Félag leiðsögumanna Fagfélag,

Grein Ástu Ólu
í febrúar 2006

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
ELDRI PISTLAR


Reykjavík, 15. júní 2011.
Á netsíðu Félags leiðsögumanna birtist pistill, dagsettur 9. júní 2011, sem var ekki þar, þegar „leppstjórn" félagsins var sendur þessi netpóstur hinn 12. júní 2011.
Pistillinn tekur á flestu, sem um er spurt, en þó vantar enn þá kjöt á beinin.  Ég læt lesendur þessarar síðu um að finna út úr því.
Undirritaður skorar á alla félaga að heimsækja skrifstofu Félags leiðsögumanna og skoða listann yfir atkvæðisbæra leiðsögumenn.  Hafa allir, sem telja sig eiga rétt til að greiða atkvæði, fengið senda seðla?  Það voru gerð stórmistök við sömu athöfn, þegar núgildandi kjarasamningar voru bornir undir atkvæði.  Er nokkur ástæða til að ætla að ástandið sé betra nú?
Undirritaður skorar einnig á ykkur að fylgjast með talningu atkvæðanna.  Munurinn var svo naumur síðast, að undrum sætir.  Var maðkur í mysunni?
Undirritaður skorar á alla, sem hafa ekki fengið senda atkvæðaseðla, en telja sig eiga rétt til að hafa áhrif á gang mála, að hafa samband og senda mér netpóst til staðfestingar.  Við verðum að fara að rjúfa þennan vítahring aulaháttar, sem við erum búin að koma okkur í.

From: fridrikmh@live.com
To: hjalti.bj@saa.is
CC: kentb@mh.is; juliahannam@gmail.com; mckinstry@alla.is; bryndis@lydheilsustod.is; karijo@internet.is; vilborga@centrum.is; orvarmar@simnet.is
Subject: Allsherjaratkvæðagreiðsla.
Date: Sun, 12 Jun 2011 12:24:54 +0000

Ágætu viðtakendur,
Frestur til að skila atkvæðum um kjarasamninga 2011 rennur senn út.  Svar við spurningu minni hér að neðan og viðbrögð ykkar við neðangreindu í heild hafa ekki borizt.  Nauðsynlegt er að þið tjáið ykkur áður en fresturinn rennur út.  Það er ekki hægt að gera athugasemdir við framkvæmd allsherjaratkvæðagreiðslunnar að honum loknum.  Því skora ég á ykkur að svara mér umbúðalaust í tæka tíð.  Það ætti ekki að vera flókið.
Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson.

Reykjavík, 7. júní 2011.
From: fridrikmh@live.com
To: info@touristguide.is
Subject: FW: Fundur vegna kjarasamninga 2011
Date: Tue, 7 Jun 2011 13:37:41 +0000

Sæl Auður,
Svarið við neðangreindri spuringu barst í dag með póstinum.  Ég fékk atkvæðaseðilinn minn ásamt bréfi, sem er dagsett hinn 3. maí 2011.  Dagsetningin vekur upp spuringu um það, hvort gleymzt hafi að senda mér atkvæðaseðil með öðrum, sem eiga atkvæðisrétt, eða voru allir atkvæðaseðlar sendir atkvæðisbærum félögum samtímis?
Það er tiltekið í bréfinu, að „Ákveðið hafi verið" að viðhafa allsherjaratkvæðisgreiðslu um samninginn.  Það er eiginlega ekki hægt að viðhafa þessi orð um allsherjaratkvæðagreiðslu, því lög félagsins segja, að hún SKULI fara fram um kjarasamninga.  Það er engum falið að „ákveða" eða „ákveða ekki" að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um þá.
Akvæðabærir félagar eru jafnframt fullgildir félagar og við viljum fá að sjá listann með nöfnum okkar allra á vefsíðu félagsins.  Það er ekki nóg að segja í bréfinu, að við séum „um 150".  Við erum ákveðinn og ótvíræður fjöldi, sem þarf að gera öllum félögum grein fyrir.
Í bréfinu stendur ennfremur:  „Talning atkvæða fer síðan fram á skrifstofu félagsins klukkan 17:00, miðvikudaginn 22. júní og verður tilkynnt................."  Fullgildir félagar vilja af fenginni reynslu og gefnu tilefni eiga sérstakan fulltrúa úr sínum röðum við þessa talningu.  Meðal ágreiningsmála eftir síðustu allsherjaratkvæðagreiðslu um samninga var leynd og staðfestur grunur um kosningasvik, sem verða tekin upp á öðrum vettvangi með öðrum málum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
Vinsamlegast komdu þessum athugasemdum til „leppstjórnar" Félags leiðsögumanna, því öðrum er ekki til að dreifa í þessum furðulegu samtökum okkar.

Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson.

Sæl Auður,
Nú eru liðnir 8 dagar frá fundi um nýjan kjarasamning og ekki bólar á atkvæðagreiðslu um hann.  Hvenær má vænta þess, að við, sem höfum rétt til að greiða atkvæði, fáum tækifæri til þess?
Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson.

