| 
           
        
           Nias
        (4772 km²: 589.000 íb. 1990) er indónesísk eldfjallaeyja í
        Indlandshafi skammt frá Súmötru. 
        Flestir íbúanna eru afkomendur Niah-manna og þeir byggja
        afkomu sína aðallega á landbúnaði. 
        Aðalborgin er Gunungsitoli. 
        Handverk íbúanna er háþróað og forfeðurnir hafa skilið
        eftir mikinn fjölda helgistaða úr risastórum steinum víða á
        eyjunni.  Hollendingar hófu
        verzlun á eyjunni 1669.  Miklir
        jarðskjálftar eru algengir.  |