fagfélag leiðsögumanna grein 27. apríl 2008,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 27. apríl 2008.
Hér á eftir fara netpóstviðskipti Félags leiðsögumanna og undirritaðs vegna spurninga, sem hann sendi stjórninni 2. apríl síðstliðinn.

From: Fridrik Haraldsson
 [mailto:info@nat.is]
Sent: 2. apríl 2008 21:49
To: Félag leiðsögumanna
Cc: valsson@centrum.is
Subject: Spurningar til stjórnar.

Heil og sæl Hafdís,
Vinsamlegast komdu eftirfarandi erindi til stjórnar félagsins við fyrsta tækifæri:

Eftirfarandi óskast tekið fyrir á næsta löglega stjórnarfundi Félags leiðsögumanna:

Síðasta málsgrein 15. gr. félagslaga hljóðar svona:  „Ritari ber ábyrgð á birtingu fundargerða félags- og stjórnarfunda á vefsíðum félagsins innan 10 daga frá hverjum fundi.”

Komst stjórnarfundur að niðurstöðu um að túlka þessi orð þannig, að dagskrá hvers fundar sé fullnægjandi birting?
Hvenær birtast úrdrættir fundargerða?

Þrátt fyrir vandlegan yfirlestur, fann ég ekki dagskrárlið stjórnarfundar á fyrri hluta síðasta árs (2007), sem gefur vísbendingu um lýðræðislega ákvörðun löglegs fundar um að efna til lögsóknar á hendur mér vegna merkis félagsins.  Hvaða stjórnarfundur tók þessa ákvörðun og hverjir sátu hann?

Undirritaður biður stjórn um að endurskoða neikvætt svar við beiðni um aðgang að fundargerðum áranna 2003, 2004 og 2005 (fram að aðalfundi).  Félagar eiga ótvíræðan rétt til að kynna sér, hvort eðlilega og löglega var staðið að gjörbreytingu félagsins.

Hefur skrifstofustjóra félagsins verið tilkynnt, að greinar 2.4.1.og 2.5.2. í samningum SA og Fl beri ekki að túlka þannig, að álagsgreiðsla vegna ökuleiðsögu hafi hækkað í 55% hinn 1. janúar 2007?

Hvenær ætlar stjórn félagsins að reyna á ný og í alvöru að fá skólastjóra Ferðamálaskóla Íslands í Bíldshöfðanum til að afla honum viðurkenningar menntamálaráðs?

Gerir stjórnin sér grein fyrir því, hve mikilvægt réttlætismál þetta er?
Það verður ekki flóarfriður í félaginu á meðan ástandið er óbreytt.

Skrifleg svör óskast.  Tölvupóstur ákjósanlegur.

Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson #76.
Cc. til ritnefndar.


From: Félag leiðsögumanna
----- Original Message -----
To:
info@nat.is
Cc: ragnheib@raunvis.hi.is ; gudrun@in.is
Sent:
Friday, April 25, 2008 12:39 PM
Subject:
Svar stjórnar Fl.

Stjórn Félags leiðsögumanna telur fullnæjandi að birta á netinu dagskrá stjórnarfunda og ákvarðanir sem teknar eru á stjórnarfundum, munum stjórnin sjá til þess fyrir árið 2008. Ef einhver hefur áhuga á að vita frekar um einstaka dagskrárliði eru þeir beðnir að senda fyrispurn til skrifstofu F.L.

Stjórnin hefur ákveðið að veita þér umbeðin aðgang að þeim fundargerðabókum sem þú óskar eftir með sömu fyrirvörum og getið er um í tölvupósti til þín 14. mars 2008.  Samkvæmt ráðleggingum lögfræðings eiga tveir stjórnarmenn að vera viðstaddir. Vinsamlega láttu vita tímalega hvenær þér hentar að koma.

Sú  ákvörðun stjórnar að vísa merkjamálinu til lögfræðings var tekin á stjórnarfundi þann 6. febrúar 2007, var sú ákvörðun rædd utandagskrár.  Eftirtaldir voru mættir á þessum fundi Guðrún, Ragnheiður, Kent Lárus, Jens, Karl, Hörður, Pétur Gauti og Þórhildur.

Ragnheiður og  Pétur Gauti vildu ræða við þig um merkið og fleira þegar þú varst boðaður til fundar í Matstofu vesturbæjar en þú neitaðir að mæta  þar. Þau töldu að á þeim tímapunkti hafi þeim ekki verið annað fært en senda málið til lögfræðings.  Stjórnin var öll með í ráðum um þessa aðgerð.

Skrifstofustjóranum hefur ekki verið tilkynnt hvernig á að túlka samningana heldur reynir hún að svara eftir bestu getu. Hún veit jafnframt í dag að ökuleiðsögn og álagsgreiðslur eru ekki það sama.

Stjórnin heldur áfram að sinna menntamálum af bestu getu og hafa áhrif á alla skóla, leiðsögumönnum til framdráttar.
Það ætti að vera skólastjóra Höfðaskólans metnaðarmál að fara eftir námsskrá menntamálaráðuneytisins en ekki bara að styðjast við hana.

Sent að beiðni stjórnar.

Kveðja,
Hafdís Jónsteinsdóttir, skrifstofustjóri


Svar til stjórnar 27. apríl 2008:

Sæl Hafdís,

Verst, að þú skulir vera hér á milli steins og sleggju, en stjórnin leggur þér þessar byrðar á herðar.  Vinsamlegast skilaður eftirfarandi til hennar frá mér:

1.  Skömm ykkar verður því meiri, sem þið þrjózkizt lengur við að birta ágrip af ákvörðunum ykkar á stjórnarfundum og ágrip félagsfunda, sem virðast verða æ færri.  Slík þróun ber vott um einræðistilburði í félagi, sem á að heita lýðræðislegt. 
Ég get svo sem beðið Magnús Norðdahl hjá ASÍ að útskýra fyrir ykkur 15. grein félagslaga okkar. (http://www.icelandonline.is/Guides/zgrein310308.htm)
Spurningunni er ósvarað:  Hvenær munu ágrip fundargerða birtast á heimasíðu félagsins?

2.  Ég þigg þennan aðgang og læt ykkur vita, þegar mér hentar bezt.

3.  Ljóst er af orðunum hér að ofan, að þið ætlið ekki að feta götur sannleikans, þótt netpóstur milli formanna félagsins og mín skýri nákvæmlega, að hann eigi ekki við um merki félagsins og ákvörðunina um lögsókn.  Skúli Möller staðfestir þetta í netpósti.  Mér þykir fyrir því, að formenn félagsins hafi beitt ósannindum til að fá nefnda stjórnarmenn til að samþykkja óþörf fjárútlát félagsins til að veitast að mér að ástæðulausu gegnum lögfræðing.
Vinsamlegast skoðið þessa netpósta, ef eitthvað er að vefjast fyrir ykkur í þessu sambandi:  http://www.icelandonline.is/Guides/zgrein290208.htm og 
http://www.icelandonline.is/Guides/tolvupostur16_180207.htm.
Það er engin skömm að viðurkenna mistök og það er aldrei of seint.
Hvenær má vænta réttrar frásagnar stjórnar varðandi þetta mál?

4.  Hafdís er örugglega skynsöm og dugleg kona.  Hún kemur mér þannig fyrir sjónir og svo er hún alltaf í góðu skapi.  Mér finnst samt ástæða til að stjórnin fari að lögum félagsins og annist eftirlitshlutverk sitt með skrifstofu félagsins.
Ætlar stjórn félagsins að fara að lögum og reyna að tryggja, að upplýsingar til félagsmanna verði eins réttar og kostur er hverju sinni?

5.  Stjórnin heldur ekki áfram að sinna menntamálum okkar af beztu getu fyrr en hún hefur gengið endanlega úr skugga um, hvort Friðjón í Ferðamálaskóla Íslands hyggst eða hyggst ekki afla leiðsöguskóla sínum viðurkenningar menntamálaráðs.  Málið er ekki flóknara en það.  Þið eigið að kanna þetta niður í kjölinn, en ekki sífellt að vera að benda á fólk út í bæ.  Friðrik á að
gera þetta.....   Friðjón á að gera þetta......
Einhverjir kusu ykkur og þið buðuð ykkur fram til að sinna svona verkum.
Er verið að vinna að þessu máli?  Sé svo, hver er staðan?  Sé svo ekki, hvers vegna?

6.  Stjórn félagsins tilkynnir í netfréttum hinn 2. apríl 2008 um viðræður við EHÍ í tengslum við flutning leiðsögunámsins á háskólastig.  Að sögn Jóhönnu Rútsdóttur, verkefnastjóra, og Kristínar Jónsdóttur, forstöðumanns EHÍ, er frumkvæðið að öllu leyti EHÍ-megin.  Þið áttuð sem betur fer ekki aðild að þessari þróun.  Verið þið þakklát fyrir, því ykkur verður þá ekki kennt að öllu leyti um aukið eldsneyti á ófriðarbálið í félaginu.  Þið hefður þó getað reynt að veita eitthvert viðnám og reynt að fyrirbyggja, að einn skóli í viðbót fer að framleiða leiðsögumenn á eigin forsendum.  Þeir verða þriðja deildin í félaginu.  Hafið þið hugleitt það?
Þið eruð ekki búin að standa við að fá leiðsögunámið flutt á háskólastig fyrr en Leiðsöguskóli Íslands fær viðurkenningu sem skóli á háskólastigi með a.m.k. 60 eininga námskrá.  Það stendur í lögum félagsins!
Sólveig, fagstjóri Leiðsöguskóla Íslands, sagði, að Margrét, skólástjóri MK, væri orðin hlynnt hugmyndinni um viðurkenningu háskólastigs Leiðsöguskólans.
Er verið að vinna í þessu máli?  Sé svo, hver er staðan?  Sé svo ekki, hvers vegna?

7.  Ég er farinn að ljúka pistlum mínum á heimasíðu minni með því að skora á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja af sér strax og einkunnarorðunum:  „
Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!”
Mér gæti ekki verið meiri alvara!

Svara við ósvöruðum spurningum vænzt við allrafyrsta tækifæri!
Undirritaður krefst undanbragðalausra svara frá næsta löglegum stjórnarfundi með nöfnum stjórnarmanna, sem sitja hann.

Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson.
Cc til ritstjórnar, ASÍ og Skúla Möller.

Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!  Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja strax af sér.

Friðrik Haraldsson

Copyright ©FH2008
.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM