|
Reykjavík
7. september 2008
Endurmenntun Háskóla Íslands, međ Kristínu Jónsdóttur
(dóttur Kristrínar Njarđvíkur, leiđsögukonu) í fararbroddi, setti á fót 60
eininga námsbraut fyrir leiđsögumenn fyrr á ţessu ári og
bauđ fyrstu önn hennar nú í haust.
Undirritađur talađi viđ Jóhönnu Rútsdóttur,
verkefnastjóra leiđsögubrautar, í vor til ađ kynna sér máliđ
betur. Hún tjáđi honum, ađ undirbúningurinn hefđi á
engan hátt byggzt á námskrá Leiđsöguskóla Íslands og
frumkvćđiđ vćri aldeilis ekki komiđ frá Félagi leiđsögumanna.
Stjórn ţess félags hefđi ekki komiđ ađ málinu fyrr en hún
hafđi trođiđ fulltrúa í fagráđ námsbrautarinnar.
Ţađ gerđi formađur Félags leiđsögumanna til ađ geta slegiđ
sig til riddara á fölskum forsendum. Formađurinn kom sér vel fyrir í ţriđja
leiđsöguskólanum, sem verđur ađ teljast enn einar herbúđir
óvina Leiđsöguskóla Íslands og Félags leiđsögumanna.
Svona hegđun er blind, siđlaus og yrđi flokkuđ sem
landráđ og svik, ef hún beindist gegn heilli ţjóđ.
Síđan lét stjórn Félags leiđsögumanna bođ út ganga, ađ
nú vćri búiđ ađ koma leiđsögunáminu fyrir á háskólastigi
eins og kveđiđ er á um í lögum félagsins. Ţetta er
ţvílík hneisa og kjaftćđi, ađ ekki tekur nokkru tali.
Stjórnin gerđi ekkert annađ en ađ leggja blessun sína
yfir ţriđja leiđsöguskólann. Ţar međ var hún enn ţá
einu sinni ađ vinna vísvitandi gegn félaginu, hvers hagsmuna
hún á ađ gćta. Hún er ţar međ búin ađ tryggja
viđbótareldsneyti á ófriđarbáliđ í félaginu. Nú skal
ţađ brenna glađar en nokkru sinni fyrr!
Ţetta vesalings stjórnarfólk skilur ekki, ađ lögum félagsins
verđur ekki framfylgt fyrr en Leiđsöguskóli Íslands hlýtur
viđurkenningu á háskólastigi. Ţađ ćtti ađ vera auđsótt
mál, ţví EHÍ tók afrit af námskrá hans fyrir sína
háskólaútgáfu. Skólastýra MK og fagstýra Leiđsöguskóla
Íslands eru báđar fylgjandi ţví, ađ Leiđsöguskóli Íslands
fái viđurkenningu á háskólastigi. Stjórn Félags
leiđsögumanna er eini ţrándurinn í götu ţeirrar ţróunar.
Ţetta heitir á gullaldarmáli: „Heggur sá, sem hlífa
skyldi”.
Undirritađur sótti um nám á leiđsögubraut EHÍ međ ţeim
fyrirvara, ađ allur hans náms- og starfsferill yrđi metinn
til stiga áđur, og hérna er
niđurstađan (svar
til EHÍ 08.09.08). Hún er stjórn og ţó ađallega
formanni Félags leiđsögumanna ađ kenna og skömm ţessa
hryđjuverkafólks, sem vinnur gegn eigin félagi og félögum,
verđur sífellt meiri.
Ţessar eru afleiđingar gerđa ţinna eđa ađgerđarleysis,
félagi góđur. Mundu ţađ!
Undirritađur skorar á formann og varaformann Félags
leiđsögumanna ađ segja strax af sér. |