| 
           
                    
                     Karnak
        er í Kena í Efra-Egyptalandi.  Hin
        miklu hof í Karnak teygjast ca 3 km norðaustur frá Luxor, þar sem
        áður stóð gamla ríkisborgin Þeba í nágrenni nútímaþorpsins
        Karnak.  þar er m.a. stóra Amunhofið, Konshofið, hátíðarhof Tútmosar
        III auk fleiri bygginga, sem krefjast verulegs skoðunartíma. 
           
                    Steinlögð
        gata, girt liggjandi hrútstyttum með andlit Amenofis III á milli
        framlappanna, lá á milli Luxorhofsins og hofsvæðisins í Karnak í
        norðri.  Þar er
        svingsgatan fyrir framan Konshofið en hún er hluti þessa gamla 'hrútastrætis'. 
        Hrútastrætið liggur að hliði, sem Ptolemaios III Euergetes I reisti og í því 
          er gróp með vængjaðri sól, sem er suðvesturinngangur **hofssvæðisins í 
          Karnak.  Lágmyndirnar
        sýna byggjandann færa þebísku guðunum fórnir. 
           
          Handan
        hliðsins leiðir röð svingsa, sem Ramses XI (síðasti faraóinn af
        þeirri ætt) reisti, að Konshofinu. 
        Konshofið var helgað tunglguðnum, syni Amons Ra og Mut og er
        stórkostlegt dæmi um slíkar hofbyggingar nýja ríkisins. 
        Ramses III stofnaði helgidóminn, þótt skreytingar og lágmyndir,
        að undanskildum innstu klefum og sölum hofsins, séu frá tímum
        Ramses IV og XII og prestkonungsins Herihor, eftirmanna hans. 
           
          Inngangurinn
        í hofið er 32 m langur, 10 m breiður og 18 m hátt turnhlið. 
        Í forhlið hans eru skot fyrir flaggstangir. 
        Lágmyndirnar á turnunum sýna æðstaprest 21. höfðingjaættarinnar
        með konu sinni að færa ýmsum guðum fórnir. 
        Framan við hvern turn var súlnasalur með tréþaki. 
        Undirstöður súlnanna eru einu merkin um þessa súlnasali. 
           
          
        **Stóra
        Amunhofið
        var að mestu byggt á tímabilinu
        1661-1785 f.Kr. eftir ýmsum teikningum, því að hver faraóinn á fætur
        öðrum reyndi að taka fyrirrennurum sínum fram við skreytingar þess
        og glæsileika. 
           
          
          
        *Helgidómur Ptah,
        verndarguðs Memfis, var byggður á dögum Thutmosis III en Eþíóparnir
        Schabako og nokkrir Ptolemeanna stækkuðu það og endurnýjuðu.  |