|
Félag
leiðsögumanna Fagfélag,

Skýrsla stjórnar Aðalfundur 2005
Ásta Óla
Lög um atvinnuréttindi útlendinga
10. maí 2002.
Breytingar á lögum
im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.
Lög ASÍ
Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.
Leiðsögunám í
Leiðsögusk. Ísl. í MK
Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.
Leiðsögunám EHÍ
Eru skólarnir viðurkenndir? |
FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! -
ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
Reykjavík,
21. ágúst 2009.
Samkvæmt neðangreindri tilkynningu frá stjórn Félags
leiðsögumanna er ljóst, að það er einbeittur ásetningur
hennar að grafa okkur eins djúpa gröf og nokkur kostur er.
Þessari tilkynningu fylgdu fréttir af launakjörum
leiðsögumanna með öllum viðbótarliðim innreiknuðum.
Það er sama, hversu heimskt og utangátta fólk í stjórnum
stéttarfélaga er, það birtir aldrei annað en strípaða taxta
í umfjöllun sinni. Stjórn okkar er vísvitandi að fegra
ótrúlega lélega afkomu okkar. Hvað er að þessu fólki?
Þarf ekki að fara að koma því úr stöðu til að rústa öllum
hagsmunum okkar?
TILKYNNING FRÁ STJÓRN:
Samningur SA, SAF, ASÍ og Fl.
17.7.2009. Fimmtudaginn 2. júlí s.l. var haldinn
stjórnarfundur í stjórn FL. Meðal dagsskrárliða voru
nýgerðir samningar aðila vinnumarkaðarins, Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins, um launamál. Samningur
þessi var mikilvægur þáttur í gerð svokallaðs
stöðugleikasáttmála milli ríkisvaldsins og aðila
vinnumarkaðarins.
Niðurstaða aðila var sú að 01.07.09 skulu
laun
hækka um helming þeirrar hækkunar sem koma átti til
framkvæmda 01.03. s.l. sjá töflu hér að
neðan
Frá stjórn Félags leiðsögumanna Stjórnarfundur um samninga
Eins og kunnugt er var, vegna ástandsins, samþykkt að fresta
breytingu samninga til 01.07. Forsendur samninga voru foknar
út í veður og vind en við gerð upphaflegra samninga átti
enginn von á svona skelfilegum forsendubresti.
Nýr
samningur FL og SA var undirritaður 29.05.08. Samkvæmt honum
áttu laun að hækka um kr. 10.000 01.03.09 og kr. 8.000
01.01.10. Samkvæmt nýgerðu samkomulagi hækka laun
fastráðinna leiðsögumanna um kr. 5.000 frá 01.07.09 og aftur
um kr. 5.000 frá 01.11.09 og síðan um kr. 8.000 frá 01.06.10
og kemur loka hækkunin þannig hálfu ári seinna fram en samið
var um í upphafi. Stjórnin ræddi um ástandið sem
troðið hefur verið upp á þjóðina. Við
hefðum getað sent niðurstsöður samninga í
allsherjaratkvæðagreiðslu en mátum aðstæður þannig að slík
leið væri ekki fýsileg því það gæti þýtt að félagsmenn yrðu
samningslausir og litlar líkur á árangri í viðræðum við
ferðaskrifstofur. Nú stendur yfir annasamasti tími
leiðsögumanna og væri því erfitt að fá fólk til að sinna
nauðsynlegri vinnu við samninga og hvað það annað sem sinna
þyrfti.
Stjórnin ákvað því að samþykkja gerða samninga. Með því
gerumst við aðilar að þeirri miklu samstöðu sem myndast
hefur meðal aðildarfélaga Alþýðursambands Íslands um að
berjast saman að lausn erfiðleika þjóðarinnar.
Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis,
félagi góður. Mundu það!
Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags
leiðsögumanna að segja strax af sér.
. |
.


Félag leiðsögumanna
Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is
Leiðsögumaður
(tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)

Ferðaheimur
Lög FFL 2007
Tillaga til
lagabreytinga 2009
Tillaga að
reglugerð allsherjarakv.gr. |