|
Broken
hill er námuborg í Nýja Suður-Wales í Suðaustur-Ástralíu.
Námurnar í grenndinni við borgina hafa verið í rekstri síðan
1883 og hafa skilað geysimiklum verðmætum í silfri, blýi, sínki og
tini. Mestur hluti sínkgrýtisins fer til rafgreiningarverksmiðju
í Risdon á Tasmaníu. Ferðaþjónustu
hefur vaxið fiskur um hrygg eftir því sem gengur á náttúruauðæfin
í jörðu. Broken Hill er
listaborg með mörgum galleríum. |