|
KARÓLÍNUEYJAR
og MARSHALLEYJAR. Karólínueyjar
er keðja 963 eyja, sem teygist tæplega 4000 km norður frá Papúa Nýju
Gíneu, milli miðbaugs og nyrðri hvarfbaugs.
Vestan þeirra eru Palaueyjar, sem hafa verið sjálfstæða lýðveldið
Belau frá 1981. Norðaustan
Karólínueyja eru Marshalleyjar, 867 talsins.
Karólínu- og Marshalleyjar sameinuðust í lýðveldinu Míkrónesíu
árið 1978. Árið 1980
(okt.) kusu íbúar þess að verða frjálst sambandsríki BNA. |