|
Félag
leiðsögumanna Fagfélag,

Skýrsla stjórnar Aðalfundur 2005
Ásta Óla
Lög um atvinnuréttindi útlendinga
10. maí 2002.
Breytingar á lögum
im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.
Lög ASÍ
Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.
Leiðsögunám í
Leiðsögusk. Ísl. í MK
Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.
Leiðsögunám EHÍ
Eru skólarnir viðurkenndir? |
FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! -
ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
Reykjavík,
18. apríl 2009.
Atvinnuleiðsögumenn eru enn þá í gíslingu
tómstundaleiðsögumanna og metnaðarlausrar og staur- og
siðblindrar forystu.
Hvernig á ferðaþjónustan að verða öflugri undirstaða
efnahagslífsins við slíkar aðstæður.
Hvenær og hvernig ætla yfirvöld í
landinu að viðurkenna menntun og störf þessarar starfstéttar?
Formenn og stjórn Félags leiðsögumanna eru við sama
heygarðshornið. Þetta fólk bindur trúss sitt við
ótrúlegustu uppákomur, sem er efnt til sérstaklega fyrir
félagsmenn. Nýjasta afurðin af „samstarfi” félagsstjórnar og
EHÍ er kölluð: „Íslenzkt samfélag: Tölulegar upplýsingar og
upplýsingamiðlun. Aðeins ætlað félagsmönnum.”
Kennarar: Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, forstöðumaður
rannsóknastofu í vinnuvernd, Kristján Kristjánsson,
upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytis og Urður Gunnarsdóttir,
fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins
Tími: Þriðjudalur 28. apríl,
fimmtudagur 30. apríl og miðvikudagur 5. maí kl.
20:10-22:00. Þrjú kvöld.
Verð:
9.500 kr.
Hér er eitt peningaplokkið í
viðbót. Stjórnin hefur áður staðið fyrir slíku.
Þetta er líka augljós tilraun til heilaþvottar,
sem þátttakendur eiga að borga fyrir sjálfir.
Er til fólk í okkar röðum, sem lætur glepjast?
Við þurfum engar upplýsingar frá þessum opinberu
embættismönnum um íslenzka samfélagið og kerfi þess í
kjölfar hrunsins. Auglýstir kennarar voru og eru
handbendi yfirvalda. Þeim er sízt treystandi til að gefa okkur
hlutlausar upplýsingar. Við ættum að vera nógu viti borin
til að leggja mat á allar aðstæður, ef við nennum því.
Við þurfum ekki að innleiða miðstýrt upplýsingakerfi í
líkingu við einræðisríki og slökkva á frjálsri og rökréttri
hugsun.
Því
miður eru margir svartir sauðir í okkar röðum, fólk,
sem er ekki treystandi til að koma neinu óbrengluðu til
hinna erlendu gesta okkar. Það er nauðsynlegt að halda
algerlega óháð námskeið fyrir þá um þessi mál og mörg önnur.
29.04.09.
Sjá frétt í netblaði Félags leiðsögumanna um
þátttöku 20 félagsmanna. Þetta er ekki hátt hlutfall
heildarinnar, en samt er slæmt að vita af 20 heilaþvegnum
leiðsögumönnum á ferðinni í sumar. Það er ekki mikið
mark takandi á svona fólki.
Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis,
félagi góður. Mundu það!
Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags
leiðsögumanna að segja strax af sér.
. |
.


Félag leiðsögumanna
Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is
Leiðsögumaður
(tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)

Ferðaheimur
Lög FFL 2007
Tillaga til
lagabreytinga 2009
Tillaga að
reglugerð allsherjarakv.gr. |