|
,

Skýrsla stjórnar Aðalfundur 2005
Ásta Óla
Lög um atvinnuréttindi útlendinga
10. maí 2002.
Breytingar á lögum
im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.
Lög ASÍ
Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.
Leiðsögunám í
Leiðsögusk. Ísl. í MK
Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.
Leiðsögunám EHÍ
Eru skólarnir viðurkenndir? |
FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! -
ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
Reykjavík,
4. desember 2009
Þrír örpistlar úr fundargerðum stjórnar birtust á vefsíðu
félagsins í fyrradag. Stuttir stjórnarfundir voru
haldnir 3. og 11. nóvember og 2. desember.
Uppistaða þeirra var umfjöllun um FEG, aðallega mikinn
aðildarkostnað (€ 1400), sem skal reyna að fá lækkaðan, og
hvernig samtökin gætu hugsanlega orðið okkur að liði í
réttindabaráttunni. Svar við einhverri tillögu til
þingsályktunar kom til umfjöllunar (ekki nánar útskýrt).
Þá var talað um að næsta kjaranefnd yrði að koma skikki
á greiðslu álagskaups og hvenær næturvinna hefst (engin
nánari skýring).
Núna fyrst ber réttindamál leiðsögumanna á góma í
félagsstjórninni, þegar næstum er komið að næsta aðalfundi.
Þetta hlýtur að vera sett á svið til að hægt sé að segja
okkur frá því í skýrslu formanns.
FEG og önnur evrópsk samtök eru mislangt komin í
réttindabaráttunni, en flest lengra en við. Hingað til
hefur þróun réttindamála leiðsögumanna erlendis ekki orðið
okkur til framdráttar, þrátt fyrir margar tilraunir fyrri
stjórna félagsins. Það má þó alltaf reyna aftur.
Stjórnin hefur ekki viljað fara að ráðum félaga, sem
hafa reynslu af þessum málum frá fyrri tíð, og rembist við
að finna upp hjólið í hvert skipti, sem hún þykist vera að
gera eitthvað í málunum. Það er margbúið að
benda á fjölda leiða að markinu, en stjórnin hefur hunzað
þær með öllu.
Önnur mál á dagskrá voru tæplega nefndartæk, þannig að
stjórnarsaumaklúbbnum tekst enn og aftur að skauta framhjá
áríðandi málum. Ætla mætti, að stjórnin
hefði ekki áhuga á að minna félagsmenn á frest til að skila
tillögum um lagabreytingar til 20. desember, eða að huga að
leiðum til að draga okkur upp úr fátæktarfeni núverandi
launakerfis. Þar er margt hægt að gera til úrbóta.
Þá var sagt frá „hugmynd” (ekki skýrt nánar) um að breyta
félagsmerki okkar á þann veg, að orðið „leiðsögumaður” kæmi
í stað ”Guide”. Skúla Möller var falið að komast í
tengsl við höfund merkisins til að fá leyfi hans. Það
hefur sem betur fer ekki tekizt enn þá. Eigum við að
trúa því, að síðustu afrek þessarar stjórnar eigi að vera að
rústa merki félagsins líka? Er ekki nóg komið af
hryðjuverkum?
Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis,
félagi góður. Mundu það!
Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags
leiðsögumanna að segja strax af sér. |
.


Félag leiðsögumanna
Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is
Leiðsögumaður
(tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)

Ferðaheimur
Lög FFL 2007
Tillaga til
lagabreytinga 2009
Tillaga að
reglugerð allsherjarakv.gr. |