Norður Dakóta stjórnsýsla Bandaríkin,


STJÓRNSÝSLA
NORÐUR-DAKOTA

.

.

Utanríkisrnt.

Norður-Dakota er stjórnað í anda stjórnarskrárinnar frá 1889.  Æðsti embættismaðurinn er fylkisstjóri, sem er kosinn í almennum kosningum til 4 ára í senn án framboðstakmarkana.  Aðrir kjörnir embættismenn eru varafylkisstjóri, dómsmálaráðherra, innanríkisráðherra og fjármálaráðherra.

Þingið starfar í öldungadeild (53; 4 ár) og fulltrúadeild (106; 2 ár).  Fylkið á tvö sæti í öldungadeild sambandsþingsins í Washington DC og ræður þremur kjörmönnum í forsetakosningum.

Lýðveldisflokkurinn er sterkasti stjórnmálaflokkurinn en síðustu áratugi hafa demókratar unnið á.  Kjörmenn fylkisins hafa stutt frambjóendur lýðveldissinna til forsetaembættisins síðan 1940.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM