|
Reykjavík
30. júlí 2008.
Rökstuddur grunur um mikla handvömm viđ
allsherjaratkvćđagreiđslu vegna kjarasamninga félagsins
virđist ţví miđur eiga sér verulegar stođir. Stjórn
félagsins hefur tekizt ađ klúđra einu málinu í viđbót, máli,
sem viđ eigum öll eftir ađ líđa fyrir nćstu ţrjú árin.
Ástćđan er einföld: Ţađ er hvergi hćgt ađ kćra
niđurstöđu handabakavinnu af ţessu tagi. ASÍ (Ingvar)
sver af sér alla ábyrgđ á misgjörđum stjórna félaga, sem
eiga ţar ađild. Félagsmálaráđuneytiđ sver af sér brot
á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Hvert er ţá
hćgt ađ snúa sér? Ţá er einungis fćr leiđ um dómskerfi
landsins. Vilja einhverjir leiđsögumenn leggja á sig
ađ knýja ţetta mál í gegn ţar? Erum viđ, sem lifum ađ
mestu á leiđsögu, ekki nógu mörg og öflug til ađ standa í
ţví ađ leita réttar okkar? Er allt í lagi ađ leyfa
stjórn stéttarfélags ađ komast upp međ svona glćp?
Fyrir skömmu tók ferđamálastjóri kipp vegna ýmiss konar
ađfinnslu um ađbúnađ á ferđamannastöđum. Eftirskjálftarnir
náđu upp í sitjandann á formanni Félags leiđsögumanna.
Hún stóđ upp úr hćgindum sínum međ bođskap til undirsátanna:
„Nú skuliđ ţiđ safna upplýsingum um
allt, sem betur má fara.” Hvađ skyldi svo verđa um
ţćr, komnar í hús í Mörkinni?
Ţar koma ţćr til međ ađ gufa upp, ţví ađ ţessir
formannsrćflar okkar nenna ekki ađ gera nokkurn hlut af viti
fyrir okkur, hvađ ţá ferđaţjónustuna í heild.
Fyrrum ţótti ţetta sjálfsagt og leiđsögumenn voru duglegir ađ skila inn skýrslum
ađ sumri loknu. Núna
nennir enginn neinu. Ţađ er engin hugsjón lifandi
lengur í ţessum félagsrćfli og öllum er sama, hvort nokkuđ
gerist eđa gerist ekki. Ţađ er beinlínis orđiđ
mannskemmandi ađ láta nafns síns getiđ í sömu andrá og
félagiđ er nefnt.
Búi eitthvađ annađ en orđin tóm ađ baki tilkynningu frá
formanninum í ţessa veru, skal henni bent á allar ţarfar
ábendingar, sem hafa komiđ fram hin síđustu ár - án ţess, ađ
hún hafi sýnt ţeim nokkurn áhuga. Viđ höfum ekki
hugmynd um athafnir og umrćđuefni stjórnar félagsins okkar,
ţví stjórnin framfylgir stefnu sinni um lögbrot af hvílíkum
ásetningi, ađ undrum sćtir. Formađurinn hefur hafnađ
ţví opinberlega ađ fara ađ lögum félagsins um birtingu
fundargerđa stjórnar á vefsíđum félagsins.
Inter-Nordic Guide Club sendi okkur fyrsta fréttabréf
sitt í ár. Einhvern veginn hefur stjórn félagsins
okkar tekizt ađ halda upplýsingum um okkur svo vel leyndum,
ađ ekkert er ađ finna um íslenzka leiđsögumenn í ţví.
Ţessar eru afleiđingar gerđa ţinna eđa ađgerđarleysis,
félagi góđur. Mundu ţađ!
Undirritađur skorar á formann og varaformann Félags
leiđsögumanna ađ segja strax af sér. |