Félag leiðsögumanna Fagfélag,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík, 4. desember 2007.
Hér að neðan eru tölvupóstskipti við gjaldkera Félags leiðsögumanna 22. og 26. september sl.
Mér blöskrar enn þá einu sinni bullið, yfirlætið, blindan og útúrsnúningurinn úr þessum manni.  Hann heldur, að hann sé óskaplega sniðugur, og hefur nógan tíma til að klastra saman svona langlokum, sem hann heldur að séu svör, en kvartar jafnframt yfir tímaskorti við félagsstörfin og vanþakklæti okkar, sem hann lofaði að vinna fyrir.  Hann og fleiri í stjórninni ættu að skammast sín og við ættum sjálf að skammast okkar fyrir að kjósa svona amlóða yfir okkur.

Fridrik Haraldsson schrieb:
Sæll Jens,
Ég spyr þig, sem gjaldkera Félags leiðsögumanna, hvernig stendur á því, að þið sendið út innheimtuseðla fyrir stofngjaldi félagatals, þegar það virkar ekki eins og Pétur Gauti er búinn að marglofa.  Hann byrjaði loforðalesturinn í vor og hélt honum áfram núna fyrir stuttu, en félagatalið er jafnónýtt fyrir okkur, sem viljum koma upplýsingum inn á það.  Það er ekki hægt að koma inn mynd, breyta upplýsingum eða tilkynna lausan tíma.
Það er ekki nóg, að Hafdís bjóðist til að koma hinu og þessu inn á síðurnar okkar.  Okkur var lofað sjálfstæðum aðgangi að breytilegum upplýsingum á síðunum okkar í félagatalinu.
Til þess að þú og stjórnin hafið það skriflegt, neita ég að greiða þetta gjald þar til úrbætur hafa verið gerðar.
Friðrik Haraldsson, „fullgildur félagi nr. 76”.

Sæll Friðrik, fullgildur félagi nr. 76,
til að byrja svar mitt vil ég benda þig á tilkynningu á vef Félags leiðsögumanna frá 9. nóvember s.l. sem áður var sent út með tölvupósti þann 30. október:

"
Í vor komst loksins á netið listi yfir fagmenntaða leiðsögumenn. Þessi listi hefur verið í prufukeyrslu í nokkra mánuði og vonandi hafa félagsmenn getað nýtt sér þjónustuna.

 Á aðalfundi Félags leiðsögumanna 23. apríl s.l. veittu félagsmenn stjórninni heimild til að innheimta stofngjald vegna skráningar félagsmanna á lista yfir fagmenntaða leiðsögumenn á heimasíðu félagsins.

Þeir sem vilja vera á listanum þurfa nú að greiða 3.000 krónur í stofngjald. 
Hver félagsmaður greiðir stofngjald einu sinni. Áframhaldandi vera á lista fyrir fagmenntaða leiðsögumenn er hluti af árgjaldi FL. Greiðsluseðlar hafa verið sendir til félagsmanna.

Ökuleiðsögumenn eru vinsamlega beðnir um að senda tölvupóst til skrifstofunnar og biðja um skráningu. Félagsmenn geta sent ljósmynd af skírteininu með tölvupósti eða sent ljósrit í hefðbundnum pósti."

Nú, þarna sérðu hvernig stendur að því að innheimtuseðla fyrir stofngjald þess lista hafa verið sent út. Það var stjórnin í heild sem tók ákvörðun í haust að innheimta gjaldið nú eftir að nokkur reynsla er komin með leiðsögumannatalið. Málið er það að þó að ýmislegt er enn hægt að bæta þá hefur þegar töluverður stofnkostnaður fallið til.
Ég verð samt að vísa á bug fullyrðingu þína um að þetta tal sé jafnónýtt. Það finnst mér töluvert framskref að geta sent upplýsingar (menntun, mynd, áherslumál, ...) á skrifstofu sem sér svo um að uppfæra þær hverju sinni.
OK, ég vildi auk þess sem þú nefndir hafa líka rafrænt bókunarkerfi með möguleika á að gera upp ferðirnar og gefa einkunn fyrir leiðsögumann, ferðaskrifstofu og rútufyrirtæki, og svo líka með greiðslukort vegna fæðupeninga. En í bili finnst mér listinn eins og komið er vera góð byrjun.
Þetta leiðsögumannatal er meira að segja töluvert betri lausn en það sem var síðast á vef félagsins en ekki var hægt að breyta neinu, hvorki bæta við nýja leiðsögumenn né taka út þá sem fallið höfðu frá eða hætt. Og það jafnvel þótt hönnuður gamla félagatalsins væri innan vébanda FL og síðast félags fagmenntaðra leiðsögumanna en hann mundi ekki eftir formúlunni til að gera breytingar.
Hins vegar fékk ég mjög jákvæð viðbrögð frá ferðaskrifstofueiganda sem fannst nýi listinn vera mjög góður, ekki síst að hann væri loksins orðinn aðgengilegur. Er þarmeð ekki mikilvægasta tilgangi náð? Kannski kemur seinna meir útgáfa með möguleiki til að hafa, segjum bleikan, bakgrunn með slaufur á síðunni sinni.
Síðast en ekki síst vil ég benda þig á að þessi listi er ekki félagatal heldur leiðsögumannatal, sem sagt aðeins fyrir fagmenntaða leiðsögumenn. Við getum ekki krafist félagsmenn til að borga sérstaklega fyrir að vera á félagalista!
Tilgangur listans er að stuðla að gæði í leiðsögn með því að auglýsa aðeins fagmenntaða félagsmenn. Þeim er þó frjálst að kjósa að vera ekki á listanum eins og þú gerir með því að borga ekki greiðsluseðilinn. Ef það skyldi vera eftirsjá eftir ákveðum mönnum af hálfu ferðaskrifstofum er ég fullviss um að skrifstofa mun útvega eftir getu símanúmer og netföng þó að viðkomandi sé ekki skráður á leiðsögumannatali.
Ég vona að öllum spurningum þínum varðandi leiðsögumannatali sé svarað í bili. Vertu viss um að stjórnin haldi áfram að leita úrbóta þó hægt gangi. Enda erum við öll leikmenn en ekki í fullu starfi hjá okkar ágætu en litlu félagi. Það gerir vinna okkar stjórnar ekki einfaldari að þurfa stanslaust að glíma við yfirdrifnar kröfur félagsmanna sem telja sig tala málefni reginhluta félagsins á sama tíma sem uppbyggilegar tillögur um úrbætur væru bæði kærkomnar og nauðsýnlegar.

kveðja,
Jens Ruminy
gjaldkeri Félags leiðsögumanna
    _________________________________________________________________________

R
eykjavík, 25. nóvember 2007.
Stjórnir Félags leiðsögumanna hafa brotið lög félagsins á markvissan og einbeittan hátt undanfarin ár og komizt upp með það, þrátt fyrir sífelldar kvartanir mínar.  Fáir aðrir í þessu undarlega félagi hafa látið sig þessi mál skipta og því er nú svo komið, að við verðum að upplifa algera niðurlægingu eina ferðina enn þá.


Núverandi stjórn félagsins hefur:
Fellt niður gildandi ákvæði í lögum félagsins um vinnu að viðurkenningu menntunnar okkar á háskólastigi fyrir árið 2010.

Ekki birt eina einustu fundargerð síðan 27. janúar 2007, þrátt fyrir skýr fyrirmæli í lögum um birtingu innan 10 daga frá hverjum fundi.

Ekki séð sér fært að leggja lög félagsins fyrir miðstjórn ASÍ fyrr en í októberlok í ár, þannig að við erum ekki enn þá með nein lög í gildi fyrir félagið.

Hunzað samþykkt aukaaðalfundar hinn 23. apríl 2007 um félagsfund um kosningu varðandi allsherjaratkvæðagreiðslu um aðild í eða úrsögn úr ASÍ.  Þessi fundur var síðan haldinn 21. nóvember síðastliðinn að kröfu undirritaðs, sem var búinn að fá sig fullsaddan af hegðun stjórnar.

Óstjórn, siðleysi, dónaskapur og ókurteisi stjórnar í garð félaga kemur fram í ýmsum myndum:

Félagatalið hefur ekki verið virkjað síðan varaformaðurinn tilkynnti okkur í vor, að það væri á lokasprettinum og í prufukeyrslu.  Sömu gallar eru enn þá á því og og strax eftir að hann lokaði munninum í vor.  Eina breytingin er, að stjórnin er búin að senda út innheimtuseðla fyrir stofngjaldi félagatalsins.  Eindagi 15. desember 2007.  Hvað verður gert við félaga, sem sætta sig ekki við að greiða fyrir ófullunnið félagatal?  Verða þeir teknir af skrá?

Stjórn félagsins hefur ekki nokkurn tímann haft döngun í sér til að láta félaga vita, hvað hún er að brölta við hverju sinni, svo að við höfum ekki hugmynd um, hvort hún er að gera eitthvað af viti fyrir okkur.  Svo virðist, sem hún sé okkar versti fjandi.

Hvernig ætlar stjórn Félags leiðsögumanna að halda saman punktum leiðsögumanna?  Þeir eiga að koma fram í félagatali til að sýna reynslu okkar.

Haft er eftir formanni og stjórn félagsins, að stuðningur ASÍ í Allrahandamálinu og í komandi kjarasamningum sé mjög mikill og ómissandi.  Hvort tveggja er eintómur þvættingur og lygi.  Þar býr ekkert að baki nema aumingjaskapur og leti.

Að framansögðu liggur næst fyrir að kæra stjórn félagsins fyrir miðstjórn ASÍ og félagsmálaráðuneyti.  Tilefnin eru ærin.


.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM