Félag leiðsögumanna Fagfélag,

Skýrsla stjórnar Aðalfundur 2005
Ásta Óla

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

Reykjavík, 25. apríl 2009.
Laganefnd, sem var kosin á aðalfundi félagsins 26. febrúar síðastliðinn, fjallaði um lagabreytingatillögur undirritaðs kvöldið 22. apríl.  Hún komst að einróma niðurstöðu um nauðsyn þeirra og að þær skyldu bornar upp á framhaldsaðalfundi 27. apríl 2009.

Möguleiki til skilyrtrar breytingar 12. gr. var ræddur og talað um, að hún gæti hugsanlega tekið gildi á næsta aðalfundi.

Undirritaður gæti sætt sig við þessa lausn, ef stjórn félagsins treystir sér til að halda formönnum félagsins í gjörgæzlu á meðan.  Annars gildir áskorunin, sem fylgir ævinlega þessum pistlum.

Nefndin ræddi einnig stuttlega tillögur um breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs félagsins, sem frestað var til þessa fundar.  Í ljós kom, að útgreiðslur úr sjóðnum styttast úr tólf mánuðum í fjóra.  Að þessum fjórum mánuðum liðnum tekur við
nýr, sameiginlegur sjúkra- og endurhæfingarsjóður aðila vinnumarkaðarins.  Skúli Möller tjáði mér 24. apíl, að þessi skipan táknaði ekki hertar greipar ASÍ um háls félagsins, því öll félög með samning við SA, innan sem utan ASÍ, ættu í sjóðinn að sækja.  Ekki er að sjá, að réttur okkar til sjúkrabóta raskist, þótt skýrar sé tekið til orða en í fyrri reglugerð (2002).

Þessi sjóður ASÍ eða annarra félaga og SA er ekki kominn á koppinn, þegar þetta er skrifað og verður tæplega fæddur, þegar breytingartillagan verður borin upp á framhaldsaðalfundinum.  Aðalfundargestir verða því að gera upp við sig, hvort þeir samþykkja þessar breytingar að samningi milli aðila vinnumarkaðarins óséðum.  Við biðjum Skúla um nánari skýringar á efni hans og hvort það liggi nokkuð klárt fyrir.

Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!  Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja strax af sér.



.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Tillaga til lagabreytinga 2009

Tillaga að reglugerð allsherjarakv.gr.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM