Félag leiðsögumanna Fagfélag,

Agreement on foreigners in the Icelandic Labour Market

Lög um atvinnuréttindi útelndinga 10. maí 2002.

Breytingar á lögum im atvinnuréttindi útlendinga 1. maí 2006.

Leiðsögunám í MK

FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA
HVERT STEFNIR?  ER SÓKN BEZTA VÖRNIN?

.

.


Félag leiðsögumanna

Félag leiðsögumanna á vefsetrinu nat.is

Leiðsögumaður (tourist guide) -
fararstjóri (tour manager)


Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Reykjavík 30. marz 2006.
Á aðalfundi Félags leiðsögumanna í febrúar 2005 voru samþykkt ný lög, sem gerðu félagið að stéttarfélagi.  Allar götur frá upphafi (6. júní 1972) var það fagfélag og ófaglærðum var ekki veitt félagsaðild. (sjá
Lög Fl. 1999 og 2004).

Undirrituðum finnst full ástæða til að rekja aðdraganda og afleiðingar þessara breytinga frá eigin sjónarhóli.  Hann og fjöldi annarra félaga eiga sinn þátt í þessum hörmungum með andvara- og aðgerðarleysi.


Einn fyrrverandi formanna var mér vitanlega fyrsti talsmaður þessara breytinga.  Honum verður þó ekki kennt um að stíga þetta örlagaríka skref, því þarnæsti formaður á skömmina af því.  Hinn fyrrnefndi á engu að síður hlut að máli, því hann stuðlaði að lagabreytingunum.

Stjórn félagsins leitaði álits Magnúsar Norðdahls, lögfræðings ASÍ, á stöðu félagsins, þegar gervileiðsögumenn leituðu inngöngu í félagið og tveir þeirra hótuðu lögsókn, léti félagið ekki af andstöðu sinni.  Lögfræðingur ASÍ tjáði stjórninni, að öllum væri frjáls aðgangur að stéttarfélögum, ekki sízt, ef viðkomandi umsækjandi hefði greitt lögboðin gjöld til félagsins.  Hann studdi mál sitt með einhverjum dómum, sem féllu sækjendum í hag.

Viðbrögð stjórnar F.l. voru að knýja fram breytingar á lögum félagsins til að opna það fyrir þessum og síðari umsækjendum um aðild.  Kynning á þessum fyrirhuguðu breytingum var vægast sagt ófullnægjandi og stjórnin nennti ekki eða hafði ekki hugrekki til að láta reyna á rétt félagsmanna til að vera áfram í eigin fagfélagi án afskipta annarra.  Heilaþvotturinn hjá ASÍ tókst svona dæmalaust vel.

Ábyrgðarmenn félagsins hafa marglýst því yfir á fundum, að ekkert annað hafi komið til greina en að opna fyrir ófaglærðu fólki.  Röksemdirnar voru og eru aðallega þær, að það hefði greitt til sjóða félagsins.  Það var jafnvel tekið við greiðslum frá kokkum   Það er með endemum að þurfa að hlusta á "afsökun", sem er gjörsamlega ógild og út úr kú. Hún er opinber viðurkenning á aumkunarverðu aðgerðarleysi viðkomandi stjórna og skorti á lögbundnu eftirliti með bókhaldi félagsins.  Það átti að endursenda þessar greiðslur  jafnharðan. Vonandi verður hægt að endurgreiða þetta fé eftir lagabreytingar á næsta aðalfundi.  Til þess að svo megi verða, hljótum við að krefjast þess, að núverandi stjórn fari sparlega með sjóðii félagsins.

Nýlegt álit (18.01.06) lögfræðinganna Halldórs Jónssonar hrl. Og Tómasar Eiríkssonar hdl, er svohljóðandi: Samkvæmt framansögú er það álti mitt, að Félagi leiðsögumanna hafi verið og sé heimilt að setja í lög sín skilyrði um tiltekna menntun og/eða starfsréttindi félagsmanna.  Að núgildandi lögum félagsins verður ófaglærðum leiösögumönnum hins vegar ekki meinuð aðild að því.  Unnt er að breyta lögum félagsins á aðalfundi samkvæmt ákvæðum laganna þar um.  Hvaða áhrif slíkar breytingar hafa á stöðu ófaglærðra félagsmanna fer eftir því, hvaða breytingar eru samþykktar.  Vísast til umfjöllunar hér að framan um kosti, sem til greina koma. Sjá Lögfræðiálit.  (Greinargerðin er líka í heild á heimasíðu Fl. www.touristguide.is undir liðnum félagsmál.  Ath.: nota aðgangsorð og lykilorð, sem er félagsnúmer viðkomandi).

