Indiana stjórnsýsla Bandaríkin,


STJÓRNSÝSLA
INDIANA

.

.

Utanríkisrnt.

Indiana er stjórnað í anda stjórnarskrárinnar frá 1851.  Æðsti embættismaður, fylkisstjórinn, er kosinn í almennum kosningum til 4 árar í senn.  Sami frambjóðandi má þjóna tvö samfelld kjörtímabil, ef hann nær kosningu.  Aðrir kjörnir embættismenn eru varafylkisstjóri, innanríkisráðherra, dómsmálaráðherra, fjármálaráðherra, ríkisendurskoðandi og menntamálaráðherra.

Þingið starfar í öldungadeild (50; 4 ár) og fulltrúadeild (100; 2 ár).  Fylkið á tvö sæti í öldungadeild og 10 sæti í fulltrúadeild sambandsþingsins í Washington DC og ræður 12 kjörmönnum í forsetakosningum.

Lýðveldisflokkurinn hefur að mestu ráðið ferðinni heima og sætum í sambandsþinginu.  Indiana var eitt hinna 10 fylkja, sem studdu andstæðing Franklin D. Roosevelt í forsetakosningunum árið 1940 og síðan hafa kjörmenn fylkisins stutt frambjóðendur lýðveldisflokksins.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM