Umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu voru afhent í 15. sinn 19. nóvember 2009. Þau komu í
hlut Íslenskra Fjallaleiðsögumanna fyrir markvissa
umhverfisstefnu, með það að leiðarljósi að öll
ferðamennska á vegum fyrirtækisins sé sjálfbær. Einnig
fyrir áralanga baráttu fyrir verndun viðkvæmrar náttúru
norðurslóða með hagsmuni næstu kynslóða í huga. Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin.
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið
1994 af fjórum ungum fjallaleiðsögumönnum en hefur frá
þeim tíma sameinast tveimur öðrum fyrirtækjum,
Íslandsflökkurum og Icelandic Travel Market. Fyrirtækið
hefur frá upphafi haft það að markmiði að auka fagmennsku
og fræðslu í leiðsögn, fara ótroðnar slóðir með innlenda
sem erlenda ferðamenn, kynna þeim undraheima hálendis
Íslands og íslenskrar náttúru og stuðla að góðri umgengni
og verndun viðkvæmrar náttúru þannig að komandi kynslóðir
megi njóta hennar á sama hátt og við. Trúir þessum
markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í
fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun
nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og
öryggismálum.
Láta umhverfismál til
sín taka á ýmsum sviðum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fylgja umhverfismarkmiðum
World Wildlife Fund fyrir ferðaþjónustu á heimskautasvæðum
og hafa tekið þátt í samnorrænu umhverfissamstarfi FINECO
varðandi sjálfbæra umgengni við náttúruna. Fyrirtækið
hefur tekið virkan þátt í umræðu um náttúruvernd hérlendis
sem erlendis og setið í stjórnum og ráðum sem varða
umhverfisvernd og ferðamennsku. Í ferðum
Fjallaleiðsögumanna er hugmyndafræði „Leave No Trace
Principles“ höfð í hávegum, en það eru leiðbeinandi
umgengnisvenjur um sjálfbæra ferðamennsku á ósnortnum
svæðum og miðar að því að draga úr óhjákvæmilegu álagi af
völdum ferðamanna. Markmiðið er að þeir sem fylgja í spor
Íslenskra Fjallaleiðsögumanna sjái ekki að þar hafi aðrir
verið á ferð
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fylgja umhverfisstefnu á
skrifstofu og lager á sama hátt og úti í náttúrunni.
Pappi, plast, málmar, fernur, gler, rafhlöður og lífrænt
affall er endurunnið eða endurnýtt allt árið. Fyrirtækið
nýtir sér almenningssamgöngur í 50-60% ferða sinna og er í
góðu samstarfi við heimamenn, þar sem þeir starfa,
varðandi ýmsa þjónustu, leiðsögn og gistingu.
Umhverfismál eitt af
hlutverkum Ferðamálastofu
Samkvæmt lögum um ferðamál og markmiðum ferðamálaáætlunar
2006-2015 ber Ferðamálastofu að sinna umhverfismálum á
ýmsan hátt.. Eitt af hlutverkum stofnunarinnar er að
hvetja einstaklinga og fyrirtæki til ábyrgðar í
umhverfismálum. Sem partur af þessari viðleitni veitir
Ferðamálastofa árlega umhverfisverðlaun því fyrirtæki eða
stofnun sem best þykir hafa staðið sig í umhverfismálum
það árið. Verðlaunin voru fyrst veitt 1994 og er þetta því
15. árið sem þau eru veitt. Að þessu sinni fengu 27 aðilar
tilnefningu til verðlaunanna.