Manzini, Bremersdorp
til 1960, er borg í Mið-Swazilandi. Stóra-Usutu-áin rennur sunnan
hennar á leið sinni austur að Indlandshafi og Malkems-áveitusvæðið er
norðan hennar. Árið 1887 kom kaupmaður að nafni Bremersdorp upp verzlun
á þessum stað. Þar byggðist fyrsta stjórnsýslusetur landsins (1895-99),
sem er nú mikilvæg miðstöð verzlunar, landbúnaðar og iðnaðar. Borgin er
á hinu þéttbýla Mið-Veld-svæði, þar sem kjarni þjóðarinnar býr.
Íbúarnir þar rækta maís, baðmull, tóbak og ávexti. Þeir stunda einnig
nautgriparækt til mjólkur- og kjötframleiðslu. Í borginni og umhverfis
hana eru aðalmatvælafyrirtæki landsins (kjötvinnsla, rjómabú, kornmylla,
baðmullarhreinsun og niðursuða ávaxta). Millilandaflugvöllur er 8 km
utan borgar. Áætlaður íbúafjöldi árið 1986 var rúmlega 18 þúsund. |