Félag leiðsögumanna Fagfélag,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 25. janúar 2009
Enn á ný er aðalfundur hinnar litskrúðugu stéttar leiðsögumanna ferðamanna í augsýn, líkast til í lok næsta mánaðar.

Enn á ný gefst okkur tækifæri til að bæta úr öllu, sem hefur farið úrskeiðis í áranna rás.

Mun æðsta stofnun félagsins láta allt reka á reiðum áfram eða sýna manndóm, siðferðisþrek, framsýn og framtak til að sópa spillingunni út og hleypa lýðræðinu inn?

Er úrbóta þörf?
1.  Við þurfum nýja formenn, atvinnumenn með gott siðferðisþrek og hugsjónir.
2.  Við þurfum að losna við Jens Rumini og Marion Lerner úr stjórn félagsins.
3.  Við þrufum að losna úr heljargreipum ASÍ.
4.  Við þurfum að tryggja, að Leiðsöguskóli Íslands verði ekki að undirmálsskóla.
5.  Við þurfum að tryggja Leiðsöguskólanum viðurkenningu á háskólastigi.
6.  Við þurfum að segja upp kjarasamningum okkar við allrafyrsta tækifæri.
7.  Við þurfum að endurreisa ímynd okkar út á við.
8.  Við þurfum að fara að vinna með öðrum í ferðaþjónustunni sem félag.
9.  Við þurfum að tryggja, að stjórnir félagsins fari að lands- og félagslögum.

Margt annað mætti tína til og listinn lengist vafalaust áður en við setjumst niður á aðalfundinum.  Við brenndum okkur á tómstundagenginu, sem skilaði af sér meingölluðum kjarasamningum í síðustu lotu, eins og reyndar allar götur frá árinu 2000.  Þar er líka úrbóta þörf.

Núverandi stjórn félagsins ætlar ekki að sýna þann manndóm að segja upp kjarasamningum okkar áður en frestur rennur út 1. febrúar 2009.  Hún sefur á verðinum og heldur að ASÍ beri hag okkar fyrir brjósti.  Hún nennir ekki að átta sig á því, að holubúunum og pappírstígrisdýrunum þar er skítsama um okkur.  Þar á bæ er fólk búnið að koma sér vel fyrir í hlýjum hreiðrum, hugsar aðeins um eigið skinn og lætur okkur borga brúsann.  Lög ASÍ er hvílíkur klafi fyrir aðildarfélög, að  ólýðræðislegra kerfi er vandfundið.


Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!  Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja strax af sér.

Copyright ©FH2008

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM