Austurríki,

Meira     Sendiráð og ræðismenn

AUSTURRÍKI
.

.

Utanríkisrnt.

Austurríki er meðal vinsælustu ferðamannalanda Evrópu allt árið.  Landið er fagurt og frítt, fjölbreytt afþreying og saga Evrópu og landsins sjálfs er á hverri þúfu.  Skíðafólk flykkist til landsins á veturna til að njóta beztu skíðasvæða heims í Ölpunum og  náttúruunnendur, matgæðingar, göngufólk og sögufíklar eru helzt á ferðinni á sumrin.

Borgir og bæir landsins seiða til sín aragrúa fólks allt árið með ýmsum menningarviðburðum, þ.á.m. tónleikum og óperum. 

Höfuðborgin Vín og Salzburg koma fyrst upp í hugann, þegar hugsað er til tónlistarinnar, en vitaskuld er um margar fleiri borgir og bæi að ræða.
.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Hverafold 48 - 112 Reykjavik - 567-6242 - fridrikmh@simnet.is - Heimildir            HEIM