Reykjavík, 23. maí 2011
From: fridrikmh@live.com
To: hjalti.bj@saa.is
CC: kentb@mh.is; juliahannam@gmail.com; mckinstry@alla.is; bryndis@lydheilsustod.is; karijo@internet.is; vilborga@centrum.is; orvarmar@simnet.is; boh@internet.is; magnuso@aknet.is; skulimoller@simnet.is
Subject: Af gefnu tilefni.
Date: Mon, 23 May 2011 14:59:17 +0000


SKILABOÐ til félags leiðsögumanna.
Þið, sem fáið þennan netpóst, hafið ekki löglegt umboð til að annast störf fyrir Félag leiðsögumanna.  Þessi staðreynd hefur verið útskýrð bæði í orði og á borði, svo að enginn ætti að fara í grafgötur um rökin fyrir henni.
Haldi áfram sem horfir, sér undirritaður sér ekki annað fært en að gera ykkur persónulega ábyrg fyrir gerðum ykkar, þegar dómsmál gegn félaginu og einstaklingum, sem bera ábyrgð á stöðu félagsins eftir aðalfundinn árið 2005, verður þingfest.
Aðalfundirnir eftir 2005 hafa í raun allir verið ólöglegir, þótt undirritaður hafi ekki haft uppi mótmæli og tilraunir til að hindra framgang þeirra fyrr en árin 2010 og 2011.
Þessi þróun mála hefur ekkert með persónur ykkar að gera, heldur þátttöku í ólöglegum gerningum, sem verður notuð gegn ykkur í komandi málaferlum.
Mér finnst sorglegt, að þurfa að beita þessum harkalegu viðbrögðum.  Aðrar leiðir hafa verið fullreyndar.  Líklega tekst ekki að þingfesta einkamál gegn félaginu og einstaklingunum, sem bera ábyrgð á stöðunni, fyrr en eftir réttarhlé, en þið þurfið ekki að velkjast í vafa um, að það verður gert.
Uppi er spurning um umsýslu sjóða félagsins við þessar aðstæður.  Niðurstaða héraðsdóms kynni að leiða til kæru til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Undirritaður var að velta því fyrir sér, hvort hann ætti að sækja auglýstan fund um kjarasamning félagsins við SA í kvöld.  Niðurstaðan varð sú, að senda frekar þessa aðvörun í netpósti til ykkar og benda ykkur á að kynna ykkur betur allan aðdraganda þessa leiðindamáls hér.
Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson, félagi nr. 76.

Reykjavík, 24. apríl 2011
Nú er því miður svo komið, að undirritaður verður að leita til dómstóla til að ná fram rétti sínum í Félagi leiðsögumanna.  Allar tilraunir til sátta hafa reynzt árangurslausar og ekki verður unað við núverandi ástand.

Nr. 1. Lagt fram í  héraðsdómi Reykjavíkur, 10. maí 2011.
STEFNA
Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Reykjavík, kt. 240746-2209, félagi nr. 76 í Félagi leiðsögumanna.

Gerir kunnugt, að hann þurfi að höfða mál á hendur Félagi leiðsögumanna, kt. 510772-0249, Mörkinni 6, 108 Reykjavík, til slita núverandi stéttarfélags og endurstofnunar fagfélagsins Félag leiðsögumanna, eða boðun löglegs aðalfundar strax eftir uppkvaðningu dóms eftir atvikum.  Stefnandi þarf í beinum tengslum við þetta mál að höfða mál gegn tilgreindum, núverandi og fyrrverandi  formönnum og stjórnarmönnum, sem með aðgerðum sínum og/eða aðgerðarleysi hafa leitt til núverandi stöðu félagsins (sjá fylgiskjal stefnu með lista og tilefni stefnu í hverju tilviki).

Málflutningsumboð:  Stefnandi sjálfur, Friðrik Haraldsson.

Dómkröfur:  Stefnandi gerir eftirfarandi dómkröfur: Að stefnda, Félagi leiðsögumanna,verði gert að boða strax til slitafundar stéttarfélagsins Félags leiðsögumanna og stofnfundar fagfélags Félags leiðsögumanna.  Varakrafa er, að stefnda verði gert að boða strax til löglegs aðalfundar Félags leiðsögumanna.  Að stefndu, tilgreindum fyrrverandi og núverandi formönnum og stjórnarmönnum, verði gert að greiða skaðabætur til félagsins að mati dómsins.  Öllum stefndu verði einnig gert að greiða stefnanda stefnubirtingar og þingfestingu ásamt dráttarvöxtum frá stefnudegi til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.  Að auki er krafizt útlagðs máls- og ferðakostnaðar samkvæmt síðar framlögðum reikningum og/eða að álitum dómsins í samræmi við XXI kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sem beri vexti samkvæmt framangreindum lagaákvæðum.

Málavextir og málsástæður:  Stefnandi gerðist félagi í Félagi leiðsögumanna árið 1978 og hefur verið félagi samfleytt síðan.  Lög félagsins voru og eru samningur milli heildarinnar og einstakra félagsmanna.  Lögunum má breyta í samræmi við réttar reglur á aðalfundum félagsins.
Fyrstu alvarlegu vanhöldin á stjórnsýslu og lagabreytingum urðu á aðalfundi félagsins árið 2005, þegar félaginu var breytt úr fagfélagi (aðgangur skilyrtur; ákveðinnar menntunar krafizt) í stéttarfélag (öllum opið).  Þessi breyting var í eðli sínu langt umfram eðlilegar lagabreytingar og þýddi í raun slit fagfélags og stofnun stéttarfélags án slitafundar hins fyrrnefnda og stofnfundar hins síðarnefnda (sjá lög félagsins 2004 og 2005).
Önnur alvarlegu vanhöldin á boðaðri dagskrá og lagabreytingum urðu á aðalfundi félagsins árið 2010, þegar stjórn þess lét þess ekki getið í fundarboði, að laganefnd, sem var kjörin á aðalfundi 2009, mundi skila niðurstöðu sinni.  Stjórninni var ítrekað bent á þessi mistök fyrir aðalfundinn, en hún lét ekki segjast (sjá afrit netpósta).  Rökstudd dagskrártillaga um slit þessa fundar og boðun löglegs aðalfundar var felld.
Þriðju alvarlegu vanhöldin á boðaðri dagskrá og lagabreytingum urðu á aðalfundi félagsins árið 2011, þegar stjórn þess lét þess ekki getið í fundarboði, að laganefnd, sem var kjörin á aðalfundi 2009, mundi skila niðurstöðu sinni og í kjölfar ólöglegs aðalfundar árið 2010 yrði efnt til kosninga í öll embætti félagsins.  Þá voru aðeins tveir réttkjörnir í stjórn félagsins og þeim var ítrekað bent á þessi mistök fyrir aðalfundinn, en þeir létu ekki segjast (sjá afrit netpósta).  Rökstudd dagskrártillaga um slit þessa fundar og boðun löglegs aðalfundar var felld.

Framangreind vanhöld eru skýlaus brot á lögum um slit og stofnun félaga og lögum Félags leiðsögumanna í gegnum tíðina hvað varðar hlutverk formanns og stjórnar, dagskrá aðalfunda, breytingar á lögum félagsins og tilefni til allsherjarakvæðagreiðslna (númer greina mismunandi eftir árum).

Lagarök: 
Stefnandi byggir kröfur sínar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur 80/1938 með stoð í öllum greinum þeirra, sem varða innviði stéttarfélaga og lögum Félags leiðsögumanna 2004, 2005, 2006, 2007 og 2008, 2009, 2010 og 2011.
Um gjalddaga kröfunnar vísast til meginreglu samningsréttarins um, að samninga og aðra löggerninga skuli halda/efna sbr. lög nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga.  Krafa um vexti og dráttarvexti skv. III kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.  Krafa um málskostnað er gerð í samræmi við XXI kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Framlögð skjöl og skýrslur:  Við þingfestingu mun stefnandi leggja fram afrit af stefnu, stefnubirtingarvottorð og reikning vegna stefnubirtinga.  Að öðru leyti vísast til vefsíðu http://www.icelandonline.is/Guides/zgrein1_050506.htm og framlagðra netpósta, sem vísað er til í málavöxtum og málsástæðum.
Lokaviðvörun var send 27. apríl 2011 sem áskorun og beiðni til Félags leiðsögumanna um birtingu á þessari stefnu og tilefnis hennar í netblaði félagsins.
Áskilnaður er um framlagningu frekari gagna gefi málatilbúnaður og andmæli stefndu tilefni til.
sem og að leiða vitni fyrir dóminn.

Fyrirkall:  Fyrir því stefnist hér með Félagi leiðsögumanna, kt. 510772-0249, Mörkinni 6, 108 Reykjavík, og eftirtöldum, fyrrverandi og núverandi formönnum og stjórnarmönnum (sjá meðfylgjandi lista og tilefni stefnu) til þess að mæta fyrir sína hönd á dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð verður í dómshúsinu við Lækjartorg, 101 Reykjavík, hinn 10.? maí 2011 kl. 14:00, er mál þetta verður þingfest, til þess þar og þá, ef ekki verður sátt í málinu, að sjá skilríki í dóm lögð á dómkröfur og sókn sakar að hlýða, til saka að svara, á réttarkröfur hlýða og leggja fram gögn af sinni hálfu.  Ef ekki verður mætt af hálfu stefndu við þingfestingu málsins má búast við að útivistardómur gangi í málinu.

Stefnufrestur er 7 sólarhringar.
Reykjavík  1. maí 2011.
Friðrik Haraldsson

„Því hefur verið haldið fram, að íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með þvi að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít, sem ekki kemur málinu við; en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.” Halldór Laxness í Innansveitarkróníku.

ELDRI PISTLAR

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Tillaga til lagabreytinga 2009

Tillaga að reglugerð allsherjarakv.gr.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - fridrikmh@simnet.is             HEIM