| 
           
                    
                     Bali 
                    er vestust Litlu Sundaeyja.  Hún
        er þekktust meðal ferðamanna (South Pacific). 
        Hún er 5.561 km² með u.þ.b. 2,5 miljónir íbúa og hefur
        myndast við eldgos.  Frjósamur
        jarðvegurinn á Bali gerir bændum kleift að skera upp hrísgrjón þrisvar
        á ári.  Hin einstæðu
        einkenni Bali hafa löngum hrifið ferðamenn. 
        Hindúatrú hefur hér yfirhöndina gagnvart islam. 
        Hrísgrjónaakrar eru upp um allar hlíðar. 
        Á eyjunni eru á þriðja þúsund hof, helgidómar og grafasvæði,
        litríkir markaðir, góðar 
          bað-strendur, eldfjöll, hellar, fagrir útskornir munir úr tré og 
          steini, fjölskrúðugur hitabeltisgróður og hinir frægu hofdansar draga 
          til sín hundruð þúsunda ferðamanna alls staðar að úr heiminum ár 
          hvert. 
          Hinn 12 október 2002 sprengdu hryðjuverkasamtökin al Kaida öfluga 
          sprengju fyrir framan skemmti- og veitingastað og ollu dauða og örkuml 
          fjölda ferðamanna, aðallega Ástrala.  |