Ashmore Cartier eyjar Ástralía,
Flag of Australia


ASHMORE- og CARTIER-EYJAR
ÁSTRALÍA


.

.

Utanríkisrnt.

Ashmore- og Cartier-eyjar eru yfirráðasvæði Ástralíu í Indlandshafi.  Þær eru 320 km norðvestan Vestur-Ástralíu og ná yfir Mið-, Vestur- og Austur-Eyjar, sem eru kóralhólmar innan rifjakerfa.  Cartier-eyja, sem er einnig kóralhringeyja, er sendnari en hinar.  Ástrala fengu yfirráð yfir þessum eyjaklasa árið 1934 en þær voru innlimaðar í Norðurhéraðs og undir stjórn þess á árunum 1938-78, þegar þær voru færðar undir beina stjórn ríkisstjórnar Ástralíu.  Eyjarnar eru óbyggðar en á Vestureyju er sjálvirk veðurathugunarstöð.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Hverafold 48 - 112 Reykjavik - 567-6242 - fridrikmh@simnet.is - Heimildir            HEIM