fagfélag leiðsögumanna grein 29. febrúar 2008,

Lög um atvinnuréttindi útlendinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Lög ASÍ

Reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagr.

Leiðsögunám í Leiðsögusk. Ísl. í MK

Leiðsögunám í Ferðamálaskóla Ísl.

Leiðsögunám EHÍ

Eru skólarnir viðurkenndir?

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
FÉLAG Í RÚSTUM! - ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?
.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaheimur

Lög FFL 2007

Reykjavík 29. febrúar 2008.
Aðalfundur Félags leiðsögumanna sýndi svo ekki verður um villzt, að metnaðar- og áhugaleysi ræður för í þessum larfi af fyrrum ágætum samtökum.

Ragnheiður Björnsdóttir, formaður, las upp skýrslu stjórnar fyrir liðið ár og var fljót, því innihaldið var loftið eitt. 

Undirritaður gerði vitaskuld miklar og alvarlegar athugasemdir við þennan lestur, því stjórnin hefur leynt okkur öllum upplýsingum um störf sín, ef einhver eru, og komizt upp með það.

Vefsetri félagsins hefur ekki verið sinnt síðan 2006 að hluta og 2007 að hluta.  Upplýsingar þar, s.s. um námskeið, söfn, fjölda félaga o.fl. hafa ekki verið uppfærðar og fagdeildarsíður eru enn þá í gangi.

Lögum samkvæmt ber stjórn (ritara) að birta fundargerðir stjórnar- og félagsfunda innan 10 daga frá hverjum fundi á vefsetri félagsins eða á annan hátt.  Síðasta innfærsla stjórnarfundar á vefsetrið var 27. jaúar 2007, þegar það var skoðað í dag.

Fyrri stjórnir félagsins hafa lagt mismikið á sig til að koma upplýsingum um framgang starfa sinna til okkar félaganna, en síðasta og núverandi stjórn heldur, að Félag leiðsögumanna sé leynifélag, sem hún eigi með húð og hári og þurfi ekki að standa reikningsskil gerða sinna.

Ragnheiður Björnsdóttir, formaður, klifar á því, að Friðrik Haraldsson hafi stolið merki félagsins og neitað að koma á fund með henni og varaformanninum, Pétri Gauti, til að ræða endurheimt þess.  Af þeim sökum sagði hún að Félag leiðsögumanna hafi ekki átt annars kost en að leita til lögfræðinga til að það mætti gerast.

Þetta frumhlaup - þessi heimska og taugaveiklun kostaði félagið kr. 63.495.- árið 2007 (sjá ársreikning).  Hér má sjá þessa stuttorðu netpósta 16. og 18. febrúar 2007.  Takið eftir tilgreindu tilefni fundarins, sem er ekki félagsmerkið, heldur „ASÍ - vegna fréttar á vefsíðu” (sjá frétt 10. febrúar á vefsíðu félagsins).

Sannleikurinn er sá, að Ragnheiður og varaformaðurinn sendu undirrituðum fundarboð með netpósti án þess að geta rétts fundarefnis.  Þau ætluðu sem sagt að fá hann á fund á fölskum forsendum.  Ekki er gæfulegt að fara á blint stefnumót við svona lygapakk,  auðnuleysingja og lögbrjóta.  Hér má sjá netpóstviðskipti við Skúla Möller í tengslum við framsal félagsmerkisins.

Stjórn félagsins hefur ekki sinnt mörgum áríðandi málum, sem skipta félagið miklu.  Sem dæmi má nefna umsagnarrétt um ESB-lög og reglur (þjónustutilskipun í janúar 2007).  Undirritaður gerði það í nafni Fagfélags leiðsögumanna.

Samþykkt framhaldsaðalfundar 23. apríl 2007 um að boða til félagsfundar um allsherjaratkvæðagreiðslu vegna aðildar að ASÍ var hunzuð.  Boða hefði átt til þessa fundar innan tveggja vikna frá þessari samþykkt, en stjórnin fór ekki að lögum félagsins eina ferðina enn þá og ekki var hægt að mjaka henni til að halda þennan fund fyrr en seint í nóvember 2007.

Stjórn félagsins þumbaðist við að senda ASÍ lög félagsins til staðfestingar þar til í október 2007 og fékk staðfestingu þeirra í byrjun desember.  Hún átti að láta félaga vita í tæka tíð fyrir eindaga tillagna um lagabreytingar hinn 20. desember 2007.  Það var ekki gert.

Fast árgjald 2008 var tilkynnt og sett í innheimtu í tölvubönkum margra félaga með 190.- kr. innheimtugjaldi.  Það er dagsljóst og margtuggið, að svona aukagjöld eru ólögleg og þessi sauðheimska stjórn ætti að minnsta kosti að reyna að fara að landslögum, þótt hún kunni ekki að fara að lögum eigin félags.

Urgurinn og óánægjan í öllum hornum og kimum Félags leiðsögumanna er orðin slík, að fátt annað komst að á spjallsíðum félagsins.  Áhugalausir og dofnir félagsmenn, sem halda, að þeir séu í saumaklúbbi, kvörtuðu hástöfum yfir þrasi og karpi þar og loks hættu umbótasinnaðir félagsmenn að nenna að tjá sig, enda var talað fyrir daufum eyrum.  Spjallsíðurnar eru því með öllu ónýtar og ónýttar.  Þær verða ekki notaðar aftur í umbótatilgangi.  Umræðan verðu að óbreyttu færð yfir í almenna fjölmiðla, dagblöð og ljósvakamiðla.  Gaman það!

Stjórn félagsins komst að þeirri furðulegu niðurstöðu, að greinar 2.4.1. og 2.5.2. í samningum okkar við vinnuveitendur væru náskyldar og fól skrifstofustjórna félagsins, að tilkynna okkur, að frá og með 1. janúar 2007 ætti að leggja 55% álagsgreiðslu á laun ökuleiðsögumanna.  Þetta er þvílíkt rugl, að ekki tekur tali, en skiljanlegt, þegar vanhæf stjórn félagsins er annars vegar.

Fráfarandi og núverandi stjórn félagsins var og er með allt niðri um sig og allt, sem hún hefur fram að færa er lygar og þvættingur um einhver sýndarafrek og sýndarveruleika.  Allt hefur rekið á reiðanum.  Áhuga-, getu- og máttleysið hefur verið algert.  Þetta fólk er ekki í sama heimi og við hin og meirihluti kjósenda á aðalfundi er meðvirkur.  Það er skömm að því að vera í sama félagi og svona fólk.

Gjaldkeri félagsins, Jens Rumini, stakk upp á því, að fast félagsgjald yrði hækkað um 25%, úr kr. 4.000.- í 5.000.-.  Hann hafði orð á því, að ekki væri hægt að loka verðbólguna úti.  Undirritaður stakk upp á óbreyttu gjaldi, því ekki væri ástæða til að treysta stjórninni fyrir meira fé, sem hún sóaði í eintóma vitleysu eins og málshöfðun gegn eigin félögum.  Það var ekki hlustað á það fremur en annað.

Engir buðu sig fram gegn sitjandi stjórn á aðalfundinum.  Því er ljóst, að þeir/þær, sem aðalfundinn sátu, eru að meirihluta undirmálsfólk, sem hefur fengið að ráða í félaginu allt of lengi, m.a. vegna áhugaleysisi alvöruleiðsögumanna.  Þetta fólk á allt, sem miður mun fara næstu tvö árin í félaginu, margfaldlega skilið.

Á Alþingi Íslendinga árið 1000 mælti Þorgeir Ljósvetningagoði:  „Það mun verða satt, er vér slítum sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.”

Ragnheiður Björnsdóttir var varaformaður í stjórninni, sem sleit sundur lögin og friðinn í Félagi leiðsögumanna árið 2005.  Hún var kosinn rússneskri kosningu sem formaður núna á aðalfundinum 29. febrúar 2008!  Það er því augljóst, að hún þrífst á úlfúð og óreiðu eins og fjóspúkinn og á sér jábræður og systur í félaginu.  Við skulum vona, að henni takist ætlunarverk sitt svo vel, að nógu mörgum ofbjóði framgangan og biðji hana vinsamlegast að segja af sér, líkt og fyrri formaður varð góðfúslega við.  Undirritaður skorar á hana að segja af sér strax.

Tvískipt félagatal fyrir leiðsögumenn?
Svona byrjaði frétt í veffréttablaði leiðsögumanna hinn 15.02.08.

Hvað á fulltrúi stjórnar Félags leiðsögumanna, sem er vitnað í, við með fullyrðingunni, að mismunun felist líka í því að heimila öllum leiðsögumönnum að fá nöfn sín skráð í félagatalið?  Á hann/hún við, að aðrir en MK-leiðsögumenn séu leiðsögumenn líka?

Líklega segir sami fulltrúi, að leiðsögupróf úr öðrum skólum en MK sé metið skör lægra, vegna þess, að menntamálaráðuneytið viðurkenni þá ekki.  Þá verður manni spurn:  Hverjir meta þau lægra?  Við sjálf, vinnuveitendur, múrarar, smiðir, læknar?  Hverjir?

Stjórn Félags leiðsögumanna ákvað að kanna kostnað við gerð annars lista.  Þá er enn þá spurt:  Er það ekki mismunun að draga fólk í dilka í sama félagi?

Svo gerir stjórnin Friðjón Sæmundsson, skólastjóra Ferðamálaskólans, að blóraböggli í þessu máli, og segir hann hafa þarna verðugt verkefni að leysa.  Svona snýr stjórnin út úr öllu, sem hún ætti að leysa fyrir okkar hönd.  Ragnheiður benti m.a. á það á aðalfundinum 28.02.08, að Friðriki Haraldssyni væri nú nær að tala þennan skólastjóra til, en að vera stöðugt að skamma stjórn félagsins fyrir að standa sig ekki í stykkinu.  Haldið þið virkilega, að skólameistarinn liggi í tölvunni alla daga til að leita að „gullkornum”, sem hafa hrotið af borði „gáfnaljósanna” í stjórn Félags leiðsögumanna?

Svo var rætt um gamlan draum, að komið yrði á fót stöðuprófum fyrir leiðsögumenn í Leiðsöguskóla Íslands.  Spurning:  Hefur stjórn félagsins reynt að stuðla að því, að leiðsögumenn frá Ferðamálaskólanum fái að taka stöðupróf þar, ef þeir óska?  Ég held ekki.  Hún hefur alið á úlfúð og óánægju meðal félagsmanna með þessu aðgerðarleysi.  Svei henni!

Þessar eru afleiðingar gerða þinna eða aðgerðarleysis, félagi góður.  Mundu það!  Undirritaður skorar á formann og varaformann Félags leiðsögumanna að segja strax af sér.

Friðrik Haraldsson #76

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is             HEIM