|
Andermatt, í kantónunni Uri er í
1.444 m hæð yfir sjó. Þorpið
er á mikilvægum krossgötum í 'Urserental' (dal bjarnaveiðimannanna).
Allar aðrar leiðir til og frá Andermatt en sú, sem liggur um
Reussdal, eru lokaðar 4-6 mánuði á ári. Andermatt er vinsæll upphafsstaður gönguferða og
fjallaklifurs og þekktur skíðastaður.
Svifbrautir liggja upp á Gemsstock
(2.961 m). Lengd
brautarinnar er 4.030 m og hæðarmunurinn 1.523 m (12 mín.).
Uppi er mjög víðsýnt.
***Þriggja skarða ferð:
Susten-,
Grimsel- og Furkaskörðin. St.
Gotthardskarðið er skammt sunnan Andermatt. |