|
Aðalfundurinn
30. janúar 2007.
Ég fór heim af
aðalfundinum í kvöld með skottið á milli lappanna, því allt,
sem ég var búinn að leggja mikla vinnu í, var lagt þar í
rúst á mettíma. Hvorki stjórn félagsins né ASÍ eru á
hátt skrifuð í huga mínum. Ég veit
ekki fyrir hverja stjórnir FL og „fagdeildar" hafa verið og
eru að vinna - ekki fyrir okkur, þótt
formaður okkar segði, að
hún og stjórnin væru búin að leggja
mikið á sig fyrir okkur. Það er
óhætt að segja að vindhöggin og lygavefurinn séu þreytandi!
Hér með er auglýst eftir frumkvöðli/frumkvöðlum, sem hafa
döngun til að stofna Fagfélag leiðsögumanna, sem yrði
algjörlega sjálfstætt í rekstri og óbundið
regnhlífarsamtökum. Bezt væri, að allir félagar í fagdeild
Fl létu verða af því, að skrá sig í nýja félagið og taka
sjóð hennar með sér. Það yrði léttara fjárhagslega fyrir
alla. Félagið yrði strax að gefa út viðmiðunartaxta.
Í upphafi yrði það að deila sjúkra-, endurmenntunar-, og
lífeyrissjóði með Félagi leiðsögumanna, hvað sem síðar
verður.
Félaga þess greiddu, eins og nú, fast
félagsgjald og 1% af launum til félagsins.
Fagfélag leiðsögumanna er þegar skráð hjá ríkisskattstjóra
og hefur fengið kennitölu, þannig að það bíður eftir nýrri
stjórn og félögum.
Þar sem flest sund eru lokuð meirihluta félaga Fl til að
iðka sjálfstæð vinnubrögð vegna spennitreyju ASÍ og
moðstjórna „stéttarfélagsins" og læstu skúffunnar í því,
svonefndrar fagdeildar, virðist vænsta leiðin að koma sér í
burtu frá ASÍ á eigin forsendum. Við erum nefnilega enn þá í
gíslingu.
Vilji einhverjir áhugasamir taka króann að sér, þarf ekki
annað en að hafa samband við undirritaðan, sem hyggst ekki
koma nálægt neinu félagsstarfi tengdu leiðsögumönnum aftur.
Beztu kveðjur,
Friðrik Haraldsson.
P.S. Nýskipuð merkisnefnd Fl þarf ekki að leggja mikið á sig
vegna gæðamerkisins okkar, því það er skráð eign Fagfélags
leiðsögumanna sem gæðamerki. Það þýðir einfaldlega, að
einungis fagmenntaðir leiðsögumenn mega nota það.
31. janúar 2007. Ég las
spjallsíðu FL og bloggsíðu Péturs Gauta í kvöld. Eftir
þennan lestur skil ég betur, hvers vegna stöðugt er verið að
leggja drög að uppfinningu hjólsins í Félagi leiðsögumanna
og mikið sé að gera.
5. febrúar 2007. Mér finnst ástæða til að benda
faglærðum leiðsögumönnum á 17. gr. laga ASÍ (sjá tengil í
vinstri dálki), þar sem úrsögn úr ASÍ er skilyrt. Þá
ber að hafa í huga 24. grein félagslaga Fl, sem segir að 20
félagar (fullgildir) geti krafizt félagsfundar, sem verður
að boða innan tveggja vikna frá því að beiðni berst stjórn
félagsins. Fundarboðið verður að tilkynna tilefni
fundarins, s.s. tillögu um úrsögn úr ASÍ. Þessa
tillögu þarf félagsfundurinn aðeins að samþykkja með
einföldum meirihluta. Félagsfundurinn þarf einnig að
tilgreina hvenær stjórn félagsins skuli efna til
allsherjaratkvæðagreiðslu um úrsögnina, því þess er ekki
getið í lögum ASÍ. Félagsfundurinn verður einnig að
tilgreina frest stjórnar til að senda úrsagnarbréf til ASÍ
að allsherjaratkvæðagreiðslu lokinni, verði hún samþykkt.
Úrsögnina verður að samþykkja með 2/3 hluta atkvæða
fullgildra félaga í
allsherjaratvkæðagreiðslunni til að hún verði gild og stjórn
Fl. verði að framfylgja henni. |