|
Forth
er bæði á og fjörður í Skotlandi.
Áin á upptök sín í grennd við Aberfoyle við ármót
Avondhu-árinnar og Dunchray Water.
Vatnasvið hennar er 1670 km² og Teith-áin rennur til hennar við
Stirling og síðan rennur hún norðausturs þar til hún breiðir úr
sér og myndar Forthfjörð. Hún
er alls 106 km löng. Fjörðurinn
liggur 77 km inn úr Norðursjó og mynni hans er 28 km breitt.
Forth-járnbrautarbrúin (hengibrú frá 1964) liggur yfir ána
við Queensferry. Fjörðurinn er gengur allt að 300 tonna skipum að Alloa og
100 tonna skipum til Stirling. Forth-fjörðurinn
er tengdur Clyde-firði með skipaskurði.
Helztu hafnarborgirnar við fjörðinn eru Bo’ness,
Burntisland, Grangemouth, Kirkcaldy og Leith.
Síldar- og laxveiðistaðir eru í neðanverðri Forthánni. |