|
Félagsfundur
F.l. 21. nóv. 2007.
Reykjavík, 16. nóvember 2007. Þennan félagsfund um veruna í ASÍ, þ.e.a.s.
allsherjaratkvæðagreiðslu eða ekki um hana, átti halda fyrir
7. maí sl. Stjórn félagsins er orðin fræg að endemum
fyrir að sniðganga lög félagsins okkar og verður lengi i
minnum höfð fyrir siðleysi, ókurteisi og almennan skort á
kunnáttu í mannlegum samskiptum, sem á þó að prýða hvern
leiðsögumann.
Stjórn F.l. býður fulltrúum ASÍ og BHM til fundarins
samkvæmt fundarboði. Við bjóðum þá vissulega velkomna
til að greina frá sínum samtökum og kostum og göllum
aðildar. Við verðum síðan að fá næði til að afgreiða
okkar mál án frekari afskipta þeirra.
Kynni framhaldsaðild að
ASÍ að kosta:
1. Að hver sem er, án sérnáms, geti orðið félagi (trésmiðir,
verkafólk, o.fl.)?
2. Að laun okkar verði áfram lág?
3. Að við munum búa við áframhaldandi réttindaleysi?
4. Að ókleift verði að fá viðurkenningu starfsheitis?
5. Að mun erfiðara verði að fá viðurkenningu náms á
háskólastigi?
6. Að stjórnir félagsins haldi áfram að nota ASÍ sem hækju
og letitæki?
7. Að landsfélag okkar verði áfram viljalaust verkfæri ASÍ?
8. Að vinnuveitendur ráði æ fleiri ófaglærða leiðsögumenn
til vinnu, því stéttarfélag styður ekki faglærða fram yfir
ófaglærða, þótt samningar kveði svo á?
9. Að æ fleiri faglærðir leiðsögumenn verði atvinnulausir,
því ófaglærðir eru á lægri launum og undirbjóða?
10. Að gæðum hraki enn frekar í ferðaþjónustunni fyrir
bragðið?
11. Að við getum ekki framleiðis fremur en endranær búizt
við stuðningi frá ASÍ?
12. Að búast megi við flótta faglærðs fólks úr félaginu, að
það hætti vegna lágra launa og skeytingarleysis stjórna F.l.?
13. Að við séum að greiða háar fjárhæðir árlega til ASÍ til
einskis?
14. Að faglærðir leiðsögumenn fá ekki að ráða eigin málum?
Núverandi og tvær fyrrverandi stjórnir félagsins hafa haldið því
fram, að ASÍ hafi verið haukur í horni í mörgum málum, en
aldrei gefið okkur neinar skýrslur um slík tilfelli. Það er
því varasamt að leggja trúnað á þessar fullyrðingar. Eina
tilfellið, sem við höfum orðið áþreifanlega vör við návist
ASÍ, var á aðalfundinum 2007, þegar ég varð að draga
tillögur mínar um lagabreytingar til baka. Þær stönguðust í
veigamiklum atriðum á lög ASÍ, sem við verðum að beygja
okkur undir og getum ekki verndað félag okkar fyrir aðsókn
þeirra, sem vilja vera í okkar röðum án tilskilins náms.
Einnig er staðfestur grunur um úrtölur og áhugaleysi ASÍ
fyrir kjarabaráttu okkar.
Til hvers er stéttar- og fagfélag, ef það getur ekki haldið
utan um félaga sína og verndað hagsmuni þeirra á þeirra
eigin forsendum? Eigum við að láta sem ekkert sé og leyfa
örfáum einstaklingum, sem skildu og skilja ekki tilgang
Félags leiðsögumanna, að ráða? Vita félagar F.l. ekki, að
eina ástæða ASÍ-aðildar var að fá vinnuveitendur að
samningaborðinu, þegar annað dugði ekki á bernskuárum
félagsins?
Reykjavík, 19. nóvember 2007.
Skúli Möller, formaður kjaranefndar Félags leiðsögumanna,
lýsir kostum ASÍ-aðildar í fréttabréfi félagsins í dag.
Hann er einn margra, sem þekkja ekki sögu félagsins nógu
vel til að flíka fullyrðingum um upprunalega ASÍ-aðild okkar.
Orð hans í þessum lofgerðarpistli um ASÍ skjóta skökku við
raunverulega reynslu okkar af þessum heildarsamtökum og
skilaboð hans sjálfs til mín í tölvupósti hinn 30. október
síðastliðinn eru af allt öðrum meiði:
Sæll Friðrik
Þakka tilskrifið.
Fyrst varðandi samþykkt
aðalfundar félags okkar um að stjórn skuli boða til fundar
þar sem fjallað skal um úrsögn úr ASÍ þá er alveg ljóst að
fund þennan þarf að halda og hefði í raun átt að vera búið
að halda. Ég minnti Ragnheiði á samþykktina snemma í
október en okkur fannst kannski ráðlegt að bíða vegna
kjarasamninganna. Ég viðurkenni að ég hélt að við þyrftum
að sækja aðstoð til skrifstofu ASÍ en eftir að hafa farið
á fund þangað þá sé ég ekki betur en við hefðum alveg
getað staðið á eigin fótum og í sjálfu sér sækjum við
lítið þangað.
Kjaranefnd er langt komin
með að ganga frá sérkröfum fyrir félag leiðsögumanna og
verður farið fram á fund með SAF mjög fljótlega. Hvað
launakröfur varðar þá hefur varla verið minnst á hækkunar
prósentu hjá neinum og því ráðlegt að bíða svo við verðum
ekki einir með einhverjar kröfur sem kannski væru út út
korti.
Í kjaranefnd eru auk mín
vanir menn, þeir Halldórs Sigurðsson og Magnús Oddsson,
sem reyndar er mjög vanur því hann var jú bæjarstjóri á
Akranesi og hefur oft staðið í samningum. Við munum reyna
hvað við getum.
Ég tók sæti í þessari nefnd
til að reyna að setja mark mitt á þetta starf og vona ég
að okkur takist að ná góðum samningum fyrir okkur
leiðsögumenn.
M.vk.
Skúli Möller
----- Original Message
-----
Sent:
Sunday, October 28, 2007 3:25 PM
Subject:
Komandi kjarasamningar.
Heill og
sæll,
Formaðurinn okkar hringdi til mín miðvikudaginn 17. þ.m.
kl. 18:00. Hún spurði mig, hvort mér yrði sárt um að
ASÍ-fundinum yrði frestað þar til næstu samningar lægju
fyrir. Ég svaraði því til, að mér væri orðið ósárt um
flest, sem snertir þetta félagsræksni okkar. Ég bað hana
senda mér tölvupóst með þessari beiðni, svo hún gæti þá
allavega vísað í einhverja staðfestingu frá mér, ef ég sæi
ástæðu til að láta hana og stjórn félagsins komast upp með
að brjóta á okkur félagslög áfram. Hún hefur ekki séð
ástæðu til að virða mig þess viðlits.
Nú veit ég ekki hver staða þín og kjaranefndar okkar er í
samningum við vinnuveitendur. Ég tel mig vita af fyrri
reynslu, að við höfum ekkert til ASÍ að sækja í sambandi
við samninga okkar - ekki fyrr - ekki núna - ekki í
framtíðinni. Ég tel mig líka vita, að hægur vandi er að
hafa alla fyrirvara á öllum samningsatriðum heildarsamtaka
atvinnulífsins, þannig að við verðum ekki utangarðs í
neinum efnum. Þetta byggist alfarið á því, að kjaranefnd
okkar sé með góðri meðvitund. Ég sé enga ástæðu til að
ætla annað, þar sem þú stendur í stafni.
Að svo mæltu ætti framhaldið hjá mér að vera krafa um
þennan fund. Mig langar samt til að heyra örlítið frá þér
áður, ef mér yfirsést eitthvað í þessu mati mínu.
Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson
Ég skil pistil Skúla svo,
að hann mæli fyrir hönd kjaranefndar með framhaldi aðildar
að ASÍ. Ég skil ekki tvískinnunginn í afstöðu hans
síðan hann sendi mér tölvupóstinn. Hann mun vafalítið
skýra þessi nýju viðhorf fyrir okkur á fundinum.
Þau breyta engu um staðreyndirnar. ASÍ hefur aldrei
séð ástæðu til að styðja okkur í neinu, sem máli skiptir.
Það þarf enga talnaleiki til að sýna, hvað við höfum grætt
eða sparað með aðild. Það þarf aðeins fólk með bein í
nefinu til að standa sig í störfum, sem það hefur tekið að
sér fyrir okkur!
Það er erfitt að trúa því, að Skúli vilji ýta undir
viðvarandi ómennsku, sem hefur birzt í leti núverandi
formanns og nokkurra stjórnarmanna, svo ekki sé talað um
stjórn Ástu Ólu, sem kom okkur í þetta klúður. Núna
reynir á skammtímaminnið. Ragnheiður var varaformaður,
sem tók við, þegar Ásta sagði af sér að tillögu Borgþórs
Kjærnesteds.
Segjum nú svo, að Skúli hafi eitthvað til síns máls.
Vakna þá ekki spuringar um aðra þætti, sem hann minnist
ekki á? Þætti, sem eru tíundaðir í pistli mínum hér að
ofan, frá 16. nóvember? |