|
Reykjavík
7. apríl 2008.
Í dag
birtist þessi frétt á heimasíðu Félags leiðsögumanna (takið
eftir, að stjórn leiðréttir þessa frétt tvisvar hér að
neðan):
Endurmenntun Háskóla
Íslands (EHÍ) býður á næsta hausti upp á leiðsögunám á
háskólastigi, og Hólaskóli hefur einnig áhuga á því að bjóða
upp á slíkt nám.
Einnig er verið að undirbúa "stöðupróf" í samvinnu við
IÐUNA.
Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi.
Samningur um merktan fatnað hja 66°N í höfn.
Endurmenntun Háskóla Íslands ætlar að bjóða upp á nám í
leiðsögn nú á haustmisseri .
Það er mjög spennandi að sjá hvernig það kemur út, þetta
verður þriggja anna nám sem gefur 30 einingar.
Félagið mun eiga fulltrúa í fagráði og fylgjast með því.
Námið verður sambærilegt við námið hjá Menntaskólanum í
Kópavogi, byggt á sömu námsskrá.
Einnig hefur ferðamáladeild Háskólans á Hólum lýst áhuga
sínum á að kanna með nám í leiðsögn sem væri eðlileg viðbót
við það nám í ferðamálafræðum sem þar fer nú þegar fram.
IÐAN - fræðslusetur, vill koma á raunfærnimati fyrir
starfandi leiðsögumenn með nægilega reynslu. Það er unnið í
samvinnu við Menntaskólann í Kópavogi og Félag
leiðsögumanna. Þeir sem færu í þetta mat og í ljós kæmi að
eitthvað vantaði upp á færni þeirra ættu kost á að fara í MK
og ljúka því sem á vantaði og fá þá skírteini sem faglærðir
leiðsögumenn.
Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi og meðan svo er
er von um að samningar náist. Betra en að missa samninga til
sáttasemjara.
Samningur um afslátt af merktum rauðum fatnaði eru í höfn
hjá 66° og geta þeir sem greitt hafa árgjaldið til
félagsins og fengið skírteini fyrir árið 2008 farið í
verslunina í Garðabæ og pantað sér úlpu eða peysu.
f.h. stjórnar PGV 6/4/08
Athugasemdir mínar:
EHÍ kemur ekki til með að fylgja námsskránni, sem MK notar í
Leiðsöguskóla Íslands. Kristín Jónsdóttir,
forstöðumaður, sagði, að ný námsskrá yrði smíðuð og hún
mundi veita 30 einingar. EHÍ kemur ekki til með að
taka nokkurt tillit til eða veita námi í MK nokkra
viðurkenningu. Þetta þýðir einfaldlega, að verið er að
fela sífellt fleiri skólum menntun leiðsögumanna og byggja
hana á jafnmörgum grunnum og þeir eru margir.
Forstöðumaður EHÍ er dóttir einhvers mætasta og reyndasta
leiðsögumanns landsins, Kristínar Njarðvík. Orð hennar
í mín eyru um framboð leiðsögunáms í EHÍ gáfu til kynna, að
menntun nemenda í MK yrði ekki metin sem sambærileg. Slíkt
er þó undir hverri deild komið, því þær hafa eigið
ákvörðunarvald í þeim efnum.
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við land- og
ferðamálafræðiskor HÍ, sagði mér í samtali í dag, að n.k.
föstudag yrði fundað um þetta mál. Því væri ekki útséð
um, að leiðsögunámið yrði í EHÍ. Hún sagðist mundu
stinga upp á fundi með Margréti, skólastjóra MK, um
möguleikann á flutningi Leiðsöguskóla Íslands til HÍ, svo
ósamræmið í þessari fræðslu aukist ekki enn frekar.
EHÍ má setja upp nám og
krefjast greiðslu kostnaðar af nemendum, en aðrar deildir og
skorir HÍ ekki. Þær eiga því óhægt um vik með fjölgun
námsbrauta nema fjármagn fylgi. Frumvarp til laga um HÍ
hefur strandað á þessum þröskuldi í meðferð Alþingis og
bíður þar enn þá. Yrði Leiðsöguskóli Íslands fluttur
til HÍ, fylgdi honum sjálfkrafa fjárstyrkur ríkisins, sem
þyrfti að vera mun hærri, því skólagjöld hafa sífellt
hækkað.
Sigríður Magnúsdóttir hjá Háskólanum á Hólum í Hjaltadal
sagði mér í símtali í dag, að þar væri braut í gönguleiðsögu
og ekki væri fyrirhuguð samkeppni við MK eða aðra skóla á
sviði almennrar menntunar leiðsögumanna.
Sólveig, fagstjóri Leiðsöguskóla Íslands, sagði mér í
símtali í dag, að ekkert samráð væri milli hennar og EHÍ eða
annarra menntastofnana um flutning leiðsögunáms frá MK.
Hún sagði aftur á móti, að hin síðari ár hafi skólastjóri MK
lýst vilja til að fá viðurkenningu leiðsögunámsins á
háskólastigi.
Í greinargerð námsskrárinnar er skólinn ekki
skilgreindur sem framhaldsskóli, svo hann er nokkurn veginn
í lausu lofti og skrefið ætti að vera stutt á háskólastigið.
Sólveig sagði, að frumkvæði að
raunfærnimati,
á mannamáli „stöðuprófi”, væri
að öllu leyti Leiðsöguskólans, en ekki stjórnar F.l.
Hún sagði, að fólki bjóðist þessi möguleiki nú þegar i vor,
þannig að allir, sem standast það, fá fulla viðurkenningu
Leiðsöguskóla Íslands, en hinir fá skrá yfir vankanta,
sem þeim býðst að sníða af í skólanum næsta haust.
Þessar staðreyndir segja mér, að stjórn Félags leiðsögumanna
er annaðhvort vísvitandi að ljúga að okkur eða hefur ekki
hugmynd um, hvað hún er að gera. Formaður og
varaformaður Félags leiðsögumanna leika
þann ljóta leik eina ferðina enn að ausa bæði röngum og mjög
takmörkuðum upplýsingum yfir okkur. Það er búið að
lítilsvirða okkur allt of oft með þögninni og svona framkomu
og tími til kominn að linni. Geti formenn okkar ekki
komið öðruvísi fram við okkur, ættu þeir að sjá sóma sinn í
því að segja af sér
strax. Við hljótum að geta fundið fólk, sem kann
mannasiði, í staðinn.
Samkvæmt 13. gr. félagslaga ber stjórninni að vinna að
viðurkenningu leiðsögunáms á háskólastigi og að það verði
metið allt að 60 eininum fyrir árið 2011.
Sjá hér að neðan tvær leiðréttingar upprunalegrar fréttar án
þess að nokkuð sé dregið til baka af fullyrðingum um
Hólaskóla. Iðan er aftur á móti dottin úr dæminu.
Þetta er sagan endalausa.
Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis,
félagi góður. Mundu það!
Eftirfarandi leiðrétting birtist síðdegis 7. apríl 2008:
7.4.2008.
Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) býður á
næsta hausti upp á leiðsögunám á háskólastigi, og Hólaskóli
hefur einnig áhuga á því að bjóða upp á slíkt nám. Einnig er
verið að undirbúa "stöðupróf" í samvinnu við IÐUNA.
Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi. Samningur um
merktan fatnað hjá 66°N eru í höfn.
Endurmenntun Háskóla Íslands ætlar að bjóða upp á nám í
leiðsögn nú á haustmisseri.
Það er mjög spennandi að sjá hvernig það kemur út, þetta
verður þriggja anna nám sem gefur 30 einingar.
Félagið mun eiga fulltrúa í fagráði og fylgjast með því.
Einnig hefur ferðamáladeild Háskólans á Hólum lýst áhuga
sínum á að kanna með nám í leiðsögn sem væri eðlileg viðbót
við það nám í ferðamálafræðum sem þar fer nú þegar fram.
IÐAN - fræðslusetur, vill koma á raunfærnimati fyrir
starfandi leiðsögumenn með nægilega reynslu. Það er unnið í
samvinnu við Leiðsöguskólann og Félag leiðsögumanna. Þeir
sem færu í þetta mat og í ljós kæmi að eitthvað vantaði upp
á færni þeirra ættu kost á að fara í Leiðsöguskólann og
ljúka því sem á vantaði og fá þá skírteini sem faglærðir
leiðsögumenn.
Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi og meðan svo er
er von um að samningar náist. Betra en að missa samninga til
sáttasemjara.
Samningur um afslátt af merktum rauðum fatnaði eru í höfn
hjá 66° og geta þeir sem greitt hafa árgjaldið til
félagsins og fengið skírteini fyrir árið 2008 farið í
verslunina í Garðabæ og
pantað sér úlpu eða peysu.
f.h. stjórnar PGV 6/4/08 (leiðrétt 7/4/08)
Þessi leiðrétting sást á síðu félagsins
8. apríl 2008:
7.4.2008.
Endurmenntun Háskóla Íslands
(EHÍ) býður á næsta hausti upp á leiðsögunám á háskólastigi,
og Hólaskóli hefur einnig áhuga á því að bjóða upp á slíkt
nám. Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi. Samningur
um merktan fatnað hjá 66°N er í höfn.
Endurmenntun Háskóla Íslands ætlar að bjóða upp á nám í
leiðsögn nú á haustmisseri.
Það er mjög spennandi að sjá hvernig það kemur út, þetta
verður þriggja anna nám sem gefur 30 einingar.
Félagið mun eiga fulltrúa í fagráði og fylgjast með því.
Einnig hefur ferðamáladeild Háskólans á Hólum lýst áhuga
sínum á að kanna með nám í leiðsögn sem væri eðlileg viðbót
við það nám í ferðamálafræðum sem þar fer nú þegar fram.
Kjarasamningaviðræður eru enn í fullum gangi og meðan svo er
er von um að samningar náist. Betra en að missa samninga til
sáttasemjara.
Samningur um afslátt af merktum rauðum fatnaði eru í höfn
hjá 66° og geta þeir sem greitt hafa árgjaldið til
félagsins og fengið skírteini fyrir árið 2008 farið í
verslunina í Garðabæ og
pantað sér úlpu eða peysu.
f.h. stjórnar PGV 6/4/08 (leiðrétt 7/4/08, og leiðrétt aftur
8/4/08) |