Alabama íbúarnir Bandaríkin,
Flag of United States


ALABAMA
ÍBÚARNIR

.

.

Utanríkisrnt.

Booking.com

Samkvæmt manntali frá 1990 var Íbúafjöldi fylkisins 4.040.587, sem sýndi 3,8% fjölgun frá 1980.  Þarna búa um 30 manns á hvern ferkílómetra.  Auk hvítra (73,6%) og svartra (25,3%) voru fámennir hópar Asíumanna, fólks frá Kyrrahafseyjum og indíána af aleut-ættkvísl.

Menntun og menning.  Fyrsti skólinn í fylkinu var stofnaður 1799 en löggjafaþingið tryggði ekki skólaskyldu fyrr en 1854.  Fjöldi grunnskóla í lok níunda áratugar 20. aldar var u.þ.b. 1300 með 723.300 nemendur.  Í einkaskólum voru u.þ.b. 57.600 nemendur.  Samtímis voru 87 æðri menntastofnanir, þar sem u.þ.b. 208.600 manns voru við nám.  Meðal þeirra eru Alabamaháskóli, sem er í grennd við Tuscaloosa, í Birmingham og Huntsville, Auburnháskóli í Auburn og Tuskegee-háskóli í grennd við Tuskegee.


Margir menningarviðburðir
eru tengdir háskólastarfinu og eru því dreifðir um fylkið.  Helztu slíka viðburði er þó að finna í Birmingham, Mobile og Montgomery.  Aðallistasöfnin eru í Birmingham, þar sem er Safn Samuels H. Kress, í Mobile er Listasafn Suðurríkjanna og í Montromery er Listasafn.  Synfóníuhljómsveit atvinnumanna er í Birmingham og þar eru líka áhugaverð bókasöfn, s.s. Jefferson County Free Library (1902), sem er talið hið bezta í Suðurríkjunum. 

Afþreying.  Nóg er af ám og vötnum og syðst Mexíkóflói og fjórar skógi vaxnar þjóðlendur, sem bjóða fjölbreytta útivist.  Þar er hægt að ganga, tjalda, veiða fisk og aðra villibráð, fara í bátsferðir og synda.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM