fagfélag leiðsögumanna grein 28. júní 2008,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 28. júní 2008.
Undirritaður getur ekki á sér setið að birta hér netpósta, sem fóru milli hans og hins ágæta ritstjóra netblaðs Félgas leiðsögumanna vegna óskar um birtingu pistilsins frá 24. júní (hér að neðan) í netblaði félagsins:

-----Original Message-----
From: valsson@centrum.is
[mailto:valsson@centrum.is]
Sent: 25. júní 2008 12:08
To: Ingvar Sverrisson
Subject: Fyrirspurn vegna atkvæðagreiðslu hjá Félagi leiðsögumanna

Sæll Ingvar,
Ég er með eina fyrirspurn sem mér dettur í hug að þú getir svarað.  Ég er ritstjóri vefsíðu félagsins og fæ ýmsar fyrirspurnir og óskir í sambandi við það.  Ein slík er hvort ekki sé hægt að birta nöfn allra sem voru á kjörskrá fyrir kjarasamningana, og allra sem greiddu atkvæði.  Er það löglegt og leyfilegt?
Kv,
Stefán Helgi Valsson
Sími/tel. 897 2790

Date: Wed, 25 Jun 2008 12:31:24 +0000
From: "Ingvar Sverrisson" <Ingvar@asi.is>
To: <valsson@centrum.is>
Subject: RE: Fyrirspurn vegna atkvæðagreiðslu hjá Félagi leiðsögumanna

Sæll Stefán,
Nei. Það vill svo til að samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsingar eru upplýsingar um aðild launafólks að stéttarfélögum skilgreindar sem "viðkvæmar persónuupplýsingar". Vinnsla slíkra upplýsinga er því sérstökum takmörkunum háð.

Listi birtur á heimasíðu félagsins með nöfnum félagsmanna sem fengu send kjörgögn annars vegar og þeirra sem nýttu atkvæðarétt sinn hins vegar myndi samkvæmt lögunum flokkast sem vinnsla viðkvæmra persónulegra upplýsinga.

Samkvæmt lögunum er slík vinnsla og í kjölfarið birting á niðurstöðu hennar háð því að félagið hafi fyrirfram aflað ótvíræðs samþykkis hvers og eins fyrir þeirri birtingu.

Miklu eðlilegra er að félagið birti einungis frétt um þessar kosningar, með tölum um hve margir voru á kjörskrá, þátttöku og hvernig atkvæði skiptust.

Samkvæmt þessum lögum er Félagi leiðsögumanna óheimilt að afhenda markaðsaðilum lista með nöfnum félagsmanna.

Læt fylgja með link á lögin. http://www.althingi.is/lagas/nuna/2000077.html

kv. Ingvar


Undirritaður sendi ritstjóra (Cc:  Ingvar Sverrisson c/o ASÍ) eftirfarandi síðdegis sama dag:

Sæll Stefán,
Að athuguðu máli hjá mínum lögvitringum sýnist mér Ingvar vera að iðka hin loðnu svör eins og oft er að vænta frá mönnum í hans stöðu.  Ég býst ekki við, að spurning þín hafi kallað á svona flókið svar.  Líklega hefurðu spurt, hvort leyfilegt sé að birta lista yfir félaga, sem máttu neyta atkvæðisréttar samkvæmt lögum félagsins, og ekki vænzt svara við einhverju öðru en þú spurðir um.

Mín krafa hljóðar bara upp á mannanöfn án nokkurra annarra upplýsinga (engar kenntölur, símanúmer, heimilisföng o.þ.h.).  Hver og einn þekkir sitt  nafn. Það var ekki minnst á lista yfir félaga, sem neyttu atkvæðisréttar eða lista  yfir þá, sem það gerðu ekki.  Það skiptir ekki máli.  Það, sem skiptir máli er, að félagar, sem máttu greiða atkvæði fái að sjá nöfn sín og gera síðan athugasemdir, ef þeir hafa ekki fengið senda atkvæðisseðla.  Svona einfalt er þetta.  Það þarf ekki að búa til úlfalda úr mýflugu.  Verði stjórn félagsins ekki við þessari kröfu, verður að líta svo á, að brögð hafi verið í tafli.  Öll undanbrögð eru stjórninni í óhag.

Þú hlýtur að sjá, hvaða feluleik og fantaskap stjórn okkar félags, eða einhvers annars, getur iðkað í skjóli svona laga, sem í raun og veru eiga ekki við og mega ekki eiga við svona tilfelli.  Þetta er eins greið leið til spillingar og hrollvekju fyrir félagsmenn í svokölluðum lýðræðislegum stéttarfélögum og hugsast getur.  Túlkun laganna á þennan hátt getur ekki á nokkurn hátt verið rétt eða átt rétt á sér.

Það bætast stöðugt fleiri ástæður fyrir úrsögn úr ASÍ í safnið, þegar svona kemur upp.  Það er langt í frá að þessu sé lokið af minni hálfu og fleiri félaga okkar, sem sætta sig ekki við svona málalok.  Þetta getur hreinlega ekki verið rétt og verður látið á það reyna eins fljótt og nokkur kostur er.

Þakka þér fyrirhöfnina í kringum þetta.  Þú heyrir frá mér aftur innan tíðar.

Beztu kveðjur,
Friðrik.

----- Original Message -----
From: <valsson@centrum.is>
To: "Fridrik Haraldsson" <info@nat.is>
Sent: Saturday, June 28, 2008 9:37 PM
Subject: Re: Önnur tilraun.

Sæll Friðrik,
Ég vil ekki birta þetta á síðunni okkar. Hins vegar skal ég skrifa stutta frétt um þetta og vísa á heimasíðuna þína, ef þú birtir þetta efni þar.

Kv, Stefán

----- Original Message -----
From: "Fridrik Haraldsson" <info@nat.is>
To: <valsson@centrum.is>
Sent: Saturday, June 28, 2008 10:46 PM
Subject: Re: Önnur tilraun.

Sæll aftur,
Ég held, að ég afþakki milligöngu netblaðs félagsins okkar að heimasíðu minni í þessu tilfelli á þeirri forsendu, að fordæmi er komið fyrir beinum skrifum félaga í tengslum við kjarasamninginn í nefnt blað.

Þú þarft að rökstyðja þetta stutta svar þitt, svo það líti ekki út eins og ritskoðun.

Beztu kveðjur,
Friðrik.

Það er til háborinnar skammar, að við látum svona hegðun líðast!!

Copyright ©FH2008

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM