögulega Tours in Iceland
ehf til þessa fyrirtækis.
Kveðjur,
Friðrik Haraldsson
 |