Eftir stórslysið á aðalfundinum 2005, kórónaði formaðurinn óheillaverkið með því að loka félagatalinu á heimasíðu félagsins.  Konan tók ekki sönsum og það kom úr óvæntustu átt á félagsfundi 18. janúar 2006, þegar einn fundarmanna ruddist átölulaust fram á völlinn í upphafi fundarins og bar fram tillögu til ályktunar um að þáverandi formaður segði af sér á næsta aðalfundi.  (Þetta er eitt margra dæma um vanþróaðan félagsþroska okkar og dugleysi fundarstjóra.)  Tillagan var samþykkt og  formaðurinn lét ekki á sér standa og sagði tafarlaust af sér.

Mikið var rifizt og skammazt vegna horfna félagatalsins.  Fagfélögum fannst þeir vera í gíslingu yfirtökumanna félagsins og finnst það enn þá, því félagatalið var loks opnað á læsta hluta heimasíðunnar, lokað fyrir vinnuveitendum okkar, þannig að félagið okkar er enn þá að vinna gegn hagsmunum okkar.  Félagatalið er búið að vera lokað í u.þ.b. eitt ár og stórnir félagsins lofuðu margoft að opna það, síðast á fagdeildarfundi 29. marz síðastliðinn.

Á síðasta aðalfundi var varaformaðurinn kosin formaður til tveggja ára.  Undirritaður þekkir þessa konu alls ekki og er ekki dómbær um, hvern mann hún hefur að geyma, en framkoma hennar á fagdeildarfundinum 29. marz 2006 var ekki til fyrirmyndar, þegar Birna G. Bjarnleifsdóttir spurði um fjölda félaga, sem Fl. á aðild að.  Nýkjörinn formaður sagðist ekki nenna að svara Birnu, því að þetta væri fagdeildarfundur en ekki félagsfundur.
“Landinu virðing – Lífinu hlýja” eru kjörorð félagsins.

Eins og stendur er fjöldi faglærðra félaga nálægt 590.  Nálægt 205 þeirra eru fullgildir félagar + 155 (ekki í fagdeild), þ.e. líka í stéttarfélaginu.  Við greiðum 4.000.- kr. árgjald til fagdeildar en þurfum að bæta við greiðslum til sjóða stéttarfélagsins (félagssjóður 1%, sjúkrasjóður 1,5% og endurmenntunarsjóður 0,25%) til að teljast fullgildir félagar.  Þá fyrst höfum við málfrelsi, tillögurétt, kosningarétt og kjörgengi í félaginu.

Þetta fyrirkomulag er að mestu eins og  fyrir umskiptin 2005.  Þeir, sem greiddu aðeins árgjald til félagsins voru ekki fullgildir félagar.  Þannig verður það einnig eftir lagabreytingar á aðalfundi í janúar 2007, nái þær fram að ganga.

Stéttarfélagið heldur félagsfundi, þar sem allar ákvarðanir eru teknar fyrir félagið i heild.  Þar voru, skv. síðustu tölum, 205 félagar bæði í fagdeild og stéttarfélagi.  Til viðbótar voru 230 í fagdeild, en akki í stéttarfélaginu. og alls 155 faglærðir í stéttarfélaginu án þess að vera í fagdeild.  Niðurstaðan hlýtur því að vera, að faglært fólk í stéttarfélaginu telji 360. Fjöldi "ófaglærðra" félaga stéttarfélagsins var á milli 80 og 90, þannig faglært fólk er þar í meirihluta, Meirihlutinn er nægur til að tryggja breytingu lögum félagsins á næsta aðalfundi.  Þar þarf 2/3 hluta atkvæða til lagabreytinga og slíkan meirihluta verðum við að tryggja.  Því er nauðsynlegt, að sem flestir fagdeildarmenn í stéttarfélaginu komi á fundinn.  Við verðum að leiðrétta mistökin, sem við gerðum 2005.
(Breyting upprunalegs texta sett inn 08.04.06 í samræmi við frettatilkynningu á www.tourisguide.is vegna innheimtu fasts árgjalds til fagdeildar).

*NB.  Ofangreindar tölur rekast hver á annars horn og ýmsar tölur hafa verið á sveimi, síðast á fagdeildarfundi 29. marz sl.  Það var augljóst þá, að stjórnarfólk var ekki með þessar tölur á hreinu og svo er enn.

Fyrsta skrefið í átt að endurreisn félagsins er að losna úr viðjum ASÍ.  Félagið okkar á ekki heima þar.  Láglaunastefna ASÍ heldur okkur í spennitreyju á launasviðinu og viðsemjendur okkar taka lítið mark á okkur eftir breytingarnar 2005.  Þeir glotta í laumi við samningaborðið og aðrir hlæja hátt að heimsku okkar.

Nú stöndum við frammi fyrir ákvörðun um framhaldið.  Eigum við - meirihlutinn - að láta þetta yfir okkur ganga?  Er ekki bezta lausnin að sem flestir fagdeildarmenn greiði lágmarksgjald til sjóða stéttarfélagsins til að öðlast full félagsréttindi? Þá verða þeir í meirihluta sem fullgildir félagar og geta snúið dæminu við á næsta aðalfundi (2007. Krefst 2/3 hluta atvæða).  Þá getum við losað okkur við ófaglærða fólkið með ákveðnum skilyrðum (sjá lögfræðiálit).

Eitt félag – einslit hjörð.  Þannig var það áður.  Leiðréttum mistökin!

Þá getum við farið að snúa okkur að baráttu fyrir viðurkenningu menntunar okkar á háskólastigi, sem leiðir sjálfkrafa til aukinnar viðurkenningar starfsins (sambærilegt við löggildingu).  Þá getum við farið að krefjast hærri launa og hættum að sóa tímanum í óverðug verkefni.  Hagsmunamál okkar hafa setið of lengi á hakanum vegna innbyrðis ófriðar.

Andvaraleysi okkar hefur komið okkur í núverandi stöðu.  Núna verðum við að hrista af okkur slenið og gera eitthvað í málunum.

Núna á dögunum bárust fréttir um samþykkt Evrópusambandsins um frjálsa för og búsetu vinnuafls á evrópska efnahagssvæðinu, þ.m.t. frá nýju sambandsríkjunum, sem verða öll að teljast láglaunaríki með gífurlegt atvinnuleysi.  Við höfum þegar reynsluna af síauknum fjölda gervileiðsögumanna, sem ganga í störf okkar átölulaust og fengum ekki og fáum ekki stuðning yfirvalda til að stemma stigu við þeirri þróun.

Við eigum þess kost að koma menntun okkar á háskólastig, sem virðist einfaldasta lausnin á þessum vanda, því þá fyrst getum við farið að beita yfirvöld nægilegum þrýstingi til að vernda starfsréttindi okkar.  Þá fyrst getum við farið að semja um mannsæmandi laun fyrir ómetanlegt framlag okkar til gæðaferðaþjónustu.

Skúli Thoroddsen hjá Starfsgreinasambandinu var tekinn tali í fjölmiðlum og lýsti því yfir, að eina leiðin til að komast hjá því, að Ísland verði láglaunaland, sé að boða hið norræna vinnumarkaðskerfi í nýju sambandsríkjunum.  Hversu árangursríkt haldið þið að slíkt "trúboð" verði?  (Viðbót við upprunalegan texta 20.04.06).

Vinsamlegast skoðið
Lög Fl. 2007.  Þar eru drög að breyttum lögum fyrir fagfélagið, sem verða vonandi að veruleika, ef allir standa saman.  Athugið, að við getum mótað tillögur okkar til lagabreytinga til 20. desember 2006.

Skrifað daginn eftir fagfélagsfund, 30. marz 2006.

Friðrik Haraldsson
Hverafold 48, 112 Rvík,
Sími og fax: 567-6242 og 897-1233
info@nat.is
www.nat.is


PS. Undirritaður fór á fund Halldóru Friðjónsdóttur, forseta BHM, til að kanna jarðveginn fyrir fagfélag leiðsögumanna í samtökunum og fékk góðar undirtektir.  Næsta skrefið lá í Ösku, hús jarð- og landfræðiskorar Háskóla Íslands, á fund Önnu Dóru Snæþórsdóttur, lektors og aðstoðarprófessors, sem annast greinar tengdar ferðamálafræðum.  Hún var hin jákvæðasta og taldi meinbugina einkum vera fjárhagslegs eðlis, þ.e.a.s. að tryggja yrði fjárhagslegar undirstöður kennslu almennrar leiðsögu í hennar deild til að hún gæti hafizt.

Núna er framgangur þessa mikilvæga máls í höndum stjórnar F.l. samkvæmt bráðabirgðaákvæði 9. gr. laga félagsins.  Krafa fagdeildarfólks hlýtur að vera sú, að stjórnin einbeiti sér undarbragðalaust að lögbundinni skyldu sinni og haldi þessu starfi markvisst og skipulega áfram.

Miðað við nýjustu fréttir frá stjórninni, er hún enn þá að hjakka í sama gamla farinu.  Hún sendi nefnd fjögurra manna í gjörsamlega tilgangs- og árangurslausan leiðangur á fund ferðamálaráðherra 3. apríl 2006 til að jarma út ígildi löggildingar leiðsögustarfsins.

Slóð félagsins á þessari braut er orðin jafnslitin og fornleiðin yfir hraunbreiður Hellisheiðar vestri og allar svona tilraunir hafa verið tímasóun.

TIL BAKA             Friðrik Haraldsson, Hverafold 48, 112 Rvík, 567-6242 / 897-1233 - info@nat.is              HEIM