|
Dartmoor er heiðarsvæði í Devon,
sem var gert að þjóðgarði 1951 (953 ferkílómetrar). Flestir
hafa heyrt minnst á Dartmoorfangelsið.
Þessi heiði hvílir á graníti.
Þar er úrkomusamt, skógi vaxið og mýrar stórar.
Stærðin er 39 km í norður/suður og 30 km frá austri til
vesturs. Hæst liggur heiðin 62 m yfir sjó.
Dartmoor
er að mestu óaðlaðandi en þar eru margir lækir, upptök áa, s.s.
Dart, Avon, Tavy, Taw og Teign, sem mikið er í af silungi.
Dartmoorhestarnir eru mjög loðnir, seigir og hálfvilltir.
Granítklettar,
Tors, tróna upp úr heiðinni. Sumir
þeirra voru holaðir að innan sem grafhýsi á forsögulegum tíma.
Vörðu- og steinhringir eru margir á heiðinni og uppruni margra þeirra
er ókunnur. Sömu
sögu er að segja um margar hellubrýr yfir læki.
Ein beztvarðveitta
bronsaldarbyggðin er Grimspound, nærri Manaton.
Þar eru rústir 24 skála.
fornminjar eru einnig í Great Tor, við Merrivale, Princetown,
7-8 km norðvestan South Brent (70 grafsteinar).
Ýmsar þjóð- og draugasögur eru tengdar Dartmoor.
Það er auðvelt að villast á heiðinni. |