fagfélag leiðsögumanna grein 16. mars 2008,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 16. marz 2008.
Stjórn Félags leiðsögumanna er enn þá við sama heygarðshornið í „störfum” sínum fyrir ykkur.

Hinn 10. marz 2008
fékk hún kröfu um birtingu úrdrátta fundargerða stjórnar- og félagsfunda síðasta árs frá 27. janúar 2007 og framvegis. Lögfræðingur ASÍ hefur staðfest að 15. grein laga okkar sé ótvíræð.

Krafan byggðist á eftirfarandi svari formanns í netpósti hinn 5. febrúar 2008:   „
Úrdráttur fundargerða verð’a framvegis birtar á heimasíðu félagsins. Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum um einstök mál getur þú sent fyrirspurn um það á skrifstofu félagsins sem kemur því til ritara og stjórnar sem munu svara því.
Svar undirritaðs:  „
Því miður duga þessi viðbrögð þín ekki.  „Framvegis” dugar ekki eitt og sér.  Fundargerðir stjórnar- og félagsfunda vantar síðan 27. janúar 2007 samkvæmt 15. grein laga félagsins.
Geturðu ómögulega sýnt eðlilega kurteisi og framkomu, sem sæmir formanni okkar?


Stjórnin
fékk þessi skilaboð í netpósti 10. marz:  „
Undirritaður biður stjórn Félags leiðsögumanna um afdráttarlaust svar við beiðni um birtingu úrdrátta fundargerða stjórnar- og félagsfunda frá 27. janúar 2007 og framvegis á heimasíðu félagsins.  Vilji stjórnin fara að lögum félagsins, getur hún ekki stutt svar formannsins hér að ofan.  Vinsamlegast sendið mér svar í netpósti.”
Stjórnin fékk einnig beiðni um aðgang að fundargerðum áranna 2003, 2004 og 2005, fram að aðalfundi, svo að hægt væri að kanna aðdraganda lagabreytinganna á aðalfundi 2005.  Tilgangurinn er að athuga, hvort löglega var að þeim staðið.

Eftirfarandi er svar stjórnar hinn 14. marz 2008 við þessum kröfum:
Stjórn Fl ákvað á fundi að leyfa þér að skoða fundargerðabækur 2007 og 2008, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Í fundargerðabókum FL eru skráðar ýmsar trúnaðarupplýsingar (sérstaklega hvað varðar sjúkrasjóð) og er ekki heimilt að opna þá hluta fundargerðabóka FL fyrir almenna félagsmenn. Auðvitað væri betra að sjúkarsjóður væri með sér fundargerðabók og verður sá háttur hafður á héðan í frá.
En ef þú vilt fá að lesa þær getum við boðið þér í heimsókn á skrifstofu FL og þú getur fengið að lesa þessar fundargerðabækur, í viðurvist stjórnarmanna (með þeim fyrirvara að við hyljum trúnaðarupplýsingar um sjúkrasjóð). Við þurfum bara að komast að samkomulagi um hvenær þér hentar að mæta og hvað mikinn tíma þú heldur að þú þurfir.
Varðandi fyrirspurn þína um fundargerðir stjórna árin 2003 og 2004 má ekki afhenda þér ljósrit (né annað afrit) af téðum fundargerðum.
Þau stinga upp á þriðjudeginum 1.4 milli 14 og 17.

Samdægurs var stjórn félagsins sendur þessi netpóstur:
Til stjórnar Félags leiðsögumanna:
ofangreint svar við erindi mínu dagsettu 10. marz 2008 hér enn ofar, verð ég að lýsa yfir undrun og harmi vegna viðbragða stjórnar félagsins.  Ég bið ekki um annað en að stjórnarfundur sýni mér afstöðu sína til laga félagsins og framkvæmda þeirra.  Málið snýst ekki um einhvern einkaaðgang með „ákveðnum skilyrðum”.  Mér þætti vænt um að ritari og stjórn félagsins nýttu tímann, sem mér er boðinn til að taka saman fundargerðir síðasta árs og birta þær á sama stað og síðast - á heimasíðu félagsins.

Ég vil gjarnan vita, hvort Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, telur þetta svar nægilega staðfestingu þess, að stjórn Félags leiðsögumanna hyggst ekki fara að lögum eigin félags og hvort það nægir mér til þess að leggja formlega kvörtun fyrir miðstjórn ASÍ þar að lútandi.  Þar sem hann fær afrit af þessum netpósti, má hann gjarnan svara báðum aðilum þessari spurningu.

Magnús má einnig taka afstöðu til synjunar stjórnar Félags leiðsögumanna vegna beiðnar minnar um aðgang að upplýsingum um aðdraganda lagabreytinga á aðalfundi árið 2005 í fundargerðum stjórna félagsins árin 2003, 2004 og 2005 fram að aðalfundinum.  Ég tel mig eiga ótvíræðan rétt til að kynna mér, hvort löglega var staðið að gjörbreytingu félagsins án þess að efnt væri til allsherjaratkvæðagreiðslu um hana.

Lesi nú hver úr þessu það, sem hann/hún getur og vill!  Mundu, að þetta ástand er þér og mér að kenna!


Friðrik Haraldsson #76

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM