Luxor skoðunarvert Egyptaland,
Flag of Egypt


LUXOR
Skoðunarverðir staðir
EGYPTALAND
.

.

Utanríkisrnt.

Booking.com

Memnon Colossi**Luxorhofið.  Amenophis II lét reisa það úr sandsteini á grunni eldri helgidóms.  Egyptar nefndu það Apet Amun resjet (suðurfrúahús Amuns).  Það var helgað Amun, konu hans Mut og tunglguðnum Kons, syni þeirra.  Hofið var 190 m langt og breiðast 55 m.  Í því stendur m.a. austureinsteiningurinn (óbeliskan) á upprunalegum stað.  Hinn stendur á Concorde-torginu í París síðan 1836.  Á einsteinungnum stendur, að Ramses II hafi reist skrauthýsin sunnan hans Amun til heiðurs.

**Egypzka listasafnið er u.þ.b. 1 km norðan hofsins, hálfa leið til Karnak.  Safnið var opnað árið 1975.  Þar er einkum að finna muni, sem hafa nýlega verið uppgötvaðir í Þebu.  Stórt styttuhöfuð af Amenophis II úr rauðleitu graníti (frá Kurna) og höfuð kýrgyðju (úr gröf Tutankamus) er meðal þeirra auk Echnaton múrsins, sem var endurhlaðinn þar.  Hann er 17,17 m langur og 3 m hár með 283 lágmyndum, sem málaðar voru á sandsteininn (upphaflega 6000 alls).

**KARNAK
Karnak er í Kena í Efra-Egyptalandi.  Hin miklu hof í Karnak teygjast ca 3 km norðaustur frá Luxor, þar sem áður stóð gamla ríkisborgin Þeba í nágrenni nútímaþorpsins Karnak.  þar er m.a. stóra Amunhofið, Konshofið, hátíðarhof Tútmosar III auk fleiri bygginga, sem krefjast verulegs skoðunartíma.

Steinlögð gata, girt liggjandi hrútstyttum með andlit Amenofis III á milli framlappanna, lá á milli Luxorhofsins og hofsvæðisins í Karnak í norðri.  Þar er svingsgatan fyrir framan Konshofið en hún er hluti þessa gamla Hrútastrætis.  Hrútastrætið liggur að hliði, sem Ptolemaios III Euergetes I reisti og í því er gróp með vængjaðri sól, sem er suðvesturinngangur **hofssvæðisins í Karnak.  Lágmyndirnar sýna byggjandann færa þebísku guðunum fórnir.

Handan hliðsins leiðir röð svingsa, sem Ramses XI (síðasti faraóinn af þeirri ætt) reisti, að Konshofinu.  Konshofið var helgað tunglguðnum, syni Amons Ra og Mut og er stórkostlegt dæmi um slíkar hofbyggingar nýja ríkisins.  Ramses III stofnaði helgidóminn, þótt skreytingar og lágmyndir, að undanskildum innstu klefum og sölum hofsins, séu frá tímum Ramses IV og XII og prestkonungsins Herihor, eftirmanna hans.

Inngangurinn í hofið er 32 m langur, 10 m breiður og 18 m hátt turnhlið.  Í forhlið hans eru skot fyrir flaggstangir.  Lágmyndirnar á turnunum sýna æðstaprest 21. höfðingjaættarinnar með konu sinni að færa ýmsum guðum fórnir.  Framan við hvern turn var súlnasalur með tréþaki.  Undirstöður súlnanna eru einu merkin um þessa súlnasali.

**Stóra Amunhofið var að mestu byggt á tímabilinu 1661-1785 f.Kr. eftir ýmsum teikningum, því að hver faraóinn á fætur öðrum reyndi að taka fyrirrennurum sínum fram við skreytingar þess og glæsileika.

*Helgidómur Ptah, verndarguðs Memfis, var byggður á dögum Thutmosis III en Eþíóparnir Schabako og nokkrir Ptolemeanna stækkuðu það og endurnýjuðu.

*ÞEBA
Þeba er í Efra-Egyptalandi, 670 km sunnan Kaíró og 210 km norðan Aswan.  Þeba var fyrrum höfuðborg og trúarmiðstöð Egyptalands á tímum mið- og nýja ríkisins (12.-21.ætt).  Þeba nær yfir stórt svæði í og í kringum Luxor og Karnak auk grafasvæða, sem teygj-ast inni dali Lýbísku eyðimerkurinnar á vesturbakkanum.

Örlög Þebu í gamla ríkinu eru ókunn.  Egypzka nafnið var 'Ueset' eða 'Newt' (borgin), sem biblíunafnið No eða No-Amun var til úr.  Vesturbakkinn var kallaður 'Svæðið vestan Ueset'.  Ekki er kunn ástæðan fyrir nafngift Grikkja, Thebai.  Rómverjar nefndu borgina 'Diospolis' (Tveggjaguðaborgin; Seifur og Amun).  Ueset var héraðshöfuðborg og hafði eigin fursta yfir sér.  Þá, á dögum 6. ættar, voru grafasvæðin við Dra Abu el-Naga á vesturbakkanum.  Aðalguðinn var stríðsguðinn Mont (með fálkahöfuðið), hinn sami og dýrkaður var í Medu og Hermonthis.

Þeba fór fyrst að blómstra, þegar furstar miðríkisins höfðu hekið sér konungsnafn.  Samtímis varð Amun frá Karnak aðalguðinn.  Bezt var gengi Þebu frá og með frumdögum nýja ríkisins.  Baráttunni gegn Hyksosi var stjórnað frá Þebu og upphaf sameiningar ríkisins á sér rætur þar.  Upp frá því varð Þeba aðalsetur faraóanna um aldir og borgin varð mjög auðug fyrir ránsfeng og skatta frá löndum, sem Egyptar herjuðu á og lögðu undir sig  i suðri.  Guðinn Amun fékk sinn skerf, því að hin skrautlegu hof eru frá þessum tíma.  Helgidómur Epetesouet í Karnak var stækkaður auk hofs Apetresjet í Luxor, þar sem syðra konuhúsið var byggt.  Æðstu menn ríkisins hrósuðu sér af því að vera meðal presta Amuns.  Hofskólarnir blómstruðu og faraóarnir og konungarnir gáfu engum öðrum guði stærri gjafir.  Þeba var austurlenzk heimsborg, sem víða var getið, s.s. spámaðurinn Nahum (3,9), Homer (Ilionskviða 9. vers 381-4).  Sígildir höfundar síðari tíma nefndu hana einnig, s.s. Diodor, Strabo, Plinius, Stephanus frá Bysans o.fl.

Á valdadögum Haremhabs, Sethosar I og Ramsesar II voru skemmdar myndir og áletranir í hofunum lagfærðar og auður þeirra jókst.  Samkvæmt heimildum voru 2/3 hlutar allra hofa í landinu á dögum Ramsesar Ii helgaðir Amun og 75% allra fórnargjafa féllu honum í hlut, t.d. fékk hann 86.500 hinna 113.500 þræla, sem gefnir voru guðunum.

Velgengni Amuns steig æðstuprestum hans svo til höfuðs, að þeir sölsuðu undir sig konungsvöldin um tíma.  Á dögum 21. ættar, þegar bústaður faraóanna var fluttur til óshólmanna, tapaði Þeba miklu af hlutverki sínu.  Samt hélt hún allmiklu vægi í Efra-Egyptalandi undir stjórn æðstuprestanna auk þess, að borgin var óháðari faraóunum en aðrar.

Á 7.öld rændu assýrískir herir borgina.  Eþíópar gerðu Þebu að aðalborg sinni og dýrkuðu Amun, færðu honum miklar fórnir og gerðu lágmyndir honum til dýrðar.  Á sama tíma var borgin Sais uppáhald furstanna.  Herir Kambyses, sem ruddust inn í Egyptaland virðast lítið eða ekkert hafa skemmt Þebu.  Ráðamenn Egyptalands, sem losuðu landið undan yfirráðum Persa um tíma, s.s. Nektanebos II, stækkuðu Monthofið með stóru hliði.

Á valdatíma Alexanders mikla og Ptolomea hnignaði Þebu.  Jafnvel þótt ýmsar byggingar í Þebu hafi ptolomeískt yfirbragð, átti hún í vonlausri samkeppni við borgina Ptolemais, sem Ptolomaios I stofnaði.

Þegar Efri-Egyptar, undir stjórn Epiphanesar, gerðu uppreisn gegn Makedónum, sem þá ríktu, hlaut hin heillum horfna Þeba sjálfstæði enn þá einu sinni undir stjórn borgarbúa.  Uppreisnin var fljótlega bæld niður og Þeba.  Uppreisnin var fljótlega bæld niður og Þeba varð að venjulegri héraðshöfuðborg áður en hún leystist upp í mörg smáþorp.  Eftir eina uppreisnartilraunina í viðbót (Ptolemaios IX og Soter II) og aðra gegn skattpíningu Rómverja, sem Cornelíus Gallus ríkisstjóri barði niður með harðri hendi, stóð varla steinn yfir steini í borginni.  Þegar Strabo ferðaðist um Egyptaland 24-20 f.Kr. fann hann bara stök þorp, þar sem Þeba hafði staðið.  Á rómverska keisaratímanum er Þebu aðeins getið sem staðar, sem forvitnir ferðamenn heimsæki til að dást að hofrústum og Memnonrisunum.

Eftir að kristni var tekin upp og eftir tilskipanir Þeodósíusar var mörgum gripum og minjum frá heiðnum sið rutt brott, s.s. áletrunum og lágmyndum.  Níl flæddi árlega upp að og umhverfis Karnak- og Luxorhofin og skildi eftir salt í jarðveginum, sem smáskemmdi mannvirkin.  Mörgum gröfum og grafhýsum var breytt í bústaði, hofum var breytt í kirkjur og klaustur.  Hús voru byggð milli súlna Luxorhofsins og höggmyndir byggðir brenndar í kalk.

**Aðalskoðunarstaðir Þebu á austurbakkanum eru Karnak- og Luxorhofin.
Öll hofin á vesturbakkanum snúa þröngum inngöngum sínum að fljótinu.  Lengdaröxull þeirra hefur sa-nv stefnu, sem vísað er til í texta sem n-s.  Gott er að hafa með sér vasaljós í skoðunarferðir þangað.  Vegna þrengsla og mannfjölda er oft þungt loft og heitt í óloftræstum grafhýsunum og skoðunarröðin ræðst oft af því, hve mikil bið er við hvert þeirra.  Einnig er grafhýsunum lokað reglulega, þannig að erfitt er að segja til um það fyrirfram, hver þeirra verða skoðuð.

**Á vesturgrafasvæði Þebu eru líka hof, helguð Amun og konungum fyrri tíma.  Þau eru flest frá tíma nýja ríkisins og við þau standa bústaðir prestanna, bókasafnsbyggingar og skólar.  Einnig eru þar trjálundir, tjarnir, kornskemmur, hesthús, bústaðir hermanna, sem stóðu vörð um þau, og fangelsi.  Verkamenn hofanna bjuggu í þorpum.  Þeir voru m.a. steinsmiðir, málarar, byggingarverkamenn og síðast en ekki sízt smyrjarar, sem undirbjuggu lík til greftrunar.  Þannig myndaðist oft heil borg í tengslum við hofin líkt og við Mamelukgrafirnar í Kaíró.  Furstarnir og ofurstar grafahermannanna skipuðu sérstaka embættismenn til að stjórna slíkum samfélögum.

Kurna, Dra Abu el-Naga og El-Tarif.  Fjórum km norðan legukantanna við Níl er *grafarhof Sethosar I frá Kurna.  það var helgað Amun og föður þess, sem lét reisa það, Ramses I.  Ramses II endurnýjaði hofið og lét ljúka byggingu þess með lágmyndum og áletrunum, sem minna helzt á höggmyndirnar í Abydos, hvað fegurð snertir.  Hofið var 158 m langt en nú standa bara eftir helgidómurinn, salir hans og herbergi, alls 47 m.

Frá Sethoshofinu liggur vegurinn í átt til hólanna við rætur eyðimerkurfjallanna, þar sem er þorp og dauðraborgin Dra Abu el-Naga.  Kleggagrafirnar eru frá tímum nýja ríkisins.  Mælt er með því að skoða eftirtaldar grafir: Nr. 17, gröf Neb-Amun (18.ætt) konunglegs læknis og nr. 19, gröf Amenmose (19.ætt) æðstaprests hofs Amenophis I.

Á svæðinu norðan Sethoshofsins eru grafir konunga og fursta frá El-Tarif frá dögum 11.ættar.  Mikil vinna hefur verið lögð í að höggva út úr klettunum allt að 300 m langa og 60 m breiða forgarða.  Falskar súlur við enda þeirra leiddu til nafnsins raðgrafir (Saff-grafir).  Grafhvelfingarnar sjálfar eru litlar og hóflega skreyttar en hafa varðveitzt vel.  Þær, sem mælt er með að skoða, eru grafir konunganna Antefs I, II og III.

Dalur konunganna:  Frá Sethoshofinu liggur góður vegur 5 km í norðvestur inn í dalinn, sem krýndur er náttúrulegum fjallspýramída.  Hér létu konungar 18., 19. og 20. ættar leggja sig til hinztu hvíldar.  Grafirnar eru höggnar í klettaveggina með löngum göngum.  Þær áttu aðeins að vera umbúðir um líkkistur, því hof þeirra voru reist undir beru lofti.  Venjulega lágu 3 gangar inn í bergið niður á við.  Við hinn fyrsta voru stundum hliðarherbergi og í öðrum og þriðja voru veggjaskot fyrir áhöld hinna látnu.  Handan forsalar var oft aðalsalur með súlum, þar sem var gryfja í gólfinu fyrir stóra granítkistu.  Umhverfis vour hliðarherbergi.  Til þess að ferðalag hinna látnu á báti um helheima með sólguðnum kæmi ekki á óvart og hinn látni kynni sig sem bezt, voru myndskreyttir textar málaðir á veggi og loft til leiðbeiningar.  Þessir textar eru aðallega úr tveimur bókum: "Hvað er í heiminum fyrir handan" og „Bók hliðanna".  Nefna mætti til viðbótar bókina „Heljarför sólguðsins".  Auk textanna úr þessum bókum er dýrðarboðskapur og lof um sólguðinn í máli og myndum og formúlur um siði og venjur við útfarir og hvernig hinum látna er sýnd virðing við styttu hans, þar sem skilinn var eftir matur og drykkur til ferðarinnar.

**Skoðunarferð í Konungadalinn er einn hápunktanna í Egyptalandsferðum en mannmergðin og hitinn gera þær erfiðar.  Hægt er að slappa af í veitingahúsinu í dalnum.  Erfitt er að gefa upp skoðunarröð grafhýsanna af sömu ástæðum og að framan er getið.  Sjá nánar á korti legu grafhýsanna.

**Deir el-Bahari (Norðurklaustur):  Hofið í Deir el-Bahari er mjög fallegt við rætur þverhníptra kletta eyðimerkurfjallanna, gulllitra og ljósbrúnna á bak við hvít kalkmannvirkin.  Vegna litarins sker hofið sig vel úr og sést víða að.

Hofið var reist í upphafi nýja ríkisins, þegar Hatsepsut drottning var við völd.  Hún var frænka, stjúpmóðir, tengdamóðir og meðstjórnandi Thutmosis II, sem hataði hana af öllu hjarta.  Þegar honum hafði tekizt að koma henni frá völdum, lét hann afmá allar áletranir í hofinu, þar sem hennar var getið og taka burt allar styttur af henni.  Hann lét setja sitt eigið nafn í hennar stað.

Eftir dauða Thutmosis II hélt drottningin byggingunni áfram en lauk ekki verkinu fyrir dauða sinn.  Eftirmaður hennar, Thutmosis III, tók við verkinu og lét fjarlægja og má út allt, sem minnti á Hatsepsut og kom sínu hafni á framfæri.  Ameinophis IV (Echnaton) lét meitla nafn Amuns brott en Ramses II lét lagfæra það á ný á gróflegan hátt.  Næstu aldirnar stóð hofið óbreytt.  Smálagfæringar og litlar nýbyggingar Ptolemaiosar VIII breyttu útliti þess lítið.  Eftir kristni settust munkar að í hofinu og stofnuðu klaustur, sem almenningur kallaði  Deir el-Bahari.  Munkarnir eyðilögðu heiðnu veggskreytingarnar.  Hofið var grafið upp á árunum 1894-96 og styrkt, svo að það félli ekki.  Stöðugt er unnið að viðgerðum eins og víða annars staðar.  Athyglisvert er, að allar myndir og styttur, sem til eru af Hatsepsut, eru skreyttar með stuttri mittisskýlu og skeggi, sem var tákn konunganna.  Hofið var helgað Amun frá Þebu auk Hathor og dauðaguðnum Anubis, sem vour helgaðar sérkapellur, og Hatsepsut drottningu, sem grafin var í beinni línu frá hofinu í Konungadalnum.  Hofið rís í þremur stöllum með aflíðandi braut.  Bakhluti þess er grafinn inn í klettavegginn.  Frá dalhofi lá gata með svingsum á báðar hendur að aðalhofinu, en hvort tveggja er horfið.  Stórt hlið inni í hofgarðinn er líka horfið.  Framan við hliðið stóðu tvö perseatré í steinumgerðum.  Stúfar þessara trjáa sjást enn þá.

Rétt við og beint suður af hofi Hatsepsut er *dánarhof Mentuhoteps II, sem er meðal beztvarðveittu minja frá upphafi miðríkisins.  þetta var þrepahof með pýramída og súlnasal yfir gröfum konungs og fjölskyldu hans.  Á hinum langa valdatíma Mentuhoteps II var hofinu margbreytt og það stækkað stöðugt.  Það er elzta hofið, sem vitað er um í Þebu.  Einfaldur byggingarstíll þess gerir það áhugavert.  það var grafið upp 1905-07 og rannsakað af bandarískum fornleifafræðingum en á síðustu árum hafa þýzkir vísindamenn verið þar að störfum. (1990)

Austan Deir el-Baharu er El-Asasifdalurinn.  Þar er stórt grafasvæði, aðallega frá tímum saitísku höfðingjaættarinnar (25. og 26. ætt).  Meðal rústanna er áberandi tígulsteinahlið, sem er gröf furstans Mentemhets.

 TIL BAKA           Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir                  HEIM