fagfélag leiðsögumanna grein 6. maí 2008,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 6. maí 2008.
Skúli Möller, formaður launanefndar Félags leiðsögumanna, skrifar athyglisverðan pistil í netfréttablað okkar 5. maí.  Þar kemur skýrt fram að hluta til, hvað hefur safnast í glatkistu félagsins í gegnum árin, þegar samningar hafa verið samþykktir þegjandi og hljóðalaust.

Hluti pistils Skúla hljóðar svo:
„Samninganefnd FL hefur frá byrjun þessarar samningalotu verið sammála um að verja öll þau réttindi sem áunnist hafa í undanförnum samningum. Því miður var veigamiklum atriðum breytt í tvennum síðustu samningum, einu í hvorum.

Í samningunum frá 17.05.2001 var tímafjölda í dagsferðum breytt úr ákveðnum tímafjölda í rauntíma eða fyrirfram umsaminn ferðatíma. Þessi breyting þýddi raunlækkun launa sem virðist þó hafa farið í gegn án mikilla andmæla.

Í samningunum frá 28. apríl 2005 var ákvæði um ökuleiðsögn í 7. gr. um almenn ákvæði um kjör og aðbúnað í samningunum frá 17.05.2001, en þar sagði að: „Greiða skal sérstakt álag fyrir ökuleiðsögn samkvæmt nánara samkomulagi hverju ínni“, breytt í grein 2.5.2. en þar segir í 2. málsgrein: „Sé leiðsögumaður ráðinn til ökuleiðsagnar þá skal greiða 50% álag á tímakaup fyrir ökuleiðsögn í langferðabifreiðum sem taka fleiri en 9 farþega“.

Þessi breyting hefur mikið að segja fyrir þá ökuleiðsögumenn sem vinna hjá vinnuveitendum sem fara stíft eftir þessu ákvæði og greiða aðeins álag þegar ekið er á bifreiðum sem taka fleiri en 9 farþega. Ekki kom fram athugasemd um þetta ákvæði nema frá einum þegar leitað var eftir tillögum um sérkröfur s.l. vor.”
Allur pistillinn

Áframhald undirritaðs:
Samninginn 29. maí 2008 undirrituðu Skúli Möller, Magnús Oddsson og Halldór S. Magnússon.  (Viðbót 16. júní 2008).
Samninginn 28. apríl 2005 undirrituðu Ásta Óla Halldórsdóttir, Magnús Oddsson, Elísabet Brand og Pétur Jónsson.
Samninginn 17. maí 2001 undirrituðu (skv. upplýsingum frá skrifstofu Fl. 26.05.08) Sigurður A Guðbrandsson, Kristín Njarðvík, Asgeir Eiríksson, Ásta Óla Halldórsdóttir og líklega Hákon Óskarsson.
Samninginn 18. júní 1997 undirrituðu Ívar Eiríksson, Smári Ólason, Hákon Óskarsson og Kristín Njarðvík.
Samninginn 15. maí 1995 undirrituðu Kristín Njarðvík, Hákon Óskarsson, Þórarna Jónasdóttir, Ingi S. Ingason og Helgi Guðmundsson.

Því miður eru margir aðrir veigamiklir þættir úr eldri samingum okkar í þessari glatkistu og það er verðugt verkefni fyrir tómstundaleiðsögumennina, sem þurfa að finna sér eitthvað til afþreyingar á milli ferða og yfir veturinn, að tína það allt saman og segja okkur síðan sorgarsöguna.

Ég nefni þetta heiðursfólk hér vegna þess, að það hefur hópast í stjórn, ráð og nefndir félagsins, þ.m.t. launanefnd, undanfarið.  Margt þessa fólks er á allvænum eftirlaunum og vantar verkefni, en ekki endilega mikið af peningum í viðbót.  Því væri kostur fyrir atvinnuleiðsögumenn, að það fengist til að sinna öðrum veigamiklum verkefnum fyrir félagið fremur en að blanda sér í kjarabaráttuna.

Glatkista félagsins hefur fitnað vegna þess, að launanefndir hafa verið skipaðar án tillits til reynslu, getu og baráttugleði.  Það er óþolandi fyrir þau okkar, sem byggjum stóran hluta afkomu okkar á leiðsögustarfinu, að eiga allt undir tilraunastarfsemi og vankunnáttu óreynds fólks.

Skúla Möller og Magnúsi Oddsyni er mætavel treystandi til að standa í þessum stórræðum fyrir okkur, þótt þeir séu komnir á eftirlaun, enda reyndir menn og óhvatvísir, og í þeim býr enn þá hugsjónaglóð.  Þeir líta ekki á félagið okkar sem hlýja holu eða „saumaklúbb”.

Mér finnst við hæfi, að við ökuleiðsögumenn styðjum þá í þessari lotu, þótt þeim takist ekki að fá misskilninginn frá 28. apríl 2005 leiðréttan, ef samið verður til eins árs nú eins og Skúli ýjar að í pistli sínum.  Efnahagsaðstæður eru gjörbreyttar frá því að viðræður hófust milli aðila.  Við verðum þó að krefjast þess, að hækkun taxta í krónutölu, helzt miðað við fagtaxta, verði knúin í gegn, ella verður við ramman reip að draga í allsherjaratkvæðagreiðslu.

Spurning um fjölda atkvæðabærra félaga vaknar vegna hennar, því á síðasta aðalfundi var tillaga Kristínar Sætran um takmörkun atkvæðabærra félaga um kjarasamning samþykkt.  Núna hljóða greinar laga félagsins, sem þetta varða á þennan hátt:
8.2.b. 
 atkvæðisrétt um kjarasamninga og verkfallsboðun hafa þeir einir sem greitt hafa a.m.k. fjórfalt lágmarksgjald til að öðlast stéttarfélagaðild sbr. gr. 4.2.
4.2.2 mgr.:
Lágmarksgjald til að öðlast stéttarfélagsaðild samsvarar hundraðshluta fyrir a.m.k. 15 daga vinnu samkvæmt lægsta taxta félagsins á hverjum tíma. Þessar greiðslur skulu hafa borist á síðastliðnum 12 mánuðum.

Það er ekki endilega víst, að allir, sem gjarnan vilja greiða atkvæði, fái sendan atkvæðaseðil.


Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!  Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja strax af sér.

Copyright ©FH2008

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM