| 
           
        
        Thiès 
        er höfuðborg Thiéshéraðs í grennd við Dakar.  Þar er mikilvægur 
        nautgripamarkaður og kjötvinnsla.  Borgin er á krossgötum járnbrauta og 
        þjóðvega.  Í héraðinu er mikið ræktað af hrísgrjónum, jarðhnetum, 
        kassava (manioc), hirsi og ávöxtum.  Þarna er líka heræfingasvæði og 
        verkstæði fyrir járnbrautirnar.  Álfosfat er unnið í nágrannabænum Pallo.  
        Fjöllistaháskóli er starfræktur í borginni.  Árið 1863 byggðu Frakkar 
        virki við þorp, þar sem borgin er nú og verzlun hófst að marki eftir 
        1885.  Áætlaður íbúafjöldi 1992 var rúmlega 201 þúsund.